Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
2308862109Participant
Axirnar eru seldar
Dóri
2308862109ParticipantBúinn að kaupa mér nýjar Nomic.
Sem ég er alveg hrikalega ánægður með.Dóri
2308862109ParticipantTil hamingju, flott hjá ykkur hefði komið í heimsókn 2007
Dóri
2308862109ParticipantSeldir
Dóri
2308862109ParticipantVar að setja in myndir síðan við Geiri fórum skoruna um daginn
http://picasaweb.google.com/halldor86/Skoran#Og líka myndir frá ferð sem við Ívar og Haukur fórum Austur í Skaftafell
http://picasaweb.google.com/halldor86/RoadTripIOrFin#Dóri
2308862109ParticipantEgg og beikon.
Svínafell Öræfasveit. Um 400m SA við Beikon og egg, Línan sem nær lengst niður.
Heildar klifur – 235m WI4+
F.f. 6.janúar 2010, Halldór Albertsson og Haukur Elvar Hafsteinsson
1. Spönn 4+.gr 60m
2. Spönn 3.gr 10m
3. Spönn 4+.gr 55m
4. Spönn 2.gr 80m
5. Spönn 4.gr 20m
6. Spönn 4+.gr 10mTil að ganga að leiðinni er best að leggja bílnum við gönguhlið sem ca 200 metrum austan við pípuhliðið á austari afleggjaranum að Svínafelli. Við gönguhliðið byrjar nokkuð áberandi göngustígur sem liggur í átt að Virkisjökli. Eftir ca 600 – 700 metra beygir maður til vinstri inn á þrengri stíg sem liggur upp í lerki og grenilund sem plantaður var af UMFÖ. Þaðan er þröngur stígur sem liggur langleiðina í gegnum skógræktina og upp að leiðinni. um 15min labb frá bíl
Gengum niður eftir Svínafellinu og komum niður yfir Flosalaug.
http://picasaweb.google.com/halldor86/RoadTripIOrFin#5424418178034270162Shrek er líka fólk.
Hnappavöllum Öræfasveit. Leiðin vinstra megin við ísklifrarar eru líka fólk.
FF. 7.Janúar 2010, Halldór Albertsson, Einar Rúnar Sigurðsson, Haukur Elvar Hafsteinsson og Ívar Finnbogason
Lengd. um 15m WI4+ Við endurskoðuðum gráðuna vegna hversu stutt leiðin er en endar verulega brött.
http://picasaweb.google.com/halldor86/RoadTripIOrFin#5424431957299635890
Hundafoss.
Skaftafelli Öræfasveit. Fossin fyrir neðan Svartafoss.
FF. 7.Janúar 2010, Haukur Elvar Hafsteinsson, Ívar Finnbogason og Halldór Albertsson
Lengd. 25m WI4
http://picasaweb.google.com/halldor86/RoadTripIOrFin#5424435701099050050
2308862109ParticipantSkelltum okkur 3 saman i Grafarfossinn i dag ég, Jón og Siggi. Eintóm gleði
Dóri
2308862109ParticipantEftir hádegi í dag í bongóblíðu renndum við Geiri í Svarta turninn. Snilldar leið í alla staði, fyrsta spönnin stóð samt uppúr en fyrsti stansinn er þó orðinn vel útspýjaður eftir múkkann sem býr þar við hliðiná. Frábært framtak takk fyrir okkur.
Dóri
2308862109ParticipantFrábær dagur fínustu jafnvægisæfingar að komast upp að munda.
Dóri
2308862109ParticipantSvaðalega töff leið.
RespeactDóri
2308862109ParticipantSetti nokkrar myndir á http://picasaweb.google.com/halldor86/Ili#
2308862109ParticipantÞakka fyrir stórgóða helgi.
skellti inn eitthvað af myndum
http://picasaweb.google.com/halldor86/SklifurfestivalABildudal#
Dóri
2308862109ParticipantVið vorum 5 manna hópur sem kíktum inní Glymsgil í gær og var ekkert í aðstæðum fremst í gilinu að minnsta kosti allt mjög þunnt og rennsli undir. Við komumst ekki alla leið þar sem áin var ekki nægilega ísuð. Fórum þó langleiðina og var mikið rennsli í glym og leit ekki vel út þaðan sem við stóðum. Mættum þó í gilinu 2 frökkum sem eru hinngað komnir í 2 vikur til þess að klifra og snéru þeir við á sama stað og við eftir að annar þeirra blotnaði aðeins í ánni.
Ákváðum við að kíkja í Brynjudal og klifruðum við smá þar í norðanverðum dalnumDóri
2308862109ParticipantRenndum 3 inní Brynjudal síðastliðin föstudag einmitt einnig eftir að hafa skoðað flottar myndir frá Jósef og Tómasi.
Fórum innst inní dalinn lögðum við skógræktina og skelltum okkur í leiðir sem eru þar sunnan megin í Múlafjallinu. Mjög stutt labb og fullt af skemmtilegum leiðum. Klifruðum 3 leiðir.Myndir komnar á netið
http://picasaweb.google.com/halldor86/Brynjudalur#2308862109ParticipantFrábær dagur í tvíburagilinu í dag.
Ég og Doddi renndum þanngað í dag byrjuðum á helvítis fokking fokk og skelltum okkur svo í olympískafélagið.
Stórskemmtilegt svæði við vorum reyndar ekki með neinar myndavélar á okkur en Guðjón og Ívar voru góðir í sér og mynduðu okkur aðeins.
Einnig fórum við 3 í kórinn í Kjósinni á föstudag og fórum spora í fínum aðstæðum og fórum svo í konudagsfossinn en hann var ekki kláraður þar sem efsti parturinn var svo rosalega kertaður.
Síðan fórum við 4 Ársælsmeðlimir í Austurárdal á sunnudaginn og voru aðstæður þar svipaðar og á myndunum frá seinustu grúppu þaðan. klifrðuðum við eitthvað afbrigði af bláu leiðinni og áætlun B.
Hendi einhverjum myndum á netið við tækifæri.Dóri
2308862109ParticipantÉg keypti mér svona skó fyrir veturinn og mjög ánægður með þá, reyndar ekki komin nein gríðarleg reynsla á þá en þeir eru mjög þægilegir og gott að klifra í þeim. Þurfti lítið að ganga þá til svo þeir yrðu þægilegir. Reyndar eru þetta fyrstu alstífu skórnir mínir svo ég hef enga aðra til þess að bera saman. Hef ekki notað ólabrodda á þá.
-
AuthorPosts