Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
ÓlafurParticipant
Það er drjúgur spotti uppað klettunum frá þjóðveginum, myndi giska á allt að klukkutími. Sennilega er styst að labba frá Bjarkalundi eða uppúr Þorskafirðinum. Menn ættu að sjá það fljótt hvort þeir treysta bílnum sínum upp slóðann eða ekki.
Mæli ekki með að tjalda undir klettunum en á Bjarkalundi er sæmilegt tjaldstæði eða á Reykhólum sem er betra (við hliðina á lauginni).
Boltaspurningin er hinsvegar ákallandi. Ég er viss um að það verði ekki líklegt til vinsælda að menn bolti þarna án þess að spyrja hvorki kóng né prest.
ÓlafurParticipantGleymdi að geta þess að Vaðalfjöll eru beint uppaf Bjarkalundi sem stendur uppaf Berufirði.
Það er hægt að keyra alla leið uppað Vaðalfjöllunum á slyddujeppa eða fólksbíl sem menn hafa litlar taugar til. Tekur ca. 3 tíma að keyra úr bænum og uppí Bjarkalund.
Kveðja,
ÓliRaggiÓlafurParticipantÉg var þarna um helgina og þetta er eðal. Sunnan megin er hægt að fara endalaust af dótasprungum sennilega frá 5.4 og alveg uppí 5.9. Sumar eru vel yfir 50m á lengd. Þeim megin eru klettarnir hvergi alveg lóðréttir og nokkuð grónir skófum en sprungurnar sjálfar hreinar.
Hinum megin á gígtappanum eru hinsvegar möguleikar fyrir erfiðar sportleiðir. Þarna er flottasta slútt á landinu, (sjá mynd í seinasta Ísalp blaði) sennilega um 35° og ca 25m þar sem það er hæst. Veggurinn þeim megin er eins og hlaðinn en maður horfir á endana á stuðlunum. Stuðlarnir eru alveg þéttir saman og því ekki möguleiki að tryggja með dóti þeim megin. Þarna hefur ekkert verið boltað. Þarna er hinsvegar hægt að setja upp flottustu sportleiðir á landinu (amk sem ég hef séð til).
Ætli það þyrfti ekki að fá leyfi hjá einhverjum ef menn ætla sér að bolta þarna. Gígtappinn er örugglega friðaður og náttúruvætti og alles.
ÓlafurParticipantMig langar að benda áhugamönnum um klifur á nýja æfingatækni sem styrkir handleggina og þá sérstaklega framhandleggsvöðvana á áhrifaríkan og skemmtilegan hátt. Hún hefur vakið athygli meðal íþróttafólks í hinum ýmsu greinum s.s. golfi, handbolta, tennis og íshokkí. Það er frekar erfitt að lýsa því í orðum hvernig æfingatæknin virkar en í stuttu máli felst hún í því að toga sig upp með hendurnar á láréttri stöng eða kústskafti. Til að auka árangurinn ennfremur er kjörið að gera æfinguna með ab-flex bumbubana um kviðinn. Ég vil því benda ykkur á að kíkja við í klifurhúsinu en þar hefur verið komið fyrir járnstöng sem gerir klifrurum mögulegt að stunda æfinguna.
ÓlafurParticipantRétt vestan við afleggjarann að Vogum á Vatnsleysuströnd, og sunnan megin við Reykjanesbraut eru 8-12m háir klettar sem hægt er að klifra í. G.r.f. að það séu klettarnir sem Halli talar um. Þeir sjást hinsvegar ekki frá veginum og eru ekkert sérstaklega nálægt Svartsengi þ.a. það eru sennilega ekki klettarnir sem um ræðir. Hef ekki heyrt um neina kletta við Svartsengi.
–ÓliRaggi
ÓlafurParticipantUmsjónarmenn fréttapistilsins þakka fyrir þessa góðu ábendingu og sagnfræðilegu upplýsingar. Við erum sannfærðir að sérlegur fulltrúi okkar á Vestfjörðum, Rúnar Óli Karlsson, gerir það líka.
Um leið vil ég hvetja alla sem luma á leiðréttingum eða upplýsingum fyrir næsta pistil að koma þeim á framfæri til mín eða Jóns Hauks eða einfaldlega í gegnum umræðusíðuna.
Bestu kveðjur,
ÓliRaggiÓlafurParticipantHef ekki prófað að nota rafstöð eins og Karlinn stingur uppá en lausnin hans Jónka (létt borvél með þurrgeymi sem hægt er að hafa í bakpoka eða hangandi utan á sér) er góð. Borvélin sjálf er þá mjög létt sem skiptir miklu máli.
Hef á tilfinningunni að það sé góð lausn ef menn stefna á rafmagnsgræju á annað borð. Það er tiltölulega þægilegt að þvælast með þetta ef menn eru að bora á afskekktum stöðum eða langt uppí fjallshlíðum.
Það þyrfti síðan að vera einhver umsjónarmaður með græjunni. Hef ekki miklar áhyggjur af því að Pétur og Páll fari að gata kletta í stórum stíl hér og hvar en sjálfsagt að fylgjast vel með og að aðeins “afar gamlir/traustir gaurar” hafi aðgang að vélinni.ÓlafurParticipantAnnað svæði sem vantar stórlega leiðarvísi af er Gerðuberg.
Spurning um að mynda hana líka í bak og fyrir næst þegar maður á leið uppá Snæfellsnes.
http://home.wanadoo.nl/snowy-owl/images/west/html/ijs034.html
ÓlafurParticipantÞetta er hið besta mál. Svona á að gera þetta, einfalt og gott.
Er ekki einhver þarna úti sem lumar á góðri mynd af Pöstinni? Þá gætu þeir sem til þekkja lagt í púkk, sent inn leiðirnar, og við verðum komin með leiðarvísi þaðan á mettíma.
ÓlafurParticipantÞað er fínasta blanda af klettaklifri og ósviknu íslensku drulluspóli að fara á Lóndranga. Standard leiðin fer uppá stóra stallinn frá austanverðu. Síðan er fylgt augljósri gróf/sprungu uppá topp þaðan. Mér skilst að “suðurfésið” á dranginum hafi einnig verið klifið og er það sennilega nokkuð strembnara.
ÓlafurParticipantHvaða hvaða!!
Á mínu heimili er það nú bara þannig að menn eru ekkert að rífa sig upp fyrir allar aldir. Það tekur því ekki að leggja af stað uppí Skarðsheiði fyrr en maður er búinn að fara í bakaríið hlusta á hádegisfréttir.Og talandi um að vera gamall og lúinn þá vil ég nú frekar segja að við höfum mætt í bæinn aftur á góðum partýtíma. Ungabörn og gamlingjar kalla það kannski háttatíma.
Og að lokum ætti nú ekki að þurfa að taka það fram að við vorum að sjálfsögðu í Fylkisgallanum og keyptum nestið okkar í Nóatúni.
ÓliRaggi
ÓlafurParticipantHmmm…
Fór ekki Anna Lára á Huascaran (6768m) 1985 ásamt föruneyti?
Í fljótu bragði minnist ég þess ekki að íslenskar konur hafi farið hærra. Ef einhver veit betur þá endilega leiðréttið mig.-ÓliRaggi
ÓlafurParticipantÁrbæingar munu mæta galvaskir, hafa enda titil að verja. Ég vil líka benda á að í fyrra áttu Árbæingar flesta keppendur miðað við höfðatölu af öllum sjálfstæðum bæjarfélögum á Íslandi.
ÓlafurParticipantKomst ekki seinna kvöldið en ég varð fyrir nokkrum vonbrigðum með það fyrra. Þetta er þriðja árið sem ég fer á Banff og mánudagskvöldið var tvímælalaust það slappasta sem ég hef séð. Ég hef oft áður séð myndir í lengri kantinum sem hafa verið mjög skemmtilegar en einhvernveginn var það þannig að í þetta skiptið fannst mér skemmtanagildið í öfugu hlutfalli við lengd myndanna. Kajak- og snjóflóðabjörgunarmyndirnar fundust mér fremur leiðinlegar. Annapurna myndin var líka vonbrigði: Leiðinleg mynd um mjög áhugavert efni. Hinar myndirnar voru fínar. Sérlega gaman að myndinni hans Jölla.
Annars stóð algjörlega uppúr stórskemmtileg ræða Sturlu Böðvarssonar sem lék á alls oddi. Hláturrokur gengu um salinn og menn og konur tóku ýmist bakföll ellegar engdust um í sætum sínum.
Þakka annars gott framtak. Held að Banff sé búið að vinna sér fastan sess. Woddy Allen gerir heldur ekki alltaf góðar myndir.
ÓlafurParticipantEr ekki málið að halda ísklifurfestivalið í Eilífsdal (sennilega einn af fáum ó-íslausum stöðum á landinu) og flytja Telemarkmótið uppí Bláfjöll. Fregnir herma að hinn landsfrægi, norðlenski KEA-snjór sé eitthvað á undanhaldi.
Norðanmenn og aðrir “útálandingar” – verið velkomnir í borgina.
ÓliRaggi
ÓlafurParticipantMálið er það að við vorum með hugmyndir uppi um að senda þessa mynd í blaðið FHM (en á myndinni flagga ég einmitt special edition af því ágæta blaði – 100 sexiest women of the year 2000 – sem hélt okkur við efnið þessar 6 vikur í Perú). Í blaðinu auglýstu þeir að maður gæti unni viskýkassa fyrir “letter of the month” og við töldum okkur vera með öruggan sigurvegara (J-Lo á Huascaran !). Síðan kemur í ljós að þetta gilti aðeins fyrir breska ríkisborgara. Ég ætlaði nú að reyna að fiffa það eitthvað en í næsta blaði á eftir var búið að breyta verðlaununum í kassa af rakspíra og þá missti ég eiginlega áhugann og hugmyndin kulnaði….
Næst verður það ekkert hálfkák, ég fer með Hustler.
ÓliRaggiÓlafurParticipantEr búið að ákveða hvert skal halda ?
-ÓliRaggi -
AuthorPosts