Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
1704704009Member
Grindverk og kaðlar! Og spýtur!!! Djöfull er gott að heyra þetta. Tókuð þið ekki myndir? Komið með þær á miðvikudaginn og sýnið.
1704704009MemberAð taka ævintýrið úr fjallamennskunni gætu sumir sagt. Aðrir gætu sagt að með þessu væri verið að auðvelda aðgengi að fjöllunum. Við sem erum frísk og vílum ekki fyrir okkur að ganga upp Esjuna án aðstoðar keðja og annarra hjálpartækja finnst þetta etv. bráðasti óþarfi en hér vaknar áleitin og sígild spurning – í hversu miklum mæli eiga fjöll og þar með talin náttúran í heild að vera laus við allar mannasetningar? Er keðja á Esjunni t.d. í eðli sínu öðruvísi en skáli og kamar á fallegum og ósnortnum stað? Og hvað með umferð fólks á fjöllum yfir höfuð? Ættu fjöllin ekki einfaldlega að vera friðuð með öllu?
Ég er þeirrar skoðunar að sem flestir geti átt þess kost að njóta þeirrar stórkostlegu reynslu að ganga á fjall. Þó það kosti eina eða tvær tröppur eða nokkrar keðjur sem gætu farið í taugarnar á manni. Ég geri amk. ekki kröfu um að fjöllin séu eingöngu til fyrir mig á ákveðnu æviskeiði og/eða sem passa líkamlegu atgervi mínu á ákveðnum tíma. Við getum jú öll lent í slysi hvenær sem er og bæklast en haft sama áhuga á fjöllum eftir sem áður. Slæmt að dæmast úr leik með öllu. Þeir sem eiga draum um að fara á fjall eiga að mínu mati að geta látið hann rætast. Oft þarf ekki mikið til að leyfa fólki að láta drauma sína rætast. Bara ein keðja og tvær tröppur.
Og annað: Esjan er margfótum troðin og því liggja ákveðin sjónarmið að vera með framkvæmdir þar. Og ekki er annað að sjá en þær séu afturkræfar ef út íþað er farið.
1704704009MemberTakk Stebbi. Það þarf bara fleiri fjallakofa á fjallshryggjum í Öræfum og þá er þetta alveg eins. Spurning um að setja kofa uppá Hafrafellið. Og muna að tína upp brakið þegar hann fýkur.
1704704009MemberÚr því að allir eru farnir að tjásig um hellasig.
Hvað er betr’ en að stundasig?
í myrkri með allt niðrumsig.
Prófasig, tékkasig, vandasig
klárasig, gyrðasig – útskrifa sig.Spurning um að maður fari að láta athugasig.
Kv. Örlygursig.1704704009MemberGott væri að nýta næstu ferð í Tindfjöll til að kippa með gaskút og steinolíubrúsa. Væntanlegir leiðangursmenn eða -konur eða þeir sem vita af leiðangri hafi samb við mig. 8214481.
Annars ætti að vera nóg af eldivið eftir birgðaferð í sumar.
1704704009MemberÞað er útséð um að ekki tókst að finna umsjónarmann fyrir Þumal og svo er veðurútlit orðið óhagstætt í þokkabót.
Ferðinni er frestað til 10. september. Vonandi hefur enginn orðið fyrir óþægindum af þessum sökum.
1704704009MemberEkki nema von að spurt sé. Það hefur gengið æði stirðlega að fá umsjónarmann í ferðina en ég hef verið að vonast til að það myndi bjargast á síðustu dögunum.
Planið var að taka laugardaginn í allt verkefnið og gista í Skaftafelli að því loknu. Annars hefði umsjónarmaður haft yfirráð með nánari útfærslu. En því miður verður að segjast að þetta er farið að ganga aðeins á afturlöppunum, það viðurkennist fúslega.
Vona innilega að bossamál verði komin á hreint fyrir morgundag. Annars stefnir í frestun inn á 10. sept.
1704704009Member366 félagar nánar tiltekið.
1704704009MemberFélagaskráin segir harla fátt. Heimili, kennitala, sími…
Ef fólk hefur eitthvað gagn af þessu þegar það les greinar eftir ókunnuga félaga, því ekki að birta skrána? Það gæti orðið upphafið að dýrlegri vináttu.Svo þarf að heyra í fleirum varðandi það t.d. að birta símanúmer. Skyldi vera að þegar fólk hafi gengið í klúbbinn og skráð gsmnúmer sem ekki eru skráð í símaskrána, þá hafi það verið gert í trausti þess að ekki myndu 300 manns geta tékkað á númerinu að vild?
Almennt finnst mér félagaskráin alls ekkert leyniplagg en það eru álitamál sem þyrfti að gaumgæfa, svona móralskt séð.
1704704009MemberMittelleggi leiðin varð fyrir valinu. Hægt er að fara tvær aðrar normalleiðir Suðurhrygginn eða Vesturhlíðina. Mitteleggi er hins vegar tæknilega strembnust og talin gefa mesta sjónræna reynslu auk alls klettabröltsins fyrir þá sem finnst það skemmtilegast.
1704704009MemberÉg prófaði 6 þrautir í gær og get alveg sagt að þetta var bara þrælmagnað. Svo var kaffi og Freyjustaur ókeypis í búningatjaldinu. Maður þarf að koma aftur og prófa fleiri þrautir.
1704704009MemberTil að fá sent skírteini þarf að borga árgjald Ísalp að upphæð kr. 3.400.-
1704704009MemberJú mér finnst nú myndin í dag hafa vinninginn. Skarpar fjallsbrúnir, flottir og kaldir litir og tilfinningin fyrir hæð gera hana býsna flotta. Svo er punkturinn yfir i-ð litla fólkið hangandi utan í hlíðinni.
1704704009MemberMyndavélunum má heldur ekki gleyma. Takið nóg af myndum og setjið á vefinn. Setjið þetta á Síður félaga. Margar myndir frá félögum hafa ratað inn á síður undirritaðs að undanförnu og þótt manni þyki gaman að státa af ofboðslega mörgum félagasíðum er ekki þar með sagt að maður ætli að skreyta sig með lánsfjöðrum endalaust.
-Hvet því alla til að taka myndir í ferðum sínum og búa til félagasíður.
1704704009MemberJá sona sona. “Veikum mætti..” Þetta var nú óþarfa lítillæti. En á hinn bóginn finnst mér ekki skaðvænlegt að skipta um dagskrárlið eins og Helgi stingur upp á. Það er síðan stjórnar að taka sameiginlega ákvörðun um hvort réttlætanlegt væri að ýta ferðinni á Þumal e.t.v. aftar á árið.
Að sjálfsögðu verður fróðlegt að sjá hvernig umræðan spinnst um Glerárdalshringinn næstu dagana. Það er einboðið að dagskráin ætti hæglega að geta sveigst að þörfum og kæti félagsmanna hvað þetta áhrærir.
1704704009MemberFyrir utan ársritið má nefna að einnig græða félagsmenn afslátt í verslunum með framvísun skírteins sem eru að verða tilbúin. Þess má líka geta að næsti stjórnarfundur sem verður á morgun mun að hluta til fara í að ákveða skýrari stefnu á því hvað menn græða á því að greiða árgjaldið. Nefna má þætti sem snerta lægri eða ókeypis aðgang á uppákomur og skálagjöld og fleira í þeim dúr.
1704704009MemberAldeilis þrumuflott.
1704704009MemberÞað er verið að búa til skírteinin sem verða í kreditkortastærð og þeim verður dreift fljótlega. Mjög brýnt mál.
1704704009MemberMér fannst seinna kvöldið talsvert betra en það fyrra.
Myndir gærdagsins voru hver annarri betri. Ástralinn átti í manni hvert bein frá því hann birtist á tjaldinu og til enda og hundkvikindið gerði bara heilmikið fyrir myndina. Soul Purpose var hreinlega geggjuð og Sinners sömuleiðis. Útlimalausi klifrarinn var þrælfínn og ísklifurfestivalið í Ouray var flott.
Annars fannst mér Dætur Everest bara hin ágætasta mynd þótt skiptar skoðanir séu um hana.1704704009MemberSýningarmaðurinn hefur fyrirmæli um að stilla hljóðinu í hóf í kvöld þannig að þetta veður ekki vandamál í kvöld.
1704704009MemberHvað djö-fö-höfull er hún haldin seint.
1704704009MemberSkráðir eru nú:
1.Andri
2.Birgir
3.Guðjón
4.Jóhann
5.Eyþór
6.Rúnar
7.Örlygur
8.Tómas
9.Ágúst Þór1704704009MemberNA-hryggurinn eða V-hlíðin. Fer eftir færinu. Stefnum á hrygginn en tökum hlíðina til vara.
Sjö manns eru skráðir að öllu meðtöldu. Vil biðja þá um að senda mér símanúmer, fullt nafn og hvort þið komið á bíl.
orsi@mbl.is eða sms í 8214481
Andri
Birgir
Guðjón
Jóhann
Eyþór
Rúnar
Örlygur1704704009MemberMér fannst vatnsísinn í Múlafjalli öruggur á laugardag. Þilið austast í fjallinu a.m.k.
Ekki spikfeitur þó eins og á góðu dögunum fyrir áramót.
1704704009MemberJá takið ykkur tíma til að leika ykkur með rétt handtök og spotta. Munið bara að nota áttuhnút. Það þarf tvo til. Það segir DV a.mk. bls. 15 í dag.
-
AuthorPosts