Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
1506774169Member
Hef ekki prófað þær sjálfur en vinahjón mín eru með svona og láta vel af. Þau eru hrifin af stærðinni á þeim upp á það að gera að það er hægt að setja þær á bakið þegar svo ber við. Einnig eru þær sæmilega sterkbyggðar. Veit svo ekki meir
1506774169MemberRúnar: það er mjög gott að geta skemmt fjölskyldunni þinni, jákvæðni er dyggð
Ólafur: ég er með riffluð stálkanta touring skíði (asnes rago) og það hefur eflaust aldrei verið borið undir þau (nema kertið) svo að ég þarf varla skinn lengurÞetta er bara sumsé aðferðarfræði sem maður þarf að læra og kaupa réttu græjurnar í.
1506774169Memberhttp://www.youtube.com/watch?v=sFqTeYJbuEs
Þú mátt ekki gleyma grasskíðum. Það er eflaust næsta big thing hér Sunnanlands
1506774169MemberÞað er himinn og haf milli okkar ágætu nylonkaðla í dag og gömlu hampvaðanna sem notaðir voru í Hælavíkur og Hornbjargi. Þá voru þeir kallaðir sigfestar og var tvíþættur kaðall, annar þátturinn grennri en hinn og voru aðskildir. Eins og Eyjamaðurinn lýsir voru þeir alltaf yfirfarnir að vori og grunn yfirferð fyrir sig en erfitt var að sjá hvort að mar væri í vaðnum. Mikið grjótfall var í þessum björgum og varð festin oft fyrir grjótbarningi á syllum án þess að menn tækju eftir því. Samt var mjög fátítt að slys yrðu af þessum búnaði. Helst urðu slys þegar menn urðu fyrir grjóthruni eða tengdu festina vitlaust við festaraugað en svo hét hringurinn á festarhaldinu (sigbeltinu) en það var nokkurskonar heilbelti. Utan á þessu voru menn síðan með svokallaða hvippu sem geymdi eggin og höfðu menn allt að 300 egg í hvippunni í lok hvers sigs sem er eflaust 1/2 þyngd nútímakonu.
Þessir menn hefðu líklega gefið að minnsta kosti einn handlegg fyrir þann búnað sem við höfum í dag í þessum bransa
1506774169MemberMaður spyr nú bara: hver þarf óvini…. :
1506774169MemberÉg er enn að slíta út áratugs gömlu pari af Scarpa sem eru orðnir hræðilegir útlits. En virka þó! Vinur minn og ferðafélagi er að nota einhverja La sportiva hálf stífa skó sem eru rauðir og virðast vera frábærir. Held að þú ættir bara að máta þig áfram eins og kemur fram hér að ofan.
Svo er þetta með innleggin. Skósmiður hér í bæ sem ég talaði við benti mér á að það þarf að skipta um innlegg í mikið notuðum gönguskóm amk 1 skipti á ári. Maður heyrir oft af fólki sem er með 5 ára+ gömul innlegg og þau eru orðin að engu og valda því að menn fá verki undir fæturna eftir langa daga. Generic innleggg hjá skósmið kosta ekki nema svona 1000-1500 krónur og gera gæfumun!
1506774169MemberÉg er ekki að tala um nylon hluti, ég er að tala um harðvörur eins og þær sem voru seldar hér í síðustu viku. Manninum er klárlega í sjálfsvald sett að setja 20 þúsund krónur á ísaxapar og öðrum er algerlega í sjálfsvald sett að kaupa það.
Og hana hana nú1506774169MemberSvo mætti líka leyfa fólki að auglýsa hlutina hér í friði án þess að hinir og þessir séu að fara inn í söluþræðina þeirra og reyna að skemma fyrir. Þetta hefur gerst oftar en einu sinni hér og er óskaplega hvimleitt. Mín skoðun er reyndar sú að það eigi ekki að vera hægt að svara söluþræði, menn eiga bara að hringja eða senda imeil í viðkomandi ef áhugi er fyrir vörunni. Ef einhverjum finnst eitthvað of dýrt á sá hinn sami ekki að kaupa hlutinn!
1506774169MemberLoksins er talað um eitthvað áhugavert hérna
Ég myndi nú segja að þetta sem glaðlegi norðmaðurinn á myndinni er með í eftirdragi væri fulllítið. En það fer lítið fyrir sölu á dráttarsleðum á íslandi og er það miður en einhver uppgangur er í gönguskíðamenningunni þessa dagana. Ég frétti af 120cm löngum púlkum sem fyrirtæki á Dalvík er að selja. Þeir eru með einhverja sleðatúra í Eyjafjörðinn austanverðann sem þeir nota þessa sleða í. Svo væri líka raunhæft fyrir 10-12 manns að taka sig saman og panta frá Rei t.d svona Paris sleða. Ættu ekki að vera of dýrir ef margir eru pantaðir. Annars held ég að þessir sleðar í tenglinum séu þessir frá Dalvík sem ég nefndi. Og þeir gætu alveg miðað við myndina gengið vel upp í svona verkefni.
N.b ég er sjálfur á leið í svona leiðangur um eða eftir páskaSlóð á Paris sleðana. Þeir eru mjög góðir og á góðu verði, úti amk.
http://www.rei.com/product/609482Ég hringdi í Kaldbaksferðir og þeir eru að selja þessa sleða á 9900 krónur og senda hvert á land sem er.
1506774169MemberVirðist vera nokkuð sniðugur búnaður að geta sett alpine bindingar á plötu sem er á hjörum. Væri gaman að finna meiri upplýsingar og specca um þetta en heimasíða þessa fyrirtækis segir fátt. Spurning hvort að þetta er léttara en BCA alpine trekkar?
1506774169MemberGóð ábending. Ég held samt að ef maður er að eyða 5-600 þúsund í fjallaleiðangur skipti 56 þúsund kall litlu máli :o)
1506774169MemberEr ekki rétt til getið hjá mér að það sé 3-4 gráðu munur á láglendi Reykjavíkur og Bláfjöllum? Þá gæti þetta hangið í 0-1°C.
1506774169MemberJón Viðar: var þetta nógu þykkt til að lifa af rigningu helgarinnar? Maður nær smá rennsli á morgun en langar í meira eftir helgi
1506774169MemberNú veit ég ekki nákvæmlega hvaða efni er í þínum skóm en ég er með La Sportiva nepal extreme og ég keypti efni til að bera á þá frá Nikvax sem er fyrir þetta rússkinns efni sem er í þeim. Held reyndar að Fjallakofinn sé kominn með nikvax
1506774169MemberEr með Garmin 60Csx og gæti ekki verið ánægðari með það. Aldrei vesen.
1506774169MemberHmm, ég heyri bara: SKÍÍÍÐÐÐIIII
1506774169MemberEitthvað rámar mig í að stofnandi þessa þráðar hafi farið Hnúkinn á örfáum klukkutímum og það á hlaupum svo að ekki var þetta gert gangandi allavega
1506774169MemberFrábær vídjó. Maður myndi vilja sjá meira svona úr leiðöngrum ísalpfélaga
1506774169MemberSammála síðasta ræðumanni, væri til í að taka í leiðina
1506774169MemberÞú varst samt sigurveigari í þínum aldursflokki
1506774169MemberMaður fer inn slóðann eins og maður sé að fara í Stardal en keyrir bara svolítið lengra inn eftir honum. En jú, það er smá labb
1506774169MemberÉg þakka ítarlegt og gott svar. Ætli maður prófi þetta ekki þrátt fyrir hógvær meðmæli með þessum leiðum
1506774169MemberÞað væri líklega bezt að þeir sem ætla með í þessa ferð meldi sig hér á þessum þræði til að sjá hverjir ætla.
1506774169MemberJújú, þetta var rætt í þaula á fundi um slys sem var í Ísalp salnum í vetur. Mig minnir að þetta hafi verið fólk úr einhverri björgunarsveit á Höfuðborgarsvæðinu. Þetta var í skarðinu milli Móskarðshnúkana.
1506774169MemberÉg kíkti þarna um daginn og skoðaði og allt leit vel út, enda er þetta kannski ekki inni á háskaðasvæðinu. Var sjálfur að spá í að kíkja þarna við tækifæri og prófa þessa nýju eðalboltun
-
AuthorPosts