Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipant
Við Védís fórum í Villingadal á laugardag. Þar er góður ís og nóg af honum.
Um morguninn hittum við landeiganda sem var að fylgjast með rjúpnaskyttum. Við lofuðum að fara varlega og kvöddum hann.
Nema hvað að þegar að við vorum að labba til baka í lok dags (um 17:30) fæ ég hringingu frá lögreglunni í Borgarnesi sem spurði hvort að ekki væri allt í lagið hjá okkur. Þá var landeigandinn farinn að hafa áhyggjur þar sem hann sá ekki til okkar og stutt var í myrkur.
Auðvitað var allt í lagi og við þökkuðum bara fyrir eftirfylgnina. Segiði svo að ekki sé vel fylgst með manni!Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantTöffari.
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipant30. maí 2004
Sigurður Tómas Þórisson
Gunnar Magnússon
Ágúst Þór Gunnlaugsson
Elmar Orri Gunnarsson
Halldóra MagnúsdóttirÁgúst Þór GunnlaugssonParticipantÉg er nú ekki mikill skíðaspegúlant en ætla samt að leggja orð í belg.
Er með Black Diamond Drift skíði eins og Guðjón. Mjög fín í púðrið og virka vel í braut sem og blandað færi. Eru samt í það mýksta ef þú ætlar ekki bara að skíða púður.
Á þeim hef ég Dynafit bindingar og er mjög ánægður með þær.
Kostir
-Léttar
-Þægilegt að stíga í bindingarnar þegar að maður kemst upp á lagið með það. Mér finnst ég þurfa að stíga léttar í bindingarar til að þær smelli fastar en á Fritschi. Mikill kostur ef maður er að stíga í bindingarnar í bratta.Ókostir
-Ís getur safnast undir spennnuna á framstykkinu sem þarf að hreinsa út
-Götin á skónum fyrir bindingarnar eyðast með tímanum.kv. Ági
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantÆtli hann Libecki sé ekki bara á leiðinni til Grænlands. Hann hefur alla vega verið að gera einhverjar mega leiðir þar.
Ági
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantJá sæll og blessaður hvað þetta var gaman. Þetta setur alveg nýjan standard í Bís klifrinu.
Kærar þakkir til allra sem skipulögðu þetta. Það væri gaman að hafa næsta mót aðeins fyrr um veturinn svo að það verði fleiri ferskir Bís-arar sem mæta.
kv. Ági
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantÁgúst Þór GunnlaugssonParticipantJá við settum hann upp við hliðina á endurvarpanum sem er þarna uppi.
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantFór í dag ásamt Arnari Emils og Grétari í norðurvegg Heiðarhorns. Við keyrðum alveg upp að veggnum án þess að hleypa úr og stytti það gönguna umtalsvert þó ekki sé meira sagt. Klifruðum lænu sem er ekki í leiðarvísi, 3 fullar 60 metra spannir upp klettabeltið vinstramegin við Jónsgil. Klifrið var um 3+, nægur ís en stökkur og harður. Kláruðum svo langa snjóbrekku upp á topp og í sólskynið. Skokkuðum á toppinn og svo niður og vorum komnir í bæinn um kaffileitið. Allir norðurveggirnir eru í svakalega góðum aðstæðum.
[attachment=421]leid.JPG[/attachment]
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantIgnorance is bliss!
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantNei hver andsk…
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantLæk!
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantVið Védís fórum í Múlafjall í dag. Veðurspáin sem lofaði björtu og köldu veðri gekk eftir. Rigning og suddi einkenndi daginn en það kom ekki að sök því ennþá er nóg af góðum ís.
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantBændur og búalið geta lumað á góðum upplýsingum um frosna fossa og aðstæður.
Hitti einmitt bóndann í Mörk á rúntinum við Klaustur í síðustu viku og hann bauð mér í bíltúr um landareignina. Hann sýndi mér alskonar stöff sem ég vissi ekki um áður.
Samkvæmt honum er ísinn við Klaustur og Geirland með mesta móti núna. Allir eru velkomnir að koma og klifra og hann hefur bara fjandi gaman af því að fylgjast með, bara ef fólk fer ekki
að tjóna sig.kv. Ági sveitakall
[attachment=358]PC091057–b.jpg[/attachment]
Fossarnir ofan við Mörk við Kirkjubæjarklaustur. Ekki besta mynd í heimi en gefur smá hugmynd um aðstæður.Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantKirkjubæjarklaustur og nágrenni, 7.-9. desember.
Mikill ís og flestar leiðir komnar í mjög góðar aðstæður.
Myndir koma fljótlega.
Ági
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantVel gert!
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantKlifraði Grafarfoss í dag. Fínar aðstæður þó ísinn í Orginalnum hafi verið frekar loftkenndur og smá bras að gera góðan stans eftir fyrstu spönn.
Kíkti líka á turninn í Gufunesi. Það er eins og það sé ekkert rennsli hægra megin miðað við hversu þykkur hann er orðinn vinstra meginn.
Allt að gerast!
[attachment=351]PC051027_w.jpg[/attachment]
Ági
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantKlifraði Hrynjanda í gær og hann er í aðstæðum líkt og Spori. Samt töluvert ennþá af rennandi vatni á bakvið ísskelina.
Við James reyndum að fara í Villingadal í dag. Vegurinn yfir Geldingadraga er ófær og fengum við að kenna á því en við pikkfestum bílinn og honum varð ekki haggað fyrr en hjálp mætti á svæðið. Vegagerðin ætlar ekki að moka veginn fyrr en á sunnudag í fyrsta lagi.
Eftir fýluferð á Dragann fórum við inn í Brynjudal og kíktum inn í Flugugil. Þar var allt fullt af snjó en minna af ís.
Það hefur aðeins bætt í ísinn í Múlafjalli síðan að Robbi setti inn mynd þó enn séu flestar leiðir frekar þunnar.Kv. Ági
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantUpphrópanirnar sem fuku á meðan að klifrinu stóð voru ekki sérlega jákvæðar . Ef horft er framhjá lausa draslinu þá ætti þessi leið að vera algjör klassík miðað við staðsetningu og útlit leiðarinnar. Ég hef samt enga þörf fyrir að fara þessa leið aftur í bráð nema þá kannski að vetri til þegar að fjallið er frosið fast saman. Klifrið var tæpara og tímafrekara en við bjuggumst við og erfiðleikarnir voru eiginlega jafnir alla leið. Annars fundum við allskonar drasl á leiðinni, slinga, prussik, karabínur, fleyga og hnetu.
Setti nokkrar myndir inn hérna.
Ági
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantÁgúst Þór GunnlaugssonParticipantVar á Hrútfjallstindum í dag. Færið var alveg eðal og veðrið eins og best var á kosið. Það er aska yfir öllu og skítugi snjórinn verður fljótt að drullu eftir hádegi. Töluvert er þó af nýjum snjó ofan við 1000 metra sem er þó að bráðna hratt. Lækir í Hafrafelli og Sandfelli eru hreinir og vatnið vel drykkjarhæft. Sveinborg sagði hins vegar að vatnið í Hnútudal sé skítugt.
Veðurspá næstu daga er flott þannig um að gera fyrir fólk að bruna austur að spræna upp tindana.
Kveðja úr Skaftafelli
ÁgiÁgúst Þór GunnlaugssonParticipantÞað mætti svosem kíkja upp í Búhamra með svona kúlu.
Já eða…
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantTalandi um hrun þá hefur hrunið stór stuðull í Stardal í vetur.
Við félagarnir skruppum í dalinn í dag, og tókum eftir hruninu. Þetta er á sama stað og hrundi fyrir nokkrum árum ofan við gönguleiðina.kv. Ági
[img]https://www.isalp.is/media/kunena/attachments/legacy/images/P5050299.JPG[/img]
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantÉg lét sérsníða fyrir mig innlegg hjá Stoð í Hafnarfirði. Það hefur virkað mjög vel og ég sé ekki eftir þeim pening sem fór í þau innlegg.
Ági
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantVerður þetta í kvöld? Er komin tímasetning?
-
AuthorPosts