Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
SmáriParticipant
váááá, þetta er flott mynd
SmáriParticipantFlott framtak. ég mæti!!
kv. Smári
SmáriParticipantÞetta er sorgardagur, því þetta var/er hörkublað og hörkugóð síða.
SmáriParticipanthneturnar hrukku úr en vinurinn hangir enn á
kv. Smári
SmáriParticipantJá þetta slapp betur en á horfðist!
mín útgáfa af sögunni er eitthvað á þá leið:
Ég var staddur með 6 nemendur af íþróttabraut Háskóla Íslands í munkanum en þessir nemendur eru í valnámskeiði í klettaklifri. Ætlunin var að eyða helginni fyrir norðan í klifur í ofanvað og jafnvel leiðslu í boltum.
Þegar við komum byrjuðum við á að koma fyrir línu í toppakkeri í Talíu 5.7. Að því loknu var ætlunin að koma fyrir toppakkeri í Hornið 5.5. Ég leiddi af stað og freistaðist aðeins of langt til hægri þar sem tryggingamöguleikar virtust betri. Setti inn hnetu í flöguna (sem ég komst að seinna að er laus) fannst hún léleg og setti inn aðra rétt fyrir ofan. Þaðan ætlaði ég að hliðra tilbaka í Hornið. Var samt ekki allveg sáttur við þessar hnetur þannig að ég setti inn eina enn í sprungu fyrir ofan flöguna, þessi virtist vera skotheld!!! Þessu næst bað ég nemandann sem tryggði mig að taka inn slaka til að ég gæti sest til að spjalla aðeins við þau. Ég sest og það næsta sem ég veit er að ég er í frjálsu falli, ég bíð eftir að línan taki í en það gerist ekki. Ég lendi á flötum hallandi steini og enda svo á bakinu fyrir neðan hann. fann starx að ökklinn var ekki í lagi en fann hvergi annarstaðar til.
Bað nemendur um að hringja á neyðarlínuna og biðja um hjálp þar sem að það var augljóst að ég færi ekki fótgangandi upp á veg. Vakthafandi læknir sem kom á staðinn og leit á ökklann var ekki lengi að álykta að um brot væri að ræða, læknir á slysadeild var einnig nokkuð viss um að öklinn væri brotinn. Röntgen leiddi hins vegar í ljós að öll bein eru heil. Væntanlega er um slæma tognun eða slitin liðbönd að ræða.
Feillinn liggur væntanlega í því að ég gerði mér ekki grein fyrir því að tvær hnetur sem ég setti í voru milli veggjarins og stórrar flögu sem er laus. Þegar efsta hnetan klikkar dett ég smá vegalengd áður en næsta hneta tekur í en krafturinn sem fallið hefur leyst úr læðingi hefur komið flögunni af stað og tvær næstu hnetur því gangslausar.
Það má með sanni segja að ég hafi verið heppinn að ekki fór verr, þegar maður groundar eftir 7,1 m (sú vegalengd sem rannsóknarlögreglumaður mældi að fallið hafi verið) dettur manni ekki í huga að maður sleppi eins vel og raunin varð, tognaður ökkli eða slitin liðbönd!
Þess má geta að ég er búinn að henda frá mér hækjunum og geng um haltrandi og er staðráðinn í að ná komandi ísklifur og skíðaseasoni.
kv. Smári
SmáriParticipantLandeigandi hefur gefið’ grænt ljós á að setja upp hólf fyrir bílana okkar, þ.e. setja niður nokkra staura og einhvern borða á milli (held að það sé basta lausnin). Er einhver sem býður sig fram í hólfagerð? Svona borði fæst í lífland skilst mér og Ísalp borgar brúsann.
kv. Smári
SmáriParticipantHlöðufell, þar má segja að minn fjallamennsku”ferill” hafi byrjað eftir blauta og kalda nótt á fjallinu.
SmáriParticipantStyð frestun á fundi, ekki hægt að láta Yates koma fýluferð…
SmáriParticipantKiddi þú kemur bara með í flotta ferð á Eyjafjallajökul á laugard. stefnir í flott færi og veður Þar!!
kv. Smári
SmáriParticipanttaktu endilega eitt frá fyrir mig.
kv. Smári
SmáriParticipantÉg hef þann slæma ávana að þegar ég hef ekki hugmynd um hver myndasmiðurinn er (þ.e. þegar ég stel myndum af netinu) þá skrifa ég nafnið á módelinu fremur en að skrifa ekki neitt….
En gaman að því að það hafi einmitt vera Kvale sem tók myndina.
kv. Smári
SmáriParticipantÉg er bara nokkuð hrifinn af G3 skinnunum mínum, hafa dugað vel.
kv. Smári
SmáriParticipantTakk fyrir frábært festival….
þeir sem sátu heima vegna hræðslu um hláku og lítinn ís geta farið að naga sig í handabökin;)
kv. Smári
SmáriParticipantfrystir í kvöld og verður frost fram yfir festival
sjá spá fyrir breiðdalsheiði á:http://vedur.is/vedur/spar/stadaspar/austfirdir/#station=35965
SmáriParticipantHvet alla til ad skrá sig hvort sem menn eru med félaga eda ekki. tad reddast á stadnum.
Ég er t.d. enn án félaga….
Smári
SmáriParticipant1. gr. Um Íslenska alpaklúbbinn og markmið hans
Íslenski alpaklúbburinn er félag áhugamanna um fjallamennsku sem leggur áherslu á sameiningu fjallamanna og vexti fjallamennsku á Íslandi.
Lykilstarfsemi Íslenska alpaklúbbsins felst í að:
– standa fyrir fjölbreyttum viðburðum, svo sem festivölum, myndasýningum, fyrirlestrum og námskeiðum
– halda úti öflugum upplýsingavef sem nýtist til upplýsingamiðlunar og samskipta
– gefa út ársrit og leiðarvísa.Hvað er óskýrt við þetta? Er þetta heftandi? Það stendur hvergi að ekki megi fara í ferðir.
“að standa fyrir fjölbreyttum viðburðum” hlýtur að þurfa að túlka á hverjum tíma. Er stemning fyrir fjallaskíðun þá stendur stjórnin fyrir fjallaskíðaferð! o.s.frv. Ef einhvertíma enginn ís verður fyrir jól verður ekki hægt að hafa jólaklifur nema þá kannski á öðru formi t.d. þurrtólun.
Það heftir frekar komandi stjórnir að vera bundinn að því að fara í ákveðnar ferðir!Það stendur heldur hvergi að ekki megi halda úti skálum ef það verður niðurstaðan
Palli skrifar “Því sem ég er ósammála er t.d. 1. gr. Hversvegna að taka út fullkomna setningu (Markmið félagsins er að efla áhuga manna á fjallamennsku)”
er þetta ekki það sama og:
“Leggur áherslu á sameiningu fjallamanna og vexti (á að vera vöxt) fjallamennsku á Íslandi”vöxtur fjallamennsku verður ekki nema efling áhuga komi til!
Smári
SmáriParticipantÞetta var sett á vefinn í kringum 11 í gærkvöldi (ég veit það vegna þess að ég skrifaði fréttina) tveim vikum fyrir aðalfund eins og lög klúbbsins geri ráð fyrir og það er stjórnin sem kemur með tillöguna og hófst vinna við hana löngu fyrir 10. jan (þ.e. stjórnin hafði borist tillagan fyrir 10 jan).
En upplýstu okkur endilega Palli, hvaða eini hluti breytingatillögunnar er það sem þú ert ósammála. Þá getum við reynt að skíra mál okkar.
kv. Smári
SmáriParticipantSnillingur!!
SmáriParticipantMaður þarf ekkert starfsfólk ef maður býr á Laugarvatni… Gekk á Laugarvatnsfjall, skíðaði niður og konan tók myndir út um eldhúsgluggann.
myndir á http://www.flickr.com/photos/22925172@N03/sets/72157603745570225/
Smári
SmáriParticipantÉg kemst að öllum líkindum á sunnudaginn, ef það hentar.
þú getur náð í mig í síma 8625614
Smári
SmáriParticipantfrábært framtak!
Smári
SmáriParticipanthljómar skemmtilega.
Auglýsi eftir félaga í Spora.
Hægt að ná í mig í síma 8625614
Smári
SmáriParticipantFrábær dagur í Múlanum!
Takk fyrir daginn
SmáriParticipantFimm ísalparar skelltu sér í Bláfjöll á Laugardag í JÓLASKÍÐAIÐKUN þar fundum við eina línu sem var eftir á svæðinu eftir rokið mikla.
Voru skíðaðar tvær ferðir og þótti bara nokkuð gaman.
Smári
SmáriParticipantmá ekki segja utanbrautarskíðun? hvað á að segja í staðin?
Einn alveg að verða ruglaður í íslenskupælingum
-
AuthorPosts