Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
1402734069Member
G3 hafa virkað vel hjá mér.
Þar áður var ég með 50 mm. skinn úr Skátabúðinni svo BD ég get ekki gefið BD skinnunum einkunn.
Ef það virkar ….
1402734069MemberMér hefur þau fundist virka betur undir AT skíðum …
….. síðri undir telemark ….
1402734069MemberPakkinn er seldur.
1402734069MemberÞvert á móti …..
…. bætti við mig búnaði!
Sé ekki alveg þörf á að halda úti mörgum settum af fjallaskíðum þar sem maður er á telemarkinu líka
Hvernig gengur sveiflan hjá þér? Verður þú ekki í fjallinu á Telemarkhelginni í mars?
1402734069MemberErtu á leið uppeftir???
1402734069MemberUpprunavottorðið er nokkuð sem T-P láta fylgja en ef ekki er senda þeir það fyrir eitt orð.
Ef planið er að pikka upp vörurnar í Evrópu útbúa þeir tax-free pappír fyrir smá þóknun sem fer síðan sína leið. Stimplað á leið út úr EB og sent til baka til T-P og þeir skulta summunni inn á kortið.
1402734069MemberÁn þess að hafa prófað það sé ég ekki fyrir mér að Dynafit táin sé góð í telemarkið, hvað þá smíðuð fyrir það.
Ef þú ætlar því að hafa ein-í-öllu skíði til að skíða á líkt og skóna þarftu ntn tá og Dynafit hæl …. en hvar er fjörið í því??? Ein skíðí af hvoru að lágmárki … en að sjálfsögðu fleiri!!!
1402734069MemberEr með par af BD Prophet öxum m. locdown fetlum og Charlet Mozer monopoint brodda.
Fer fyrir gott verð.
Verð þó ekki á svæðinu á fimmtudaginn.
Áhugasamir geta haft samband í 821 3254.
Kv.
Böbbi1402734069MemberFæst líka í Telmark-pyrenees.
http://www.telemark-pyrenees.com/shop/index.php?cPath=1_10_19_306
Einnig liggur Dóri með Scarpa skó í stærð 27 á lausu.
Kv.
Böbbi1402734069MemberÍSALP hefur nú frá fyrstu tíð eignað sér Telemarkhelgina á Akureyri sem hefur verið stærsta samkoma íslenskra útivistarmanna og kvenna.
Sýnir þetta ekki bara svart á hvítu hverjir innan Ísalp hafa verið duglegastir?
Kv.
Böbbies. Alltaf hægt að tölta á fjöll og ganga í hægðum sínum niður … annað að gera það með stæl á skíðum!
1402734069MemberSæll Smári!!
Ætla að leyfa mér að kommentera aðeins …. sem Ólafsfirðingur.
Það er nú vanalegast bara talaðu um Héðinsfjörð. Réttilega talar þú um Ytrárdal sem er hefðbundinn framburður á Ólafsfirði þó dalurinn heiti Ytri-árdalur.
Svo gat ég ekki betur séð en þið væruð á leið niður skálina sem er þar, ekki gilið
Kv.
BöbbiES. Alltaf er nú jafn fallegt þarna fyrir Norðan!!!!
1402734069MemberMæli með Jökulfjörðunum!!! Snjór niður að sjó.
Alltaf nægur snjór á f. Norðan …. Hvalvatnsfjörður er pottþétt snjóakista þetta snemma sumars.
1402734069MemberÞeir fást nýir hjá Vidda í Skíðaþjónustunni á 7.000 krónur ….. og svo nokkur pör í Útilíf á 5.000 kr.
1402734069MemberSpurning hvort að einhver trúi mér?
Snjórinn er allur að koma aftur! Fínasta færi í brautum og flestar þeirra opnar aftur. Starfsmenn búa til snjó sem aldrei fyrr og magnað að sjá hvað snjóframsleiðslukerfið nýtist vel í Pipe-inu og barnabrekkunni.
Dalurinn og gil norðan Norðurbakka fyllast þessa dagana af snjó.
Það verður enginn svikinn af því að koma Norður á skíði
Kv.
Böbbi1402734069MemberVeðurspáin er aldrei betri en fyrir næstu helgi …. hitinn á að fara í 20 stig úr þessum 15 sem við höfum verið að malla í.
Klassaveður. Sól og gott á daginn og síðan kemur hitaskúrinn um kvöldmatarleitið.
Ástæðulaust að eiga græjurnar og nota þær svo ekki!?
Kv.
Böbbi1402734069MemberÞað er nú ekki von að þú hváir!
Þó hafa þeir telemarkarar sem hafa komið Norður á skíði síðustu 2-3 vetur séð mig ansi mikið á svigskíðum. Það atvikaðist nú þannig vegna vinnu um tíma, skellti mér á fullu röri í Skíðagæslu einn vetur. Síðan var bara gaman að rifja upp aftur gamla takta með tilkomu nýrra skíða.
En nú er s.s. búið að endurnýja þelamerkurgírinn að öllu lagi! Nýjir skór og skíði ….
Spurning hvort ég hafi átt að gefa þetta upp f´ra 42 jafnvel
1402734069MemberKaupa sér bara gormalausa bindinga ….. norska Linken!!
1402734069MemberÉg veit að Bassi fer ekki í fjallið án þess að vera með fullan bakpoka af varahlutum í Chili-ana sína ….
….. spurning að kaupa bara nýja bindinga
Kv.
Böbbi1402734069MemberHaldið aftur af ykkur.
Þetta er akkúrat og því miður afskaplega léleg aulýsing!!! Getum ekki látið hvern sem er auglýsa á síðunni.
Kv.
Böbbi1402734069MemberÉg get hugsað mér margar aðrar fleiri myndir sem eiga skilið að eiga heima á forsíðu ÍSALP þessa stundina …….. t.d. telemark “bannerinn”
1402734069MemberÞví miður urðu myndirnar eftir á mínum gamla vinnustað hjá Verði Vátryggingum. Ég tel líklegt að mínu svæði hafi verið eytt og því myndirnar á tölvutæku ekki innan seilingar (en tölvugrömsurum er velkomið að komast inn á mitt gamla svæði ef það er þá til
En nú verður Helgi Borg að fara að gramsa í draslinu og koma með útprentuðu myndirnar sem við merktum inn á um árið góða!!!
Verður kjötsúpa og bjór á festivalinu nú?? Borgarbúar komu með hana norður síðast …….
1402734069MemberFannst þeim þjónustan svona góð eða ???
Team Garðabær ætlar greinilega að taka á því í vetur. Spurning hvort þeir ráði sér ekki stílista í leiðinni??
1402734069MemberSnjórinn klikkar aldrei á Akureyri … eða fyrir Norðan!!!
Þessu til staðfestingar má nefna að Telemarkhelgin hefur ALDREI falli niður í þau ár sem hún hefur verið haldin!!
Sjáumst næsta vetur um miðjan mars!!!!
Kv.
Böbbi1402734069MemberFlott framtak hjá brottfluttum Norðanmönnum sem ætti að vera til þess að við sveitamennirnir sem eftir eru leiðum aðeins meira!
Nenni eiginlega ekki að keyra mikið norður til að leiða boltaðar leiðir þar Jökull!!!
kv.
Böbbi1402734069MemberSíður en svo!
Þyrfti reyndar að fá mér nýja G3 til að geta sett þessa gömlu aftur á Atomic skíðin góðu og nota í drullumall og útköll.
Planið er þó að fjárfesta í Fritschi bindingum til að losa hælinn á svigskíðunum.
Þar sem ég var svo aktívur síðasta vetur er um að gera að fjárfesta í nýjum skíðabúnaði!!
Hvernig koma 7-TM … eða sjuteme út???
Kv.
Böbbi -
AuthorPosts