Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
BjörkParticipant
á svona skó http://www.everest.is/images/gongusk/v860.jpg til sölu. Hafa verið notaðir einu sinni, nr. 37.
Líka eitthvað af eldgömlum ísöxum, en þær ættu kannski frekar að fara á safn.
BjörkParticipantKíktum uppí Bláfjöllin í gær… jarðýtan á fullu og snjónum kyngdi niður.
BjörkParticipantsýnist nú flestir vera sammála í þessu hvað varðar klúbbinn Ísalp! Ísalp er að gera góða hluti líkt og Bjöggi telur upp hér að ofan.
Síðan er þetta einhver umræða um hvað er hardcore og hvað ekki!BjörkParticipantjá það er munur að geta bara hoppað á hjólið og brunað að næsta fossi, svona næstum því. Gott að þú ert að geta dregið einhverja með þér í vitleysuna þarna fyrir vestan. Síðan er það bara Vestfjarðavíkingurinn.
BjörkParticipantÞetta var gott púst fyrir veturinn. Gaman að sjá svona flottar myndasýningar, margt hægt að gera á Íslandinu.
Flott og skemmtilegt ársrit.
Maður bíður bara spenntur eftir vetrinum, þó hann sé nú svona smá kominn hér norðan Vatnajökuls, snjór, rok, hálka og læti.
BjörkParticipantJá þetta snýst náttúrulega fyrst og fremst um að gera gott sjónvarpsefni, sem fólk nennir að horfa á. Þótt þetta sé dálítið bull. Eins og í einu atriðinu þegar hann neyðist til að rífa af sér fötin til að koma í veg fyrir ofkælingu… gert fyrir konurnar.
BjörkParticipantEr það þá ekki bara deep water soloing?
BjörkParticipantgiska á að þetta sé Sædis.
BjörkParticipantJá þetta voru skemmtilegar myndir.
Gaman að sjá hvað sumir (Gadd) virðast vera vel styrktir til að gera alls konar dótarí (vitleysu). Fannst myndin samt stundum smá kjánaleg, “ÞETTA ER SKO ÓGEÐSLEGA HÆTTULEGT ÞETTA SEM VIÐ ERUM AÐ GERA” og nógu oft fengið eitthvað fólk til að segja hvað þeir væru ruglaðir gaurar. En líklega voru þeir bara að reyna að koma því nógu vel til skila af hverju Gadd var að skíta á sig í 2 gr. ís:)Allt fínar myndir engin svona langdregin og leiðinleg.
Skal mæta með reiðufé í kvöld.
BjörkParticipantskabbi tók einhverjar myndir kannski sýnir hann frá.
BjörkParticipanter þetta ekki þessi gaur?!
http://gallery.askur.org/albums/sissi_skessuhorn_0106/017_G.sized.jpg
BjörkParticipantog síðan smá tuð…. það er vonlaust að skoða þennan umræðavef, þ.e. fylgjast með nýjustu póstum. Er mikið mál að breyta þessu þannig að nýjustu póstar færist efst! Hefur alveg örugglega komið áður.
BjörkParticipant…. hún er með svo þykka húfu! Flottar myndir, mikið af ís, gaman.
BjörkParticipantEr hægt að hafa hann svona bleikan?!
http://www.alaskaalpineclub.org/Images/Ice%20Wall%2003-04/Ice23MarEface-1.jpg
BjörkParticipantÉg og Siggi Tommi fórum í dag í Brynjudal og Múlafjall. Nóg af ís.
http://myndir.bjork.ws/isbrynula?page=1
Átta (gráhvít held ég) með grænum miða fannst í Ýring ef einhver á þá má hann fá.
BjörkParticipantVar þarna í gærkvöldi. Fórum út um kl. 21:30 og þá var hliðið læst. Það kom sumarbústaðareigandi rétt á eftir okkur og opnaði fyrir okkur, hann sagði okkur að það væri búið að ákveða að læsa hliðinu kl. 22. Ég skil vel að sumarbústaðareigendur vilji læsa hliðinu, það gerir innbrotsþjófum augljóslega erfiðara fyrir.
Maður getur náttúrulega bara lagt bílnum fyrir utan hliðið og rölt upp að klettunum þá læsist maður ekki inni.BjörkParticipantDanski fjallaklúbburinn bíður einnig uppá tryggingar, hægt að hressa uppá dönskuna…. http://www.danskbjergklub.dk/dbk/forsikring.htm
BjörkParticipantEru 300 manns í Ísalp? Bara að spá.
BjörkParticipantEr þetta svo mikil útgerð?! Farið í þrjá tíma og kennt klifur í tveimur léttustu leiðunum á svæðinu?! Þeir sem kunna að klifra fara á eigin vegum.
BjörkParticipantHae
voru engar myndir teknar af motinu?BjörkParticipantEr búin að vera skoða bækur á amazon fullt af sniðugu og skemmtilegu dóti…
vitiði hvað er nýjasta útgáfan af þessari mountaineering freedom bók. Nýjasta sem ég sá skv google 7ED en fæ alltaf bara upp 5ED á amazon. Er reyndar ekki góð í að leita á þessu.
Annars er ég aðeins búin að lesa í íslensku bókina sem var að koma út “Gengið um óbyggðir” nokkuð skemmtileg bók og alveg helling sem má læra af henni… allavega hjá mér.BjörkParticipantJá það ætti að fara að kalla mynd dagsins… mynd Steppo og kannski líka mynd Andra. Held að þeir deili þessu svona nokkuð jafnt;)
BjörkParticipantPrófaði slíka “brekku” í Danmörku sumarið 95 í 30 stiga hita. Hmm þetta var nú ekkert spes. Þetta er eins og að skíða á strákústum og maður rispast allur ef maður dettur. En kannski sniðugt í snjóleysinu ég skal ekki segja!
-
AuthorPosts