Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
Björk
Participanthæ
heimsótti loksins Valshamar í gær.Tók eftir því að hestarnir eru farnir að nota plastgirðingastaurana í kringum bílastæðið sem klóruprik fyrir góminn í sér. Einn var síðan að japla á bandinu!
Þær hættu sér nú samt ekki inn fyrir girðinguna!
Einn klifrari lenti í því óhappi að tjóna bílinn sinn inneftir, steinn skemmdi olípönnu og þurfti að fá dráttarbíl til að sækja bílinn. Þannig að þið sem eruð á lágum bílum farið varlega.
Annars var rjómablíða uppí Valshamri í gær, hægt að klifra í hotpants og ermalausum bol til allaveg kl. 22 þegar við yfirgáfum svæðið
Björk
Participanthehe kíkti nú við í Raufarhólshelli á laugardaginn og þar stendur á upplýsingaskilti um öryggi áður en haldið er inní hellinn “Verið með hjálm eða þykka húfu” !
Björk
ParticipantÁrni Alfreðsson wrote:
Quote:Þarna er ekkert óskaplega merkilegt að sjá. Það eina sem gerir þetta tilkomumikið er þegar farið er í spotta þarna niður.Ég er sammála þér þarna Árni!
Held að það sé meiri upplifun fyrir ferðamanninn að labba inní marga aðra hella landsins en að upplifa hellaskoðun með þessum hætti.
Strompurinn er náttúrulega ekki sjáanlegur með þessari framkvæmd, sem sést með því að skríða niður í hellinn.
Björk
Participantvá hver er tilbúinn að leggja fjármagn í þetta?
Björk
ParticipantHvað er að frétta?
Björk
ParticipantGlæsilegt, gaman að safna þessu saman á einn stað.
Vonandi verður fólk síðan duglegt að senda inn vídjó.
Björk
ParticipantMér fannst The Asgard Project skemmtilegust og þar á eftir The Swiss Machine.
Ég svaf held ég yfir allri hjólamyndinni, það var líka komið fram yfir miðnætti!Björk
ParticipantGlæsilegt, sófafjallfólkið hefur þá loksins eitthvað til að hlakka til;)
Þetta lítur vel út.
Björk
ParticipantGangi ykkur vel, maður fær vonandi einhverjar fréttir af ykkur.
kv. Björk
Björk
ParticipantMinni áhersla á búningakeppnina? Það eru búningafundir útum allan bæ!
Mótshaldarar þurfa ekki að hafa mikið fyrir búningakeppninni. Telemarkfestivalið er fólkið og fólkið eru búningar
Björk
Participanthæhæ
Töfralausnin er allavega ekki sú að fylgjast bara með heimasíðunni og bíða eftir því að vera boðið með!Ísalp stendur alltaf fyrir viðburðum eins og jólaklifri (sem er einnig kjörinn vetvangur fyrir nýliða að mæta á), myndasýningar, aðalfundur, vídjókvöld, umræðukvöldum og stundum eru líka partý.
Því miður hefur ekkert verið um snjóalög á suðurlandinu og því lítið verið um skíðaferðir. En bendi samt á Telemarkfestivalið sem er komið á dagskránna.
Þeir sem eru hvað virkastir undir merkjum Ísalp eru lítið í þessum hefðbundnu vetrargöngum.Ég segi allavega það virkar langbest að mæta á auglýsta viðburði og kynnast fólkinu þannig. Ef þú hefur gaman af klettaklifri þá er það líka Klifurhúsið og drífa sig í Valshamar og á Hnappavelli þegar tekur að vora.
velkominn í klúbbinn.
kv. Björk
Björk
ParticipantÞað versta við Facebook er að þar týnast umræðurnar/statusarnir. Ég hef mjög oft notað leitina hérna því maður man eftir umræðum um t.d. búnað, ákveðna leið, bætur á fatnað o.s.frv.
þannig að þessar umræður hérna eru oft á tíðum mikilvæg heimild þegar kemur að aðstæðum, leiðum, hvert maður getur leitað upplýsinga og þess háttar. Þetta glatast á Facebook.
Mér finnst ágætt ef Ísalparar hafi þetta í huga þegar þeir pósta upplýsingum um fjallamennsku á Facebook sem nýtast öðrum. (fyrir utan að maður er ekki vinur allra sem stunda fjallamensku á fésinu)
En kannski mætti bæta þessum FB-fídusum á þessa síðu eins og er á svo mörgum síðum þar sem hægt er að deila, líka og hvað það er allt þetta FB-dót.
Björk
ParticipantGetur Búbbi smíðað skaft með hitara?
Björk
ParticipantGott að allt fór vel.
Endilega skrá snjóflóðið á vef veðurstofunnar:
http://www.vedurstofan.is/ofanflod/skraning/
kv. Björk
Björk
ParticipantSveinn Friðrik Sveinsson wrote:
Quote:Leiðinlegt bara hvað Ívar er orðinn þroskaður og rólegur, mér finnst svo gaman að lesa einhverjar flugeldasýningar.Já Ívar er orðinn þroskaður og Ísalp.is er orðinn vettvangur barnaskíðamarkaðar og snjóþotuumræðna!
Björk
Participanthehe…. það ætti að vera mynd af Árna með kústskaft að taka telemarkbeygju með þessari frétt
Björk
Participantþarf samt ekki að gera greinarmun á notkun á tækjum og tólum þegar þú ert í
a. björgunaraðgerð þar sem miðað er við þessa 20 kN þyng og statisk lína notuð og aðallína slitnar.
b. í klifri, þar ertu með dynamíska línu þrædda í gegnum tvista sem eru oft með dynema slinga. Línan tekur upp mesta kraftinn þegar klifrari fellur.
Held að reglan sé aðallega að nota hlutina í það sem þeir eru gerðir fyrir.
Björk
Participantaldrei að vita samt nema að þú finnir kaupanda Eva.
Ég man t.d. eftir því að um daginn var einhver hér var að auglýsa eftir belti sem átti ekki að nota til klifurs heldur til að ganga með hundana
Sissi tekur þú að þér svona mottugerð?
Björk
ParticipantGet kvittað undir það að þetta eru flottar græjur sem Anna er að selja.
Hef einu sinni prófað telemark og það var á þessum skíðum. Hafði gaman af. Skíðin hennar Önnu voru svo fín að þau beygðu bara fyrir mig;) Þannig að kjörið fyrir þá sem langar byrja í telemarkinu.
Björk
ParticipantFlott og skemmtileg vídjó.
Þetta hefur verið góð ferð hjá ykkur þrátt fyrir að aðaltakmarkið hafi gefið ykkur fingurinn.
Manni langar bara á fjöll.
Björk
Participanthei!
Annars væri alveg gaman að heyra í Ísölpurum, hvað var gert um helgina?Var fjölmennt á Hnappavöllum? Frétti að einhverjir hafi farið á Þverártindsegg? Væntanlega einhverjir á Hnjúkinn? Einhverjir fóru í vorskíðun?
Færum facebookstatusa á spjallið
kv. Björk
Björk
ParticipantSkemmtilegt vídjó. Ekkert smá heppin með veður!
Dóri hress í lokinn.
Björk
Participantjá það kom þarna ein kona sem skildi við kallinn sinn og fór að róa, rói – rói. Gott að vita að konur á Banff eru að gera eitthvað meira en að halda í spotta og hvetja gaurana áfram
Mér fannst Azazel, Alone on the wall og Re:Session skemmtilegastar.
Björk
ParticipantFlottar myndir og skemmtilegt kvöld.
Mér fannst fyrsta myndin skemmtilegust, fyndnir gaurar og síðan klettaklifurmyndirnar, þetta sólóklifur!Ég tók samt eftir því að það kom held ég ekki einn kvenmaður fram í öllum þessum myndum. Eru engar konur að gera eitthvað töff sem kemst á Banff?
Hlakka til að sjá myndirnar í kvöld.
Björk
Participantjá það fór dálítið um mig þegar Árni stóð þarna niðri! Ég bakkaði frá gosinu.
-
AuthorPosts