Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
ABParticipant
Sæll Arnar,
Þið ættuð að kíkja í SV-horn Kistufellsins. Þar er hægt að velja ýmsar útfærslur; sú hefðbundna liggur upp snjógil en einnig er hægt að fylgja klettahrygg neðar í fjallinu ef þið viljið prófa slíkt brölt.
Hér geturðu séð myndir frá þessari leið (fyrr í apríl):
http://picasaweb.google.com/andribjarnason/KistufellshryggurApril2009#
Kveðja,
AB
ABParticipantÉg sé að skapbrestirnir erfast með nafninu!
Þetta eru dæmigerð viðbrögð Skarphéðna nútímans, volandi á veraldarvefnum í eymd sinni og vangetu.
Ef þetta samtal hefði átt sér stað 1000 árum fyrr þá ætti ég von á einu stykki Rimmugýgi í höfuð mér svo stæði í heila.
En nei, Skabbi, ég er ekki hræddur við þig eða Petzl ísaxirnar þínar. Hvað þá að ég óttist Sigga og Charlet Moser axirnar hans, sem þó eru skuggalega nærri Rimmugýgi í aldri.
AB
ABParticipantSkemmtilegt!
Verst hvað Skarphéðinn var mikill FÁVITI. Það er ágætt að geta stokkið 12 álnir yfir beljandi fljót en verra að skorta gáfur og skynsemi. Svo var hann líka fokk ljótur! Þeir bræður Njálssynir hefðu mátt hlusta betur á föður sinn og þá hefði farið betur fyrir þeim.
Ætti ég hund myndi ég kalla hann Njál. Svoleiðis hundur myndi örugglega gera allt rétt og hjálpa mér með allar stórar ákvarðanir í lífinu. Hann gæti vissulega verið hárlaus en það yrði ásættanlegur fórnarkostnaður.
Eins og sjá má þá verð mjög æstur yfir Íslendingasögunum enda trúi ég því að þær séu sannar (mun skemmtilegri aflestrar fyrir vikið).
AB
ABParticipantMagnaðar myndir, Bjöggi, eins og alltaf.
AB
ABParticipantFlott helgi hjá ykkur, BTW!
AB
ABParticipantSkab,
Ég minnist þess að Ívar hafi klifrað höftin fyrir ofan Ýring. Þau voru víst erfið.
AB
ABParticipantMargir þeir sem klifra nýjar leiðir á Íslandi í dag gráða þær eftir WI-kerfinu, ekki P-kerfinu. Hins vegar eru flestar „benchmark“ leiðirnar gráðaðar eftir P-kerfinu. Þetta orsakar misræmi.
Ívar er í raun sá sem byrjaði að nota hið eiginlega WI-kerfi og allir gömlu kallarnir urðu voða skeptískir þegar hann klifraði 40 metra leið sem samanstóð af tveimur fríhangandi kertum og veseni og kallaði hana WI6 (leiðin Sexí).
Margir yngri klifrarar hafa tekið þetta til fyrirmyndar.
Pæling:
1. Flestir sem nálgast gráðun út frá WI-kerfinu myndu samþykkja að efsta haftið í Ýringi í Brynjudal sé solid WI5. Yfirleitt mjög nærri lóðréttu (neðri hlutinn yfirhangandi í vissum aðstæðum), nærri 30 metrar af samfelldu klifri og takmarkaða hvíld að fá.
2. Þessi leið er P4+ í P-kerfinu. Ég veit það því mér var tjáð skilmerkilega af reyndum köppum að þetta næði nú ekki 5 gráðu, rétt eftir að ég komst upp á brún, pumpaður í drasl, 19 ára gamall og holdvotur á bak við eyrun:)
Þegar ég fer og klifra leið X og mér finnst hún vera svipuð og Ýringur þá segi ég WI5 af því ég er vanur að hugsa þetta þannig. Þegar Palli endurtekur leið X og finnst hún líkjast Ýringi þá segir hann 4+.Niðurstaða:
Ívar fokkaði þessu öllu upp!
En spauglaust:
Það er nákvæmlega ekkert sem við getum gert. Það er ekki hægt að stjórna því hvort fólk metur ísleiðir útfrá WI eða P. Vaninn er sterkur. Þegar öllu er á botninn hvolft þá skiptir þetta ekki öllu máli. Reynum að halda eins miklu samræmi og við getum þótt það verði aldrei fullkomið.
Það er líka mikilvægt að þeir sem eru leiðandi í sportinu hverju sinni láti ekki misskilda hógværð stjórna gráðun á leiðum. Það er ekkert hættulegt við töluna WI6. Þetta er bara tala á blaði. Ég ætla til dæmis að leyfa mér að segja að WI5+ leiðin þeirra RobboSigg fyrir westan yrði kölluð WI6 af nánast öllum klifrurum sem voru svo óheppnir að fæðast ekki á Íslandi.
Að lokum:
Ég held að Þilið sé alls ekki góð sem benchmark WI5 vegna þess að hún myndast í alls kyns aðstæðum. Ég heyrði einhvern segja að eitt sinn hafi efsta spönnin verið furðulega létt, sennilega bara WI4. Í eina skiptið sem ég hef klifið þessa leið þá var efsta spönnin að lágmarki WI5+ (upp frístandandi kerti yfir á fríhangandi kerti og eitt minna ísþak í viðbót).
Kveðja,
AB
ABParticipantMyndir, myndir, myndir, plííís.
Þetta er svakalega fullorðins!
Kveðja,
AB
ABParticipantFlott hjá ykkur!
AB
ABParticipantUndanfarna viku hef ég ráfað um, stefnu- og eirðarlaus með öllu. Ég byrjaði að nota heróín, missti vinnuna, konan fór frá mér og svo eru ekki einu sinni ísaðstæður.
Ég kenni vefhýsingaraðila isalp.is um þetta og mun fara fram á skaðabætur.
Ef ekki væri fyrir fáránlega flottar klifurmyndir Bjögga þá hefði ég sennilega lagst niður og dáið.
Kveðja,
AB
ABParticipantÉg þakka fyrir skipulagningu og góða stemningu. Óheyrilega fallegt svæði með frábærum klifurmöguleikum. Ég minnist þess ekki að hafa átt betri ísklifurdag. Fjórtán klukkustundir í aftursæti Hilux voru vel ásættanlegur fórnarkostnaður fyrir svona upplifun.
Og kjötsúpan var afbragð.
Kveðja,
AB
ABParticipantKalli er eitthvað ryðgaður. Það er donkið sem á að flútta við kúrsann. Ég veit ekki hvar þetta myndi enda ef það væri öfugt.
Svo mætti reyna að treina fram-skóinn með frerabylgjum (passa að stilla á <1,5).
Ef allt klikkar þá er bara að samþætta tásveifarbogan og/eða ristarbandsbogan við fjórskipta hælspennukrókinn (er þetta ekki örugglega KCM3X týpan?).
Þú reddar þessu.
AB
ABParticipantJá, eða meira svona hjólaskór sem breyttust í hálfgildings mixskó með ágætum árangri. Svo er spandexið grunnbúnaður allra mixara með snefil af sjálfsvirðingu.
Klikkaðar myndir, Gummi. Og ekki bara af því að þær eru af mér:).
AB
ABParticipantRobbs, H.F.F. er M4. Upphaflega skráð sem M5 í desember, en þá var enginn ís í leiðinni utan smá skænis efst.
Gott og vel:
H.F.F. – M4.
Hagsmunagæslan – M5.
Ólympíska félagið – M7.
Síamstvíburinn – M7+.
Himinn og haf – M8.
Ég held reyndar að við lendum í vandræðum ef Himinn og haf fær M8. Of mikil samþjöppun á gráðum. Ófarna leiðin mín er töluvert erfiðari en Ól félagið (M7). Ég hef ekki klifrað Síamstvíburann (M7+) en mér finnst sennilegt að ófarna leiðin sé erfiðari (sammála, Robbi?). Ófarna leiðin er samt léttari en Himinn og haf (M8).
Hmm…
Kveðja,
AB
ABParticipantMínar pælingar:
Helvítis fokking fokk – M4.
Hagmunagæslan – M5 (M6 ef kertið vantar).
Ólympíska félagið – M7.
Nýja leiðin hans Robba er M8 að algjöru lágmarki, mjög líklega erfiðari, Robbi minntist á að honum hafi liðið eins og í 5.12 klifri. Ég giska á M9, byggt á engu nema tilfinningu og trú á Robba.
Nýja leiðin mín, ófarna, kannski M7+/M8. Tilfinningin segir líklega gráðunni erfiðari en Ól félagið. Figure-of-four nauðsynlegt og erfitt krúx í endann.
Síamstvíburinn – Þú veist það sennilega best sjálfur. Guðjóni og Robba fannst hún og Ól félagið svipaðar, held ég. Væntanlega M7.
Það sem er best er að nú eru leiðir í gilinu við flestra hæfi og nóg að taka með línu, tvista og fáeinar ísskrúfur til að eiga góðan dag rétt utan við borgina. Gaman gaman.
AB
ABParticipantNei, vúps, ég var í vitlausum karakter…
Svaka flottur dagur hjá ykkur! Hlakka til að sjá myndir; ég átta mig ekki alveg á hvar þetta er.
Kveðja,
AB
ABParticipantJá, HAHA, ég er löngu búinn að klifra allar þessar leiðir! Ég man að það var yndilegur dagur. O, sei sei. Ég nennti nú ekki að skrá þetta á sínum tíma. O, jæja, en vonandi skemmtuð þið ykkur vel.
P.S.
Leiðirnar heita Kasper, Jesper og Jónatan og gráðast allar WI3+. Þið hafið bara verið eitthvað þungir á ykkur, þetta smáræði nær aldrei 5. gráðu. Þið þurfið bara að æfa meira.
ABParticipantSkemmtilegt ferðalag. Gaman að sjá myndir.
Kveðja,
AB
ABParticipantÞetta eru mjög glæsilegar myndir. Meira, meira!
AB
ABParticipantJæja, það er víst nóg framboð af myndum. Svona á þetta að vera.
Hér eru myndir úr nokkrum ferðum í Tvíburagil í janúar og febrúar:
http://picasaweb.google.co.uk/andribjarnason/TviburagilIJanuarOgFebruar#
Kveðja,
AB
ABParticipantHaraldur. Þú sem lærifaðir minn í gegnum árin veist að ég geri ekkert nema hafa örugga vitneskju um að gjörðir mínar séu skrásettar og birtar almenningi. I´m in it for the fame.
Freysi er eins; hann ætlaði varla að hafa sig af stað í Ólympíska félagið í gær þar sem enginn ljósmyndari var á svæðinu.
Kveðja,
Glory hunter
ABParticipantÉg gleymdi að minnast á að Freysi kláraði Ólympíska félagið í gær.
Þá var fagnað.
AB
ABParticipantFrábært framtak hjá ykkur, Siggi og Robbi. Þið eruð að vinna nauðsynlega en vanþakkláta vinnu.
Ég hef ekki margt um gráðurnar að segja. Ef eitthvað er að marka töflur sem bera saman erfiðleika kletta- og mixleiða þá myndi ég halda að Ólympíska félagið sé örugglega M7. Mér finnst erfiðleikarnir í þeirri leið samsvara erfiðri 5.10 klettaleið. Drög að sjálfsmorði er erfiðari og er þá kannski M8.
Hver veit?
Eitt er víst: Okkur er mun hættara við því að undirgráða en ofgráða. Reynslan úr ísklifrinu sýnir það.
Kveðja,
AB
ABParticipantFrábærar myndir, Gummi!
Við Freysi boltuðum Helvítis fokking fokk fyrir nokkru.
Við Sissi klifruðum þessa leið á annan í jólum og þá var nánast enginn ís á svæðinu. Við gátum tryggt í íslausar sprungur neðst í leiðinni. Þegar ég kom aftur á svæðið í janúar þá voru sprungurnar ísfylltar og ekki gerlegt að tryggja með dóti.
Við Freysi ákváðum þá að bolta leiðina. Sama dag gerði ég tilraun til að klifra nýtt afbrigði af leiðinni, beint yfir vænt þak sem farið er hægra megin við þegar H.F.F. er klifruð. Það hafðist ekki í þeirri tilraun. Við ætluðum að klára þá leið áður en boltunin yrði opinber. Svo kom hláka…
Upprunalega Helvítis fokking fokk er töluvert auðveldari þegar ís er neðst í leiðinni, á að giska M4. Leiðin er vel boltuð og því kjörin sem fyrsta mixleið fyrir byrjendur. Skemmtileg leið – njótið!
AB
ABParticipantÚff, skemmtileg leið!
Flott lína og vel klifrað.
Kveðja,
AB
-
AuthorPosts