Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
AB
ParticipantGóður póstur, Óli.
Svo er það Brunnhorn sem er ansi tignarlegt. Hefur einhver klipið í það?
Hér er mynd frá Steppo: http://gallery.askur.org/v/stefank/album327/album89/DSC00460_001.jpg.html
AB
AB
ParticipantVið Unnur Bryndís klifruðum tvær leiðir þarna fyrir skemmstu. Það var smá aska á sumum gripum og syllum en ekkert sem truflaði klifrið að ráði. Fínasta boltun og góðar leiðir.
AB
AB
ParticipantMjög nett myndband, Valdi!
AB
AB
ParticipantFlott leið!
AB
ParticipantMjög flottar og skemmtilegar myndir.
AB
AB
ParticipantFlott ferðalag og magnaðar myndir.
AB
AB
ParticipantÍ góðu lagi mín vegna. Freysi boltaði H.F.F. með mér og ég á ekki von á öðru en að honum lítist líka vel á þetta.
Kveðja,
AB
AB
ParticipantÞað þyrfti helst að færa efsta boltann í Verkalýðsfélaginu enda varla hægt að klippa í hann nema að hafa sigið í leiðina og komið fyrir löngum tvisti. Önnur og kannski betri lausn væri að bæta við einum bolta neðan við þann efsta.
Ég get víst ekki fjarboltað frá Danmörku og því má einhver boltunarvanur klifrari gjarnan taka þetta að sér.
Var þetta kannski ekkert að trufla þig, Siggi?
Kveðja,
AB
AB
ParticipantFlott hjá ykkur! Hlakka til að sjá myndir.
AB
AB
ParticipantMarianne lenti í 8. sæti. Ótrúlegur árangur, til hamingju.
Kveðja,
AB
AB
ParticipantJæja, segið svo að góðærið hafi ekki fært okkur eitthvað nytsamlegt.
Krepputorg sér um sína.
AB
AB
ParticipantSkemmtilegar myndir hjá ykkur báðum.
Við Sissi litum við í Búahömrum með það í huga að klifra Nálaraugað. Neðan frá vegi sýndist okkur neðri spönnin vera alveg íslaus. Tvíburagil virtist ísmikið. Sáum ekki 55° N, en hún er pottþétt í aðstæðum.
Bíl snúið við og ekið undir Grafarfoss. Þar voru Steppo og Stebbi Kalli að ljúka við fossinn og við fórum svo á eftir. Fínar aðstæður, þó dálítið blautt á köflum.
AB
AB
ParticipantÉg má líka til með að hrósa ykkur fyrir að deila þessari reynslusögu með klifursamfélaginu. Sömuleiðis finnst mér frábært hjá ykkur að ráðast í svona ævintýraklifur. Það eru alltof fáir sem stunda íslenskt „alpaklifur.“
Það er líklega rétt hjá þér að margt smátt hafi leitt til þessara vandræða. Þetta með þyngdina á pokanum er erfitt viðfangsefni: Ef þú tekur lítið dót þá ertu léttari, fljótari að ganga upp að leiðinni og klifra hana. Það munar um hvert kíló. Hins vegar ertu verr settur ef eitthvað kemur upp á. Þar sem þið voruð fjórir á ferð ætti þyngdin ekki að hafa verið ofvaxið vandamál — þið hljótið að hafa deilt dótinu á milli ykkar.
Miðað við frásögnina þá virðast mér viðbrögð ykkar mjög þroskuð og yfirveguð — ekki síst að hafa kallað til aðstoð tímanlega.
Ég tek undir með Sigga og Sissa: Climb on! Þetta er fínasta innistæða í reynslubankann.
Þetta fjall er auðvitað magnað og ég veit ekki til þess að neinn hafi klifrað þarna að ráði. Einhver sem veit betur?
Eigið þið myndir frá þessum degi?
Kveðja,
AB
AB
ParticipantÞetta verður aldrei fyrirgefið, Steppo. Hvar er nú allt talið um bestu ísaxir í heimi?
Sár kveðja,
Fyrrverandi axabróðir
AB
ParticipantRobbi og Íbbi, þetta er í raun ykkar vandamál. Sissi er gefinn fyrir grín í fjórðu víddinni, sem er fyrirbæri sem þið kunnið augljóslega engin skil á. Svona er þetta alltaf – frumkvöðlarnir eru barðir niður af skilningssljóum almúganum.
Og ég sem hélt að allir vissu allt um Stóra-Þórisjökulsklúðrið.
Kv,
AB
AB
ParticipantFrábært, Valdi. Ótrúlega gaman að sjá myndband af íslensku klifri. Voldemort er glæsileg leið.
Hlakka til að sjá meira.
Kveðja,
AB
AB
ParticipantAB
ParticipantSæll Stefán,
Svo vill til að konan mín er sjúkraþjálfari í fæðingarorlofi. Hún mælir með Ara eða Atla í Gáska, Mjódd. S: 5689009.
Kveðja,
AB
AB
ParticipantNú getur maður loks hlunkast í Pöstina.
Þökk sé ykkur – frábært framtak.
Kveðja,
AB
AB
ParticipantSagan segir að þetta sé hálfkláruð stigaklifurleið eftir Gvend dúllara.
AB
AB
ParticipantVel af sér vikið. Frábærar endurbætur á einni glæsilegustu klifurleið landsins.
AB
P.S.
Ég klifraði leiðina með Óla Ragga og Eyþóri.
AB
ParticipantJú, Björk, í gær handrotaði ég tvo túrista sem ætluðu í leiðina á undan mér og faldi þá svo í háa grasinu undir leiðinni. Held að þeir hafi verið Hollendingar eða Belgar.
AB
AB
ParticipantÞað gleður mig ósegjanlega hve margir eru ánægðir með Svarta turninn.
Við Freysi klifum Rauða turninn síðasta laugardag. Gott hjá Sigga og Skabba að endurbolta. Þarft verk. Og mikið óskaplega er neðri spönnin alltaf jafn erfið! Svona eru þessar blessuðu 5.9-ur; svo miklu erfiðari en 5.8-ur en lítið auðveldari en 5.10-ur.
Kveðja,
AB
AB
ParticipantSími formannsins.
Kveðja,
AB
AB
ParticipantNei andskotinn, Sissi. Nú hefurðu uppljóstrað einu skemmtilegasta leyndarmáli fjallabransans, þ.e. merkingu K.S.A.S.M. Nú þurfum við að bíða þar til einhver snilld hrekkur af vörum Óla Ragga – og hann býr í Svíþjóð!
Það er gaman að ykkur líkar leiðin. Finnst ykkur spannirnar hæfilega gráðaðar?
Kveðja,
AB
-
AuthorPosts