Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
SkabbiParticipant
Hæ
Palli Sveins er sá sem þekkir þetta svæði líklega best. Talaðu við hann, ég er viss um að hann er til í að gefa góð ráð varðandi frekari þróun á svæðinu.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Margar mjög skemmtilegar myndir í þessari seríu. Takk fyrir að pósta þessu Gummi.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Það var alveg ótrúlegt að sjá þanna fjölda gamalla Ísalpara og Fjallamanna sem mættu í gærkvöldi til að votta skálanum og þeim sem stóðu að þessari endurbyggingu virðingu sína. Meðalaldurinn á samkomunni hefur líklega verið nálægt sextugu. Loksins fékk maður að sjá þessa kappa í eigin persónu eftir að hafa lesið um ævintýri þeirra í gömlum ársitum.
Það er alveg á hreinu að samheldni og virðing eldri kynslóðanna fyrir skálanum og sögu hans er meiri en margur áttar sig á. Vonandi eykur þessi stórmerkilega framkvæmd áhuga nýrra kynslóða á skálanum, svæðinu og fjallamennsku yfir höfuð. Þeir sem stóðu að endurbyggingunni, skipulagningu hennar og framkvæmd eiga gríðarlegar þakkir skildar. Gutti yfirsmiður var heiðraður sérstaklega í gærkvöldi, enda hefur hann, að öðrum ólöstuðum, verið þungamiðjan í þessari framkvæmd.
Og Hardcore H þarf ekki að skammast sín lengi fyrir að hafa ekki lyft litlafingri á meðan þessari framkvæms stóð, hann getur unnið það allt upp þegar Bratti verður fluttur til byggða .
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Þeir virðast týna tölunni nokkuð um þessar mundir, stóru nöfnin í klifurheiminum. Í fyrradag varð klifrarinn, rithöfundurinn og verkfræðingurinn Craig Luebben fyrir íshruni í North Cascade fjöllunum og lést.
Sjálfur á ég lesefni eftir Luebben sem ég fletti reglulega í gegnum, mér til ánægju og yndisauka.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantSnillingur!
SkabbiParticipantHæ
Til að svara spurningu minni benti formaður Klifurfélgs Reykjavíkur mér á eftirfarandi frétt á heimasíðu Klifurhússins:
Hjalti Rafn Guðmundsson skrifaði:
Quote:Pöstin undir Eyjafjöllum.Pöstin er klettur norðan megin við þjóðveginn í landi Hvamms undir Eyjafjöllum. Þar hefur verið klifrað frá því um það bil 1989 og voru þar þrjár boltaðar leiðir sem Stebbi Steinar, Bjössi og Árni Gunnar gerðu 1990 og 1991. Leiðirnar voru Perestrojka, Geirvartan og Langi seli, allar 5.10. Boltunin var í anda þess tíma þegar þær voru gerðar. Þá var farið sparlega með bolta því þeir voru handboraðir og sumarhýran rétt dugði fyrir tíu fimmtán augum og boltum. Því var oft á tíðum langt á milli bolta og þar sem var möguleiki að berja inn fleyg eða setja hnetu í skorning var það gert. Því voru bara þrír boltar í Geirvörtunni, 20 metra leið og fyrsti bolti í átta metra hæð. Langi seli var lengi vel bara boltaður fyrstu tíu metrana og lína með lykkjum fyrir tvista látin hanga úr akkerinu. Perestrojka þótti ansi runní. Þangað til núna.
Núna eru komnar átta boltaðar leiðir í klettinn og von á fleirum. Bæði hafa upprunalegu þrjár boltuðu leiðirnar verið endurboltaðar með nútíma búnaði og góðum akkerum. Og nýjum hefur verið bætt við þar sem hafði áður verið tryggt með fleygum og dóti eða klifrað hafði verið í ofanvað.
Leiðirnar eru allt að 25 metra langar og í mjög skemmtilegu bergi. Það tekur um einn og hálfan klukkutíma að komast í Pöstina frá Reykjavík og því alveg hægt að bruna eftir vinnu. Klettarnir eru rétt austan við bæinn Hvamm (bæinn með bröttu grasbrekkunni og furutrjánum fyrir ofan bæjarhúsin). Beygt er inn afleggjarann að Hvammi og svo lagt á slóða sem liggur nær alveg að leiðunum.
Leiðirnar heita frá klifrara vinstri talið til hægri (horft er í norður):
Svarta leiðin 5.10 ca. 18 m.
Perestrojka 5.10 ca. 18 m.
Prins póló 5.10 ca. 20 m. Fyrstu tveir boltar sameiginlegir næstu leið til hægri.
Geirvartan 5.10 ca. 25 m.
Sóley 5.8 ca. 25 m.
Gleym-mér-ei 5.6 ca. 20 m.
Langi seli 5.10 ca. 25 m.Ein stök leið í klettinum beint á móti stærri klettinum:
Heyvagninn á horninu 5.6 ca 10 m.Leiðirnar hafa verið boltaðar, endurboltaðar og hreinsaðar af Stebba Steinari, Kristínu Mörthu og Hjalta Rafni í júlí 2009.Bóndinn á Hvammi hefur gefið klifrurum góðfúslegt leyfi til þess að klifra í klettunum að því gefnu að umgengni verði góð.
Prýðilegt framtak hér á ferð. Hægt er að nálgast myndir af leiðunum á heimasíðu Klifurhússin.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Takk fyrir daginn Palli.
Svarti Turninn olli engum vonbrigðum, prýðileg skemmtun. Fórum okkur að engu óðslega við klifrið, vorum rétt um tvo tíma að klára.
Tek aftur að ofan fyrir piltunum sem nenntu að hreinsa leiðina og bolta.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantJá, þetta er skrýtinn heimur.
Michael Reardon var annar frægur sólóisti. Hann lést í fyrra þegar honum skolaði á haf út við Írlandsstrendur. Hann var að pósa fyrir myndatöku eftir vel heppnað sólóklifur í sjávarhömrunum.
Svo kaldhæðið að það er næstum því fyndið. Samt ekki…
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Þetta er kúl strákar. Eins og Siggi sagði þá (b)röltum við aðeins um svæðið og töldum að þar rúmast líklega nokkrar leiðir í viðbót.
Ég á allavega hot date í Turnunum Tveim á morgun, læt vita um stemminguna eftirá.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Það fór svo að við byrjuðum helgina á því að keyra inn í Vatnsdal og kíkja á leiðirnar í Skinnhúfuklettum. Stórskemmtilegt svæði þó lítið sé og trúlega vannýtt.
Við fórum:
“Hilti-Brand” (5. – snúin í byrjun og skítlétt að ofan, pínu ójöfn en sæmileg leið.
“Erfiðasta 5.5 í heimi” (5.9) – Stórskemmtileg slab leið, vel boltuð og löðrandi góð í alla staði.
“Pálsleið” (5.10a) – Önnur perla, létt yfirhangandi á kafla á góðum tökum. Gamlir boltar í bland við nýja sem er pínu spes, væri líklega ráð að fjarlægja þá elstu.
Daginn eftir keyrðum við í Munkann. Ofan í gilinu var rjómablíða eins og svo oft áður. Í hitunum undanfarna daga hafði reyndar áin vaxið verulega, var kolmórauð, ófrýnileg og hávær eftir því.
Eitt af því sem gerir Munkann að skemmtilegu svæði er ágætis safn af hágæða leiðum í léttari kantinum. Talía (5.6), UV (5.7), Sófus (5., Stuð fyrir stutta (5.9), Bláa Ullin (5.9), Stóru mistökin (5.9) og Undir Brúnni (5.9). Sú síðastnefnda er reyndar albesta 5.nía á landinu að mínu mati. Hinar reyndar allar stórfínar.
Við klifruðum í Munkaþverárgili seinnipart laugardags og frá hádegi fram að kaffi á sunnudag í glaðasólskini og steikjandi hita. Urðum ekki vör við mannaferðir í gilinu. Ég hirti tvist úr leiðinni “Bláa Ullin”, ef e-r saknar hans má sá hinn sami hafa samband.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Þetta eru sannarlega ömurlegar fréttir. Fær mann óneitanlega til að hugsa aðeins um hvað það er sem dregur mann upp í fjöllin aftur og aftur. Það hangir meira á spýtunni en eintómt grín og glens.
Ég samhryggist þér í þessu. Ef það má vera e-r huggun harmi gegn þá hljómar eins og vinur þinn haf fengið meira út úr sínu 21 ári en margur sófasekkurinn á heilli mannsævi.
Skabbi
SkabbiParticipantSkarphéðinn Halldórsson skrifaði:
Quote:HæÉg bendi á þann möguleika að skrifa grein ef menn vilja koma myndum og texta á framfæri. Svona nokk endist talsvert betur þar en hér á síðum spjallsins.
Greinar þurfa allsekki að vera heisteypt meistarastykki í þremur þáttum, þær eru líka kjörin vettvangur fyrir stuttar ferðasögur, td af skíðaferðum norður í land þar sem skíðað var á stuttbuxum og hlýrabolum, eða bara til að geyma nokkrar vel valdar myndir.
Allez!
Skabbi
Hæ aftur
Það kom víst í ljós að greinaskrif félaga hafa ekki verið virkjuð að fullu ennþá, þannig að þeir sem vilja skrifa greinar eða setja inn myndir verða að bíða um sinn. Vert er að biðjast velvirðingar á því. Gengið verður í að klára það mál hið fyrsta.
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Andesfjöllin eru alltaf á langtíma To-do listanum, þegar maður á pening og tíma. Ég keypti í fyrra helvíti flotta bók um Cordillera Blanca fjöllin í Perú og langar óskaplega að koma mér þangað. Fínt að vita af þér í álfunni þegar maður lætur loksins af því verða.
Það væri gaman að heyra frá þér síðar, sjá hvernig gengur.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Ég bendi á þann möguleika að skrifa grein ef menn vilja koma myndum og texta á framfæri. Svona nokk endist talsvert betur þar en hér á síðum spjallsins.
Greinar þurfa allsekki að vera heisteypt meistarastykki í þremur þáttum, þær eru líka kjörin vettvangur fyrir stuttar ferðasögur, td af skíðaferðum norður í land þar sem skíðað var á stuttbuxum og hlýrabolum, eða bara til að geyma nokkrar vel valdar myndir.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Þetta er e-ð cookie vesen. Það er hægt að komast í kringum það með þessu:
Skarphéðinn Halldórsson skrifaði:
Quote:HæÞað hefur verið e-ð pikkles með heimsvæðið, sumir komast inn á það en aðrir ekki. Verið er að vinna í að laga þetta en í millitíðinni er hægt að gera eftirfarandi:
Í vafranum þínum þarftu að fara í Tools (eða e-ð álíka, fer eftir vafra) -> delete cache eða temporaty internet files, og delete cookies.
Virkaði hjá mér í Firefox og Internet Explorer
Skabbi
prófaðu þetta
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Það er full ástæða til þess að hvetja fólk til að mæta í kvöld. Þetta er stórmerkilegur náungi, verður eflaust hörkusjóv hjá honum. Það er komin frétt efst á síðuna með frekari upplýsingum um kauða.
Svo ekki sé nú minnst á grillið!
Skabbi
SkabbiParticipantHörður Halldórsson skrifaði:
Quote:Ég og félagi minn fórum um daginn og skemmtum okkur hrikalega vel. Er leiðarvísirinn ekki enn til hérna á Ísalp netinu, það er mjög gott að hafa hann með í fyrsta sinni.Kv
HöddiHæ
Það er unnið að því hörðum höndum að koma leiðarvísamálum í skikkanlegt horf. Að sjálfsögðu eiga allir leiðarvísar klúbbsins að vera aðgengilegir félögum hér á vefnum.
Í millitíðinni geta menn nálgast öppdeitaðan leiðarvísi að Stardal hér.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Þetta var ekki illa meint. Gangi ykkur vel, þú lætur vonandi vita og hendir inn myndum ef Kerling Nordwand fellur.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantHörður Halldórsson skrifaði:
Quote:Takk fyrirÞannig að það má ætla að þetta sé ágætir hnetuleið fyrir tvo (vangaveltuspurning)
Hæ
Bara fyrir forvitnissakir, hvað áttu við með hnetuleið fyrir tvo?
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Það hefur verið e-ð pikkles með heimsvæðið, sumir komast inn á það en aðrir ekki. Verið er að vinna í að laga þetta en í millitíðinni er hægt að gera eftirfarandi:
Í vafranum þínum þarftu að fara í Tools (eða e-ð álíka, fer eftir vafra) -> delete cache eða temporaty internet files, og delete cookies.
Virkaði hjá mér í Firefox og Internet Explorer
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Þetta er einmitt ætlað fólki sem hefur lítið eða ekkert klifrað í dóti. Við setjum upp topptryggingar, þetta er kjörinn vettvangur til að læra þá forboðnu list.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Þetta með kennitölurnar á að sjálfsögðu ekki að vera svona, við erum að vinna í því að fá þetta rétt.
Ég hvet fólk eindregið til að koma með fleiri ábendingar um það sem betur má fara.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantTil hamingju Ísalp með nýja vefinn!
Það hefur hópur fólks lagst á árarnar til að koma þessum vef í loftið. Að öðrum ólöstuðum hafa þeir Gulli go Óli, nýráðnir vefstjórar klúbbsins lagt gríðarlega vinnu í gripinn.
Eins og títt er með nýja vefi sem þessa eru ýmsir vankantar á vefnum enn sem komið er, en unnið er að því að snyrta og snurfusa svo að allt komi rétt út og verði þægilegt í notkun.
Góða skemmtun!
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantFáránlega töff vídjó!
Ég var fyrir norðan um helgina, það er rugl mikill snjór í fjöllunum í Eyjafirði ennþá.
Yezzmmm….
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Freindinn hans Steve House er ennþá í Tjaldinu ef vil ná í hann….
Skabbi
-
AuthorPosts