Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
SkabbiParticipant
Glæsilegur dagur á fjöllum!
Þú ert orðinn svo gæjalegur með þetta rauð skegg Robbi, hvernig væri að skella in prófíl mynd? Ég segi þetta nú bara vegna þess að ég sakna þín svo mikið að ég vill fá myndir af þér plasteraðar útum allt spjallborð.
Skála líka fyrir þér í pottinum um helgina!
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Ef einhvern vantar far austur eftir vinnu á morgun (föstudag) þá er laust sæti með okkur Gulla og Hrönn í Kótelettunni.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Súrt að námskeiðið skuli lenda á þessum óheppilega tíma.
Ég fór ísrúnt inn í Hvalfjörð í gær. Grafarfossinn leit ágætlega út úr fjarlægð. Lítill ís í Búahömrum, nema einna helst í Tvíburagili. Eilífsdalur mjög þurr, Einfarinn örugglega inni, kannski Tjaldsúlur en Þilið átti langt í land. Oríon var heillegur að sjá, allavega frá veginum. Múlafjall mjög þurrt, Stígandi þunnir að sjá og neðsta haftið í Rísanda íslaust með öllu. Hugsanlega heillegar línur í Leikfangalandi. Sáralítið heillegt af öðrum leiðum, líklega sökum þurrka og snjóleysis.
Enduðum í Brynjudal, n.t.t. í Þverá fyrir ofan bæinn Þrándarstaði. Neðarlega frýs áin á nokkrum stöðum, bauð upp á skemmtilegar 20-30 metra spannir, WI 3-4. Enn ofar í gilinu eru fleiri stuttar og þægilegar spannir. Giska á að þetta sé það sem þú ert að leita að? Fórum ekkert inn í Kjós, Spori hefur örugglega verið góður í gær an hefur eflaust safnað miklum snjó í dag og nótt.
Eníhú, góða skemmtun um helgina, ég skal skála fyrir þér í pottinum…
Skabbi
SkabbiParticipantQuote:…we realised that the only tribute we’d paid to the risk was the loss of a complete set of camming devices, some nuts, a thermos of ginseng tea which, buried beneath three or four meters of ice, we’ll only be able to drink in late spring. Who knows whether it’ll still be hot?!Snilld!
Já, kertin geta verið varasöm. Fyrr í vetur hrundi risadrjólinn “The Fang” í Colorado með farþega. Sá var ekki eins heppinn og klifrarinn í sögunni að ofan en lifði þó. Sjá hér.
Sjáumst á festivalinu!
Skabbi
SkabbiParticipantSiggi
Getur verið að netfangið (sigurdurvj08@u.is) þitt sé vitlaust skráð hérna? Reyndi að senda þér póst en fékk hann í hausinn aftur.
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Ég bauð Jeremy með okkur Hrönn í Haukdalinn um síðustu helgi. Hann er sterkur klifrari með mikla reynslu og öll öryggismál á tæru. Prýðilegur félagsskapur í þokkabót. Ég ætla að skjótast með hann upp í hvalfjörð á morgun ef e-r hafa áhuga. Hann fer af landi brott á föstudaginn en vill gjarnan komast í meira klifur á fimmtudaginn ef hægt er. Ef e-n vantar klifurfélaga í blíðunni næstu daga er um að gera að skjóta pósti á kallinn.
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Var í Haukadalnum um helgina í öldungis frábæru veðri og skyggni. Ísmagn var þokkalegt, þó var sýnilega minnst í Skálagili. Töluverður ís var sjáanlegur í Stekkjargili og Bæjargili. Freyr, voruð þið í Stekkjargilinu? Við fórum línur utan þessara hefðbundnu gilja fyrir ofna Hamra og eyðibýlið Jörfa. Vel tekið á móti okkur í Stóra Vatnshorni eins og alltaf.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Er ekki “Undir brúnni” austasta leiðin? Held að það séu engar leiðir þarna austan megin. Ef það er rennsli í klettunum þarna eru litlar líkur á því að þeir séu fýsilegir til klettaklifurs. Eins ímynda ég mér að klettarnir á móti klifursvæðinu séu fínir í mix, eru þeir ekki alltaf blautir líka?
Það náttúrulega vítaverður fávitaskapur að drytoola í klettaklifurleiðum, hvort heldur sem er norðan eða sunnan heiða.
Flottar myndir btw gummi, gaman í road trippi. Á ekkert að kíkja í Berufjörðinn?
Skabbi
SkabbiParticipantA eiga nýjust græjurnar er stöðugt kapp við tímann
Nýji Quarkinn og Nomicinn, frá og með haustinu.
Petzl sækir líka inn á sérhæfða drytool markaðinn með endurhönnun á gamla Quark ergo. Þeir ætla ekki að láta BD komast upp með að baða sig í sviðsljósinu með nýju fusion öxina lengi.
Töff
Stöff
Allez!
Skabbi – fastur í gamla tímanum
SkabbiParticipantVá, brútalt!
Á ísfestivalinu á Bíldudal í fyrra sögðu heimamenn okkur að Dynjandi væru verðugasta verkefnið í firðinum, enda hár og svínbrattur. Vel gert herrar, og góð redding þarna í lokin!
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantGlæsilegt hjá stráksa! Þeir bræður eru orðnir ansi stór nöfn í geiranum sem er æðislegt.
Áður en menn hópast með kyndla og kvíslar upp í Efstaleiti bendi ég á að Dóri fékk álíka langa umfjöllun og nýkrýndir Evrópumeistarar Frakka í kvöldfréttunum RÚV í gær. Einnig var tekið viðtal við hann áður en hann fór út.
allez
Skabbi
SkabbiParticipantVelkomin heim á hið ísilagða Ísland!
Glæsileg leið hjá ykkur, hlakka til að sjá myndir. Tek að ofan fyrir Berglindi að hafa tosað kallinn upp bröttustu höftin.
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Ég sendi þetta á Sigga Tópó um daginn. Sjáum hvað kemur út úr því…
Skabbi
SkabbiParticipantHey Marianne!
you must be gaining loads of experience from all this. Good for you and good luck in Rabenstein!
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantOg svona rétt til að koma fólki í stemminguna fyrir kvöldið:
…heppinn…
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Það er ánægjulegt að sjá hvernig þessi fyrirtæki eru tilbúin að koma til móts við félagsmenn Ísalp þegar kemur að grundvallar öryggisbúnaði. Ég tek að ofan fyrir þessum ágætu fyrirtækjum og vonast til að sjá sem flesta á fundinum á morgun.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantUm að gera að minna á þennan merkilega viðburð. Hvet fólk til að mæta tímanlega, salurinn er ekki stór.
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Þú færð svarið örugglega á fyrirlestrinum í kvöld, eða á næsta fyrirlestri sem fjallar sérstaklega um snjóflóðaýla.
Skabbi
SkabbiParticipantÁsbjörn Hagalín Pétursson wrote:
Quote:Ice Community
Aðal síðan í dag. Hendum inn fyrsta video á næstu dögum.KLikkí…
SkabbiParticipantPáll Sveinsson skrifar:
Quote:Ísfestvalið er viðburður sem enginn má missa af.
Nú er það viku seinna enn í fyrra og hitti skemtilega á sama tíma og vetrarfrí skóla á höfuðborgarsvæðinu.Því miður fyrir mig verður enn meiri vinna að prúta um frítma þessa daga.
kv.
PalliÞað er hárrétt hjá Palla, ísfestivalið er atburður sem enginn má missa af.
Þegar stjórnin settist niður í haust og lagði drög að vetrardagskránni var miðað við svipaðan tíma og síðustu ár, uppúr miðjum febrúar. Sem eini meðlimur stjórnar með barn á grunnskólaaldri veit ég uppá mig skömmina, ég er einfaldlega fullkominn rati þegar kemur að svona skipulagningu.
Ef tímasetningin á festivalinu hentar klúbbfélögum almennt mjög illa er sjálfsagt að taka það til skoðunar. Það verður hinsvegar erfitt að finna tímasetningu sem hentar öllum fullkomnlega.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantFreyr Ingi Björnsson skrifaði:
Quote:Hafa menn ekki verið að brölta upp á höftin á leiðinni upp að Spora sjálfum?Ég held að sá neðsti (og stærsti) beri hið ómþýða nafn Mígandi. Einn af mörgum á landinu reyndar sem ber þróaðri kímnigáfu íslenskra ísklifrara fagurt vitni.
Ég hef farið upp eftir læknum nokkrum sinnum, tekið öll höftin á leiðinni. Það er þrælgaman. Fyrst þegar við Sissi og Bjöggi “fundum” Spora komum við einmitt upp eftir læknum. Spori kom ekki í ljós fyrr en við stóðum næstum undir honum.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantVið Gulli granít og frýr renndum inní Kjós í blíðviðrinu í morgun. Klifruðum Spora, sem er svosem ekki frásögum færandi nema hvað hann er tekinn að veðrast af gengdarlausri umferð undanfarnar vikur. Það er orðið hægt að klifra nánast allan fossinn án þess að höggva nokkurntíman, bara húkka í götin. Ekkert að því náttúrulega.
Gegnt Spora, hinummegin í dalnum hefur myndast ansi myndarlegur foss, á að giska tvær spannir. Þegar við ókum á brott sáum við tvo menn (eða konur, eða sitthvort) klifra þennan ónefnda foss. Væri fróðlegt að heyra hvernig sú vegferð fór.Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantArnar Halldórsson skrifaði:
Quote:Skabbi (þar sem þú varst þarna fyrir stuttu), hvernig myndir þú gráða neðri fossinn? en þann efri?Ertu ekki að tala um efra og neðra haftið í neðsta fossinum? Það neðra var örugglega 3.gráða þar sem við fórum um daginn, og efra haftið 4. þar sem það var brattast. Annars eru þessi höft ansi breið og fjölbreytt, hægt að þræða erfiðari afbrigði eftir hentugleika.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Tegera vettlingarnir fást orðið ansi víða, m.a. í Húsasmiðjunni. Ég held að þeir séu ódýrastir í Fossberg í Dugguvoginum, þar hef ég alltaf keypt þá.
Núorðið er ég alltaf með þrjú pör af vettlingum; Punisher par, eitt par af Tegera og belgmikla ullarvettlinga. Ullina til að tryggja og síga, Punisher í klifrið og Tegera sem vara, og í erfiða leiðslu.
Allez!
Skabbi
SkabbiParticipantBíddu bíddu! Kallinn kominn með nýjar axir!? Og nýjan hjálm!? kreppa hvað?
Skabbi
-
AuthorPosts