Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
Skabbi
ParticipantHæ
Við Gulli vorum að koma úr Múlafjalli. Þar er talsverður ís, Rjúkandi og Stígandi í mjög góðum aðstæðum, sem og leiðirnar í Leikfangalandi. Leiðir í kringum Íste virðast vera þynnri en margar leiðir austar með hlíðinni litu vel út úr fjarlægð.
Í Brynjudal kíktum við á Ýring sem er spikfeitur. Oríun er að verða vel bunkaður en hengjan fyrir ofan er stór og fer stækkandi.
Allt að gerast
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Er ekki kominn tími á Norðurland? Kinnin fær allavega mitt atkvæði sem primary location.
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Það slæddist inn villa í póstinn sem var sendur, gleðin verður í Hafnarfirði. Póstur verður sendur út til leiðréttingar. Afsakið þetta.
Skabbi
Skabbi
ParticipantTakk fyrir daginn drengir og myndirnar!
Það var hreint magnað hvað hafði snjóað á skömmum tíma, við óðum snjó upp að hnjám lengi vel. Ef e-ð bætir í verður Esjan fljótlega vel skíðafær.
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantBjörn Oddsson wrote:Usss, láttu þetta ekki á opinn vef. Hjóla á mosanumEr það semsagt verra en að ganga á mosanum? Hvað gerist ef þetta sést á opnum vef?
Skabbi
Skabbi
ParticipantLike á þig!
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Þvílík endemis snilld! Stórt hrós til allra sem að verkinu komu, sem og til Jóns Viðars og allra sem unnið hafa í Tóftinni í sumar.
Allez!
Skabbi – sem gerði ekki jack
Skabbi
ParticipantHæ
Gott að ekki fór verr og þið voruð sæmileg við þessu búnir. Vona að vinur þinn jafni sig fljótt.
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Bóndinn á Meðalfelli, mig minnir að hann heiti Sigurþór, hefur ævinlega verið vinveittur okkur klifrurum og á allar þakkir skildar fyrir að laga veginn.
Varðandi skiltið við afleggjarann þá hafa hestarnir nýtt sér það sem klóruprik þegar skiltið er hærra á staurnum. Sjálfur hef ég alloft hækkað það á staurnum en það er ævinlega orðið loðið af skít niðri við jörð aftur skömmu síðar.
Allez!
SkabbiSkabbi
ParticipantHæ
Þessar minna óneitanlega ögn á fræga leið í kanadísku Klettafjöllunum, Reality bath.
“The highly dangerous overhanging seracs at the top Richards compared to the Rackliff-Twight testpiece, The Reality Bath (VII WI6+ X, 600m), an unrepeated climb “so dangerous as to be of little value except to those suicidally inclined,” said Albi Sole, Canadian Rockies guidebook author.”
Þannig að ég er alveg til!
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Ég er næstum orðlaus.
Quote:Ég get bara verið vitur eftir á og hefði auðvitað átt að setja læsta karabínu í akkerið…No shit
Klifur er alla jafna ekki sérstaklega hættulegt ef rétt er farið að, sérstaklega í Valshamri þar sem flestar leiðir eru vel boltaðar og akkeri góð. Þeir sem ætla að leiðbeina öðrum verða að kunna vel til verka. Þið systkinin hefðuð líklega haft gott af því að slást í för með ÍSALP þennan dag, frekar en að prófa ykkur áfram sjálf. Ég gæti verið mun harðorðaðri en læt þetta nægja. Að því sögðu er ég mjög feginn að ekki fór verr. Vonandi jafnar systir þín sig, og þú sjálfur.
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Tek undir með þeim sem skrifa hér að ofan, góða ferð strákar en farið varlega í snjónum.
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantNæs!
Líst gríðarvel á Bíó Paradís. Þar getur Kalli Ingólfs líka fengið bjórinn sem hann saknað svo mjög á síðustu Bönffum.
Skabbi
Skabbi
ParticipantIch komme!!
Skabbi
ParticipantHæ
Heví gott albúm, fúlt að missa af þessu. Veggurinn er nú bara býsna flottur núna.
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantKúl, ég er klár!
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Ég er alveg til að kíkja um helgina, Grundarfjörður er alltaf góður, eins Haukadalur eða annað á vesturlandinu.
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantÞað held ég líka. Fyrir utan Skíðaskinkurnar að sjálfsögðu…
Takk fyrir helgina
Skabbi
Skabbi
ParticipantSennilega búið að læsa vídjóinu, þú misstir af skíðaklippu ársins Himmi…
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantVá, þetta er þroskaheft…
Skabbi
ParticipantSæll Andri
Ég átta mig ekki alveg á því hvað þú átt við með blandaðri fjallamennsku. Ef ætlunin er að stunda klifur af e-u tagi með línunni, hvort heldur sem er ís eða kletta, er nauðsynlegt að vera með dýnamíska (teygjanlega) klifurlínu. Ef þú ert að hugsa um jöklagöngur þar sem menn eru bundnir saman til þess að tryggja mögulegt fall í sprungu er dýnamísk lína ekki nauðsynleg, þar nægir statísk lína.
Fyrir e-m árum var hægt að kaupa léttar statískar línur í útilíf í mismunandi lengdum fyrir jöklagöngur. Klifurlínur eru amk 50 metra langar, oftast 60. Fyrir 2-3 menn í jöklagöngu er það fulllangt, 20-30 metrar eru nóg, svo fremi sem menn viti hvað þeir eru að gera. Reyndar gildir það um alla fjallamennsku.
Hvað gönguAxir varðar hef ég enga sérstaka skoðun, nota sjálfur Stubai gönguöxi með tráskafti frá 1970. Léttari of sterkari axir eru orðin viðtekin venja. Úrvalið er nú sjaldnast mikið hér heima, gæti borgað sig að leita á náðir internetsins.
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantGjeeeeðveikt. Síðast þegar ég horfði á snjóbrettamynd (2004) var TRice aðal maðurinn, gaman að sjá að hann hefur haldið sér vel við.
Hvernig ýla ætli þeir séu með?
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Helvíti líst mér vel á ykkur piltar, þið eigið eftir að gera góða hluti. Stjórnarsætin eru fullmönnuð sem er mjög gott. Við erum hinsvegar með offramboð á stjórnarmönnum svo að við fáum að kjósa, sem er reyndar líka gott. Kosningar eru móðins í dag.
Það er ekki úr vegi að formannsframbjóðendur skerpi ögn á sínum eigin áherslum til að auðvelda okkur hinum valið.
Atli Pálsson wrote:
Quote:…
Eg gef kost á mér til formanns Isalp ef klúbbfélagar treysta mér í það hlutverk…Mig langar að bjóða tíma minn og krafta til að halda áfram góðu starfi fráfarandi stjórnar. Það er gaman að vera í Isalp.
Atli, er e-ð sérstakt sem þú vilt breyta í starfsemi Ísalp næsta árið eða nýjar áherslur sem þú vilt bæta við?
Róbert Halldórsson wrote:
Quote:…
Ég hef ákveðið að bjóða mig fram sem formaður Íslenska Alpaklúbbsins…Mér finnst mikilvægt að merkjum Ísalp sé haldið á lofti til að gæta hagsmuni íslenskra fjallamanna. Tryggja þarf að nýliðun eigi sér stað og auðvelda aðgengi að klúbbnum, auk þess að fjallamennskan sé kynnt fyrir hinum almenna borgara.
…Robbi, hefur þú e-r sérstakar hugmyndir um það hvernig eigi að gera Ísalp sýnilegra og auka nýgengi í klúbbnum?
Ykkur er að sjálfsögðu frjálst að svara spurningum sem ég beini til ykkar beggja. Eins væri gaman að sjá hugmyndir annara tilvonandi stjórnarmanna.
Allez Ísalp!
Skabbi
Skabbi
ParticipantKlellað vídjó mar!
Skabbz
Skabbi
ParticipantKúl, takk!
Vonandi fáum við að heyra í fleirum sem hafa áhuga á stjórnarsetu. Það er gaman, í alvöru.
Skabbi
-
AuthorPosts