Forum Replies Created
-
AuthorPosts
-
SkabbiParticipant
Kíktum tveir í Búhamra eftir vinnu, bæði í Tvíburagil og 55 gráður. Mikill ís í báðum leiðum en heldur morkinn þar sem sólin hafði skinið á ísinn allan daginn. Þó mátti finna línur í báðum leiðum sem ekki snéru beint upp í sólina og voru vel klifranlegar. Hugsanlega eru aðstæður betri snemma dags.
Vel ferðarinnar virði, myndir síðar.
Skabbi
SkabbiParticipantYúrí shmúrí, pólska Playboy gellan er nú talsvert flottari en þessi rússaróni!
Ska
SkabbiParticipantHæ
Hér gefur að líta myndir frá Múlafjalli á laugardaginn síðastliðin og Kjós síðastliðin sunnudag:
http://www.vonlausa.org/gallery/view_album.php?set_albumName=album24
Þetta er náttúrulega ekkert nema hálfkák í samanburði við öldungadeildina…
Skabbi
SkabbiParticipantSælir
Já, þetta eru heldur dapurleg tíðindi verð ég að segja, enn eitt júmbó-álverið og það í næsta nágrenni við helstu náttúruperlur norðurlands. Ég á bágt með að trúa því að allir leiðsögumennirnir og aðrir sem tengjast ferðaþjónustu innan Ísalp ætli að láta þetta ganga yfir sig þegjandi og möglunarlaust. Ég viðurkenni reyndar vel að maður finnur til vanmáttar síns eftur framgöngu stjórnvalda í þessum málum undanfarin ár og endalausan stóryðjuáróðurinn og hagvaxtarfylleríið en það þýðir ekki að við höfum ekkert til málanna að leggja.
Ef þetta álver verður byggt fyrir norðan næsta víst að fyrirhugaðar gufuaflsvirkjanir duga ekki til að knýja verksmiðju af þessari stærðargráðu. Að sjálfsögðu segja stjórnvöld okkur að þau hafið lofað ALCOA að afla orku og hún verður fengin með vatnsafli í staðin. Næstu virkjunarkostir eru í Skjálfandafljóti, þar sem vatn yrði tekið af Aldeyjarfossi og Hrafnabjargarfossum og Jökulsá á Fjöllum, þar sem vatni yrði veitt framhjá Dettifossi. Ég er hræddur um að ferðamannastraumurinn um Norðurland yrði e-ð minni í kjölfarið.Að lokum væri forvitnilegt að heyra e-ð frá stjórn Ísalp um þeirra skoðun á þessu máli.
Skabbi
SkabbiParticipantEr hugsanlegt að hobbiti hafi verið með í för?
ska
SkabbiParticipantEf þetta á að vera brandara þá er ég ekki að skiljann…
Skabbi
SkabbiParticipantHæ
Hér gefur að líta nokkrar myndir frá ferð HSSR á Skessuhornið síðastliðin sunnudag, séð með augum leikmanns…
http://www.vonlausa.org/gallery/view_album.php?set_albumName=album44&page=1
Skabbi
SkabbiParticipant“Spurðu ekki hvað Amríka geti gert fyrir þig, heldur hvað ÞÚ getur gert fyrir Amríku” – JFK
Kveðja úr rigningardrullunni í Þrándheimi
SkabbiParticipantNei, því miður. Mar hefði kannski haldið að hann hefði eytt í það orðum í ljósi þess að þessi fullyrðing fylgir fast á eftir.
“Rock climbing is incredibly dangerous. You need to be tremendously physically fit in order to stay alive — blunt, but true.”
*Fjúff*
Ska
SkabbiParticipantSæll gamli
Ég var mikið að spá og spekúlera í þessu sama fyrir stuttu. Er reyndar enn ekki búinn að ákveða hvort það verður crash pad eða tveir friendar sem peningurinn fer í…
Allavega. Til að byrja með mæli ég með því að leggja dýnuna á golfið í búðinni og trampa áðeins og hoppa á henni. Sumar dýnur eru stífari en aðrar og þær mýkstu eru of mjúkar að mínu mati. Ég mæli einnig frekar með dýnu sem er ekki með broti í miðjunni (taco-shaped) heldur en dýnu í tvennu lagi (sandwich-shaped). Ástæðan er sú að það er þægilegra að troða öðru stöffi sem þú vilt hafa með (skó, kalk, föt, nesti) inní samanbrotið taco-ið en samlokuna. Auk þes getur verið óþægilegt að lenda beint á brotinu í samlokunni.
Einnig má hafa klæðningu dýnunnar í huga til þess að þurrka þeðanaf skónum áður en klifur hefst. Sumar dýnur eru bara klæddar nælon dúk sem er gagnslaus til slíks brúks á meðan aðrar hafa sérstakar mottur til afþurrkunar eða eru klæddar efni sem þurkar betur skít og drullu.Að lokum er gott að hafa í huga að dýnan sé þægileg til burðar, ef þú getur ekki keyrt beint upp að hnullanum sem þú ætlar að taka í karphúsið.
Þær tegundir sem ég hef skoðað hér eru Pezl, Franklin og Revolution (sem áður var Cordless og Pusher). Allar frambærilegar er er ekki frá því að ég hallist að Revolution.
Þar sem ég veit að þú ert í Skotlandi hvar klifur er ekki klifur nema það sé trad (eru það ekki þeir sem segja “sport climbing is neither!”) er ég ekki viss um að þú hafir um auðugan garð að gresja í þessum efnum. Gangi þér samt vel.
Skabbi
SkabbiParticipantÞað hefði allavega verið fróðlegra að sjá þá binda kallinn á höndum og fótum og henda honum svo í djúpu laugina, sjá hvort næði að koma þessu uppí sig.
Ég lít svo á að ef þú ert með bíper, skóflu og stöng og kannt að nota það og krúið þitt líka ertu eins góður og þú getur á annað borð verið ef þú ætlar að leika þér í snjónum. Fyrir utan náttlega kunnáttu á aðstæðum og almenna skynsemi.
Ef þú ert ekki steindauður þegar skriðan stoppar sé ég ekki fyrir mér að flóðlúngað sé að bæta svo miklu við ef hitt er á annað borð í lagi.
-
AuthorPosts