Var einmitt að fara að skrifa póst um að skór hefður fundist í Valshamri. Skóna geturu nú fundið í afgreiðslu Klifurhússins hjá óskila-kalkpokunum! Þar er líka blá læst karabína sem væntanlega tilheyrir ykkur líka, ekki satt!?
Skelltum okkur í dagsklifur í Pöstunum og vorum gríðalega ánægðar með svæðið. Skemmtilegt klifur í flottum klettum …þó helst til mikið af hræðilega stórum og ljótum köngulóm
Tek undir: Frábært framtak, Stína, Hjalti og Stebbi!!!
Jámm, risastórt takk fyrir mig, alveg snilldar klifurhelgi!
Hjá mér er rauður Black Diamond tvistur sem saknar eigandans, hver á? Mig vantar aftur á móti einn appelsínugulan BD tvist.
Cheers, Sædís.
Jú, jú, mikið rétt, Cécile sendi slatta af eintökum af myndinni “íslenska” heim til Íslands og bað mig að dreifa til þeirra sem hefðu áhuga. Ég skal fá einhvern heima til að skutla þeim í Klifurhúsið/Ísalp svo fólk geti nálgast eintak.