Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › vallárgil
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
21. December, 2008 at 14:49 #459080506824479Member
Undirritaður fór ásamt Atla páls, Herdísi, Björk og Heiðu í Vallárgil í gær. Upphaflega planið var að kíkja í Spora en sökum hversu mikill ófærð var á Þingvallaveginum ákváðum við að snúa frá því.
Fyrra haftið var í góðum aðstæðum en það seinna voru 3 frístandandi kerti. Reyndum að sneyða framhjá því með því að fara upp snjóbrekku vinstramegin við það (snjóbrekka með littlu hafti).
Komumst að því að ef maður gerir það þá lendir maður ekki fyrir ofan leiðina heldur í frekar bröttu snjógili. Þurftum að klifra svoldið á hlaupandi tryggingu áður en við fundum heppilegn stað til að búa til sigakkeri.Enduðum svo daginn á því að skella okkur í labbitúr í Skarðsheiðinni um kvödið.
Þegar við vorum á leiðinni í Vallárgilið kíktum við í 55°og sáum að þar voru einhverjir að klifra, sem eiga gráan skóda.
Við pældum aðeins í því hvort það væri sniðugt ef maður myndi setja spjald í rúðuna bílnum þar sem stæði nafn á klifrurum og leið sem væri áætluð að fara í.
Þannig að næstu sem kæmu á svæðið gæti séð hverjir eru á ferðinni og hvaða leið þeir hyggjast ætla að fara (væri t.d. kostur ef margir hyggðust ætla að fara í eilífsdalinn sama daginn að geta vitað hvort t.d. einfarinn væri upptekinn eða ekki)kv.
Doddi
21. December, 2008 at 15:48 #534472309842399MemberGóð hugmynd, með spjaldið í rúðunni. Reyni að muna þetta næst. Fórum þrír Hafnfirðingar og einn ísfirðingur í 55°. Fínn ís og mikið af snjó.
21. December, 2008 at 17:45 #53448RobbiParticipantÞetta með spjaldið er góð vinnuregla sem maður gerir allt of sjaldan. Þetta er sérstaklega gott ef það verður slys eða einhver týnist.
robbi
21. December, 2008 at 17:52 #534491811843029MemberVið vorum einmitt að ræða það í gær. Ef það verður slys t.d í Eilífsdal þá getur sparað mikinn tíma ef björgunarlið veit hvert menn ætluðu sér.
En svo er líka oft pirrandi þegar dagurinn er stuttur að labba að leið bara til að komast að því að aðrir eru þar fyrir.
Kv.
Atli
21. December, 2008 at 19:25 #53450AnonymousInactiveÞetta er alveg nýtt “vandamál” ef vandamál skyldi kalla. Þ.e að leiðir séu uppteknar. Það er þvílík gróska í greininni að það er frábært að heyra þetta. Keep up the good work!!!
Olli21. December, 2008 at 19:51 #534512401754289MemberEf ekkert spjald til í bílnum þá virkar að skrifa í drulluna á bílnum!
21. December, 2008 at 21:26 #53452ABParticipantGóður, Friðjón:).
Annars er þetta er góður siður sem maður ætti að taka upp.
AB
21. December, 2008 at 23:55 #5345322. December, 2008 at 08:21 #534540311783479MemberAd thurfa ekki ad bida eftir klifurleidum er ser-islensk thaegindi i evropskum samaburdi, sem t.d. i Skotlandi er standard partur af deginum ad bida i bidrodum. Reyndar eru bidradir thjodarsport her og their sem eru ekki vel aefdir i ad “bidradast” eru undantekningarlaust litnir hornauga.
Hins vegar gefur sma bid, fyrirtaks tima aflogu til sagnastundar sem er intergral hluti af godum degi a fjollum.Vardandi ad lata af ser vita, tha eru oll gistiheimili, svefnpokaplass, tjaldstaedi etc. med spjald fra Halanda logreglu lidinu sem madur fyllir samviskusamlega ut og annad hvort setur postkassa hja theim eda i litla kassa sem eru vid flest oll bilastaedi hja vinsaelum klifursvaedum.
H
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.