- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
21. October, 2008 at 11:54 #472491908803629Participant
Vildi bara taka ofan fyrir þeim sem áttu hugmyndina að utanbrautarbandalaginu, þ.e. félagskap fjallaskíðara/snjóbrettara Ísalps. Ég er sjálfur alveg að fara að að byrja á sportinu og því frábært að vita af þessum vettvangi.
Gagni ykkur vel.
P.S. hvernig væri annars ef allir áhugasamir um fjallaskíðun kvitti hér, svo maður fá smá tilfinningu fyrir fólki og fjölda?
Kv. Ágúst Kr.
21. October, 2008 at 12:03 #53143Gummi StParticipantlíst vel á þetta
fékk mér fjallaskíði í vor og er að byrja í þessu.
kv. Gummi St.
21. October, 2008 at 12:32 #531441012803659ParticipantJá sammála! Gott framtak!
Fjölmargir sem hafa áhuga á þessu en allt of fáir sem stunda þetta…
Rúmlega helmingur þeirra sem eru að óska eftir búnaði hér á síðunni eru að leita eftir fjallaskíða-græjum. Það er dauðasynd að liggja á þessum græjum ef maður er ekki að nota þær.
Mætum sem flest þann 5. nóv á prepp-kvöldið og setjum saman skemmtilega dagskrá/plan fyrir veturinn!
21. October, 2008 at 13:09 #53145SmáriParticipantFlott framtak. ég mæti!!
kv. Smári
21. October, 2008 at 13:13 #53146Gunnar MárParticipantMjög gott mál – ég mæti.
21. October, 2008 at 13:45 #531471908803629ParticipantTalandi um græjur… á einhver stífa skó fyrir fjallaskíðun, stærð 42-43? Skór sem myndu passa á Dinamir Freeride bindingar.
Ágúst Kr.
824-5846
agusts(hjá)internet.is21. October, 2008 at 13:59 #531482903793189MemberÉg mæti.
21. October, 2008 at 16:02 #53149ÖddiParticipantFrábært! Ég er game. Er á einplönkungi og burðast með hann á bakinu. Er að spá í að fjárfesta í tvítóla græjum þegar rúblurnar koma
kv.Öddi
PS. Fullt af flottum línum hérna í Hjaltardalnum og nokkrar að komast í aðstæður21. October, 2008 at 16:09 #531500808794749MemberstuðSTUÐ.
held að stofnun Utanbrautarbandalagsins hafi þegar komið smá snjó í kortin.maður er farinn að vonast til að komast brátt í snjó einhvers staðar.
hvet alla þá sem eru staddir þar sem snjórinn er að falla að pósta hér á síðuna um aðstæður. aldrei að vita nema maður mæti á svæðið.
21. October, 2008 at 17:12 #531510111823999MemberEr ein af byrjendunum og líst rosalega vel á þetta framtak..
21. October, 2008 at 21:55 #531521108803169MemberLíst mjög vel á!
Kveðja Nils
21. October, 2008 at 22:17 #53153BjörkParticipantlíst vel á þetta. fullt af fólki. Nú er bara að koma vetrardekkjunum á bílinn og laga rispur.
22. October, 2008 at 09:21 #53154BjörkParticipantjá Sveinborg ég held svo sannarlega að stofnun UBB hafi komið snjónum af stað…. vííííííí!
22. October, 2008 at 12:57 #531550506824479MemberFlott mál.
Sveinborg, það var fullt af snjó í garðinum mínum í morgun.
Ágúst, ég er með skó handa þér, bjallaðu á mig í síma 694-1198
kv. Doddi
22. October, 2008 at 14:24 #53156Anna GudbjortMemberFrábært framtak!
22. October, 2008 at 15:17 #53157Björgvin HilmarssonParticipantGott mál… Stimpla mig hér með inn sem hliðarrennslismaður í grunninn en opinn fyrir annars konar rennsli í neyð
22. October, 2008 at 15:57 #53158Steinar Sig.MemberTelemarkari og til í tuskið.
23. October, 2008 at 12:46 #531591509815499MemberEf veðurspár ganga nokkurnvegin eftir núna um helgina þá heyrði ég útundan mér að þeir á Dalvík ætli að reyna opna fljótlega eftir helgi. Eins og segir í nýjustu fréttinni á síðunni þeirra var hægt að renna sér í gær (21.okt)
Ég er til í þetta bandalag
23. October, 2008 at 18:24 #531600801667969MemberFlott framtak. Úr Bláfjöllum er það hins vegar það að frétta að í gær (22 okt.) setti niður það mikinn snjó að menn hættu að komast um á jeppa og því skipt yfir á vélsleða. Í dag hefur svo bætt allmikið í og meiru spáð. Það lítur því út fyrir að menn geti fundið sér ágætis lænur til að skíða í um helgina. Þess ber þó að geta að allt almennilegt undirlag (gamlan veðraðan snjó og ís) vantar og því víða stutt niður á grjót.
Kv. Árni Alf.
23. October, 2008 at 19:34 #531612411784719MemberHlakka til að sjá ykkur öll hérna fyrir norðan uppá fjöllum á skíðum eða bretta
24. October, 2008 at 14:22 #531621402734069MemberMeð, hvort sem það eru lausir eða fastir hælar.
Spurning að legga til helgi, eða helgar, fyrir hittings á góðum svæðum á komandi vetri? Rúnar getur t.a.m. tekið á móti okkur á Ólafsfirði næsta vor
Kv.
Böbbi -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.