Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Umræðusíðan
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
4. October, 2003 at 16:43 #46136
2806763069
MemberFlott að sjá að síðan er kominn í gang. Maður getur þá farið að tjá sig aftur.
Það er annars búið að vera kalt síðustu daga og gaman væri að vita hvort einhver hafi litið upp í Þórisjökul, og þá hvernig leit út þar.4. October, 2003 at 19:59 #481410405614209
ParticipantKvöldið.
Sammála að það er stórfínt að fá umræðurnar í gang aftur.
Ég hef ekki glóruhugmynd um það hvernig aðstæður eru í Þórisjökli en var að spá í að fara í könnunarleiðangur í Kerlingarfjöll bráðlega. Það er búið að vera viðloðandi frost á miðhálendinu í nokkurn tíma og ég veit að þarna eru stór gil sem eiga að halda frosti og ís.
Ef einhver er til í 2ja daga könnunarleiðangur í Kerlingarfjöll þá væri gaman að heyra í viðkomandi.
5. October, 2003 at 16:52 #481422806763069
MemberÉg er maður í það
5. October, 2003 at 18:30 #481430405614209
ParticipantBlessaður aftur.
Nú er bara að sitja fyrir sæmilegu frosti og drífa í þessu. Ég get örugglega fengið lánað hús þarna þannig að það ætti ekki að væsa um menn.
Það er spurning hvort að það ætti ekki að reyna að smala í svona 3 sæmilega útbúna jéppa og þrælast á staðinn eftir næsta frostakafla.
5. October, 2003 at 19:18 #48144Arnar Þór Emilsson
ParticipantLíst vel á þetta ekki gleyma mér
6. October, 2003 at 10:26 #481450405614209
ParticipantBlessaðir aftur.
Ég held að það sé nú bara grundvöllur fyrir fjölmenni í leiðangur í Kell-Kell-Kerlingarfjöll.
Skv. Veðurstofunni er búið að vera frost þarna alla síðustu viku. Lítið við á http://www.vedur.is/athuganir/sjalfvirkar/hvell/ sem er fyrir Hveravelli eða á http://www.vedur.is/athuganir/sjalfvirkar/setur/ fyrir Setrið
Það HLÝTUR að vera ís þarna!!!!!!
6. October, 2003 at 11:32 #481462806763069
Memberég get farið hvernær sem er, látið mig bara vita hvenær þið viljið fara.
Veðurspáin er fín fyrir vikuna, og ég veit fyrir víst að Arnar hefur ekkert að gera í skólanum.Sona á líka vefur Ísalp að virka.
6. October, 2003 at 12:03 #481470405614209
ParticipantJóhóhó.
Ég er algjörlega upptekinn í vikunni en það er sénsinn bensinn að ég geti komist næstu helgi eða þá ekki fyrr en hina helgina.
Ég er líka búinn að setja mig í samband við æðsta ráðið í Kell-kell-Kerlingarfjöllum uppá að fá hús, rafmagn og heitann pott.
6. October, 2003 at 17:23 #481482806763069
MemberÞetta er allt spurning um forgangsröðun.
Maður þarf bara að vita hvað er númer 1, 2 og 3. (það byrjar á K en endar ekki á lifur, og getið nú)
7. October, 2003 at 03:02 #481490310783509
MemberHe he he tessi er audveldur mar “K-ERLINGAR”.
Annars bara bestu kvedjur fra Canada erum bunir ad klifra um 40 spannir sidan eg kom hingad fer til Californiu a morgun.
snilld ad spjallid er komid upp a ny
Einar Isfeld (A.K.A Humarinn)
Engir Islenskir stafir sorry7. October, 2003 at 18:00 #481502806763069
MemberFlott að heyra frá þér humarstrákur, láttu okkur endilega frétta meira og nánar af ferðum þínum. Svona svo ég geti grátið nokkrun söltum tárum í tjöldin.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.