Home › Forums › Umræður › Skíði og bretti › Tröllaskaginn
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
11. June, 2007 at 10:27 #46553SmáriParticipant
Fór í liðinni viku ásamt tveim Norðmönnum á tvo toppa á Tröllaskaganum og skíðaði niður.
Á miðvikudaginn var gengið inn Héðinsfjarðardal og á Almannahnakka. Á fimmtudaginn fórum við hins vegar inn Ytrárdal (vestan megin í Ólafsfirði) og upp hrygg austan megin við fyrsta gilið (norðan megin í dalnum). Renndum okkur svo niður gilið í mjög góðu færi. komumst á skíðunum niður að á!!Skíðavertíðin er sko langt í frá búin þó að skíðasvæðin hafi lokað!!! hvet þó fólk til að fara varlega, rákumst á nýlegt flóð þar sem við vorum seinni daginn.
kv. Smári
11. June, 2007 at 15:13 #51539Anna GudbjortMemberEkki eigiði myndir úr ferðinni sem þið væruð til í að deila með okkur ?
Mig klæjar óheyrilega í að skella mér Norður.
Takk, takk.
12. June, 2007 at 12:17 #51540SmáriParticipantkomnar nokkrar myndir á mínar síður…
kv. Smári
13. June, 2007 at 15:13 #515411402734069MemberSæll Smári!!
Ætla að leyfa mér að kommentera aðeins …. sem Ólafsfirðingur.
Það er nú vanalegast bara talaðu um Héðinsfjörð. Réttilega talar þú um Ytrárdal sem er hefðbundinn framburður á Ólafsfirði þó dalurinn heiti Ytri-árdalur.
Svo gat ég ekki betur séð en þið væruð á leið niður skálina sem er þar, ekki gilið
Kv.
BöbbiES. Alltaf er nú jafn fallegt þarna fyrir Norðan!!!!
13. June, 2007 at 16:18 #51542SmáriParticipantTakk fyrir leiðréttingarnar Böbbi, við fórum hins vegar aldrei í Héðinsfjörðinn heldur gengum inn, samkvæmt Map source, Héðinsfjarðar dal sem er norðan við Ólafsfjarðardal.
Ytri-Árdalur heitir í þessu annars ágæta forriti bara Árdalur en heimamaður sagði mér að hann héti Ytrárdalur sem er sennilega skýringin á því hvers vegna ég skrifaði eftir talmáli ykkar Ólafsfirðinga en ekki ritmáli;).
En mikið djöfull var þetta gaman.
kv. Smári
28. June, 2007 at 09:25 #51543jafetbjarkarKeymasterHvernig er staðan þarna núna? Er maður að falla á tíma eða er enn nægur snjór?
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.