Á vef Veðurstofu Íslands, vedur.is, er í gangi viðhorfskönnun um gagnsemi vefjarins. Fyrirhugaðar eru verulegar breytingar á uppsetningu vefjarins og framsetningu efnis.
Ferða- og útivistarfólk er háð veðri og vindum og því æskilegt að fá sjónarmið þeirra um hvað betur megi fara á vef Veðurstofunnar.
Á vefnum eru einnig ýmsar áhugaverðar upplýsingar svo sem um jarðskjálfta, eldgos, snjóflóð, skriðuföll, eldingar o.fl.
með kveðju
Helgi Borg
Verkefnisstjóri hjá VÍ