Home › Forums › Umræður › Skíði og bretti › Telemarkhelgin á Akureyri 2004
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
9. March, 2004 at 01:28 #462281402734069Member
Bikararnir eru tilbúnir!!!!!!
Þau sem unnu farandbikarana í fyrra, Sigfríð og Rúnar Óli, þurfa bara að muna eftir að skila þeim!!!!
Eftir mjög nána og yfirgripsmikla skoðun á brekkum Híðarfjalls og með tilliti til veðurs næstu daga hefur nefndin ákveðið að hnika til dagskrá helgarinnar.
Föstudagur
Hist á Café Amor og verðlaunahafar síðasta móts lýsa afrekum sínum og tæknilegum útfærslum og strjúka bikurunum í síðasta sinn.Laugardagur
Fjölmennum við á Kaldbak, þar eru snjóalög með miklum ágætum. Samningar hafa tekist um afnot af snjóbíl sem mun ferja mannskapinn upp hlíðarnar allan daginn. Verði fyrir þessa þjónustu mun samkvæmt hefð vera haldið í algjöru lágmarki og ekki fara yfir andvirði dagspassa í Hlíðarfjalli, 1.400 kr. Þeir sem ekki treysta sér til að hanga aftan í bílnum þurfa ekki að óttast, nóg pláss er innandyra.Stökkkeppnin og guðaveigarnar verða þannig í boði á laugardaginn auk þess sem sett verður upp brautarkeppni eftir því sem aðstæður leyfa. Seinnipartinn munum við á öll skella okkur í sund og heitan pott.
Í lok dagsins verður hóf á Kaffi Akureyri og matur frá Friðriki V.
Auk verðlaunaafhendingar og eins og áður eru verðlaunin ekki af verri endanum.Sunnudagur
Hugmyndin er að samnýta ferðina suður og staldra við á Siglufirði. Snjóalög þar lofa góðu sem og ný lyfta sem tekin var í notkun nú í vetur og býður upp á mjög fjölbreytt Brúnahlaup, þar sem svæðið býður upp á mikla möguleika til að skíða utanbrautar ásamt einstöku viðmóti heimamanna. Athugið að samkvæmt áreiðanlegum heimildum eru aðstæður til skíðaiðkunar þær bestu á landinu um þessar mundir.Sjáumst hress á pottþéttri telemarkhelgi! Engin ástæða til að hanga í rigningunni sunnan heiða.
P.s. Norðanmenn eru búnir að fjárfesta í bikaraskáp og peningaplatta.
Telmarkhátíðarhelgarskipulagsdagskrárnefndin
9. March, 2004 at 11:40 #485520311783479MemberÞetta hljómar mjög vel
-kv.
Halli9. March, 2004 at 11:58 #485532002773689MemberSiglufjörður tekur á móti okkur opnum örmum á sunnudaginn og ætlar að bjóða þelamerkursvingurum og áhangendum þeirra dagspassann í fjallið á litlar 350 kr.
Skíðafæri var gott bæði á Kaldbak og Siglufirði síðustu helgi.
Held að dagskráin verði nett skotheld, vei.
9. March, 2004 at 13:21 #485541709703309MemberLátum ekki bugast, fjölmennum. Saman stöndum vér, sundraðir föllum vér.
Kv.
Stebbi9. March, 2004 at 16:32 #48555Jón HaukurParticipantBestasta mál, það þýðir ekkert að láta snjóhallæri í lyftunni standa í veginum. Miðað við spánna stefnir í sól og blíðu og sumarstemmingu um helgina. Það var alla vega góður snjór á Kaldbak um síðustu helgi. Hendi inn myndum frá Kaldbak um síðustu helgi á eftir, ef að einhverjir skildu efast (það trúir náttúrulega enginn þessum norðlendingum lengur).
jh
9. March, 2004 at 21:37 #485562811765879MemberLýst vel á nýtt plan, var á Kaldbak um síðustu helgi þar sem var fullt af snjó og flott færi – ekki spillti veðrið, sól og blíða!
Ef einhverjir eru enn í vafa um snjóalög nyrðra má sjá myndir frá síðustu helgi á: http://www.hjalparsveit.is/index.php?s=2&sID=26
Sjáumst :o)
9. March, 2004 at 22:07 #485570304724629MemberÓkei, ég læt ykkur um þetta. Ég nenni ekki norður fyrir einn dag. Þarf að fljúga vestur á sunnudeginum þannig að Sigló er úr myndinni. Ekki eru allir að fara suður…
Samt gott að halda þessu til streitu.
Böbbi minn, þú mátt eiga bikarinn þetta árið…!rok
10. March, 2004 at 01:00 #485583110665799MemberAlveg typpikal alltaf þessi djöfuls rembingur og glímuskjálfti. Rúnar þessi Hermann Mayer bók sem þú keyptir á netinu hefur greinilega ekkert gert þig betri! Die fussentecknik auf ski zu ein pferde. ( Fótatæknin sem lét mig skíða eins og hest.)
Það er bara kúl að fara á kaldbak, hef meira segja sniglast hann á mínum slímugu skinnum fyrir nokkrum árum (mæði) (sviti).
Svo eru alltaf þessir ofurviðkvæmu en skemmtilegu tapsáru smásálir sem fara voða lúmskar “að bara kanna aðstæður” (má segja með vælutón) þykjast örugglega hafa rennt sér voða lítið og allt kemur ofsalega óvart á keppnisdag (nú þetta er svona….) með ofsalega hissa tón.
Þið verðið að læra að vera góð við okkur hin einu sinni, sem vinnum aldrei.350 kall fyrir passan á Sigló?
Helga þú hlítur að hafa tekið þátt með Nenna níska eða verið gerfi prúttarans í spaugstofuni!
Er kleinan á 2,50 og mjólkurpelin á 3,75, þetta var ekki verðskráin frá Landsmótinu 1975 var það?
Djöfull skal ég koma og vin………., nei.. ahh ég nenni því ekki.
Heyrðu! ég bara mæti með fullan bíl af fólki, handklæði og sundskýlu, já og nýjasta Mannlíf (sko aðallega bls. 15 Tekist á við Telemark og svo myndina af klappstýrunum mínum bls.56, Óþekku stelpurnar), grrrrrrrr, voff voff.Der formann
Valli.11. March, 2004 at 13:18 #485590607625979Memberhvar er þetta café þar sem á að hittast? í þorpinu eða framm í sveit eða….?
annamaria11. March, 2004 at 15:03 #485601402734069MemberÞetta er bar/kaffihús við eina torgið i eina miðbænum Akureyri.
(í sama húsi og hitt bíóið er, ) við eina STOPP merki bæjarins, rétt sunnan við einu hraðahindrunina og litlu norðar en einu umferðarljósin í bænum……það er nú ekki hægt að villast á Akureyri…þetta er allt svo lítið og sætt hér…ékki eins og í Kópavogi, að ef þú villist þar, þá þarftu bara að setjast þar að…engin furða þótt Kópavogur hafi byggst hratt upp.
kv.
Bassi -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.