Home › Forums › Umræður › Skíði og bretti › — TELEMARKHELGI 2007 —
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
9. January, 2007 at 21:28 #457880704685149Member
undirbúningur fyrir Telemarkhelgina, er byrjaður. Búið er að ákveða að halda Telemarkhelgina 2007 á Akureyri dagana
16. – 18. mars.Ég vil þess vegna, hvetja alla þá sem eru nokkuð vissir að þeir ætla að mæta á Telemarkhelgina á Akureyri, dagana 16. – 18. mars að skrá sig hérna á ISALP sem fyrst. Skráningin er ekki bindandi.
Var að koma af skíðum í alveg frábæru færi. Ég ætla ekki að segja meir þar sem enginn trúir mér orðið. En aðrir sem hafa reynt snjóinn hér norðan heiða síðustu daga geta staðfest það.
Ég lýsi eftir ábyrgum aðilum til að staðfesta orð mín um snjóalög og færi hér norðan heiða….
kveðja
Bassi og Böbbi9. January, 2007 at 23:49 #50883SissiModeratorÉg skrifa nú undir þessum telemark-perra þræði til að spjallborðið hreinlega springi ekki undan nýjum þráðum. Ætla samt ekki að tilkynna þátttöku né staðfesta lygar í þeirra norðanmarða.
Hver hefur ekki fallið fyrir línum á borð við: “Rosalegt púður og sól veeenur.”
Svo er keyrt norður og þá heyrist: “Heeefðir átt að vera hérna í gær veeenur.”
…eeeeen – gerði góða ferð í Bláfjöllin í kveld með Óla Júl og fleiri góðum mönnum í Saumó. Í gilinu er búið að troða eina línu upp sem er prýðileg til göngu og allt gilið er bókstaflega að drukkna í eðal púðri. Frostið niðri var um -12°, og sæmilegt logn í gilinu.
Nóg af grjóti í troðarafarinu, en í 2 unaðslegum ferðum náðum við bara hreinlega ekki að finna neitt slíkt. Púðrið eins og hveiti.
Príma aðstæður, gó for itt.
Siz
10. January, 2007 at 12:33 #508843008774949MemberTAT mætir að vanda og vinnur allt
10. January, 2007 at 21:18 #508851402734069MemberSpurning hvort að einhver trúi mér?
Snjórinn er allur að koma aftur! Fínasta færi í brautum og flestar þeirra opnar aftur. Starfsmenn búa til snjó sem aldrei fyrr og magnað að sjá hvað snjóframsleiðslukerfið nýtist vel í Pipe-inu og barnabrekkunni.
Dalurinn og gil norðan Norðurbakka fyllast þessa dagana af snjó.
Það verður enginn svikinn af því að koma Norður á skíði
Kv.
Böbbi15. January, 2007 at 10:32 #50886SissiModeratorÉg lét náttúrulega platast, og að sjálfsögðu sögðu norðanmenn:
“Þú hefðir átt að vera hérna í gær veeenur, ég fékk köfnunartilfinningur það var svo mikið púður”
En annars var bara eðall í Hlíðarfjalli fyrir brettamenn, við vorum í vindpökkuðu púðri í Suðurdal á laugardaginn í góðum fíling. Gott skyggni en töluverðar snjóflóðaaðstæður, þannig að toppaferðir voru offaðar. Enda kom á daginn að nokkur flóð féllu seinnipartinn.
Sunnudagurinn var svo tekinn rólega, enda fengu lærin að kenna á því í krefjandi færi á lau.
Alltaf gaman að skreppa norður, og komið fínt undirlag á svæðið.
Vonandi að eitthvað fari að gerast sunnan heiða.
Siz
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.