Sæl,
Þeir sem ná ekki að koma nógu snemma til Akureyrar í kvöld og ná ekki að hitta okkur á Café Amor, þá á að hittast kl. 09:00 hjá Lindinni.(Esso sjoppan / Leirunesti) á laugardagsmorguninn og sameinast í bíla. Þeir sem eru með seinni skipunum geta komið sér sjálfir út á Grenivík og náð í skottið á okkur.
Búið er að redda lyftu á Kaldbaki en hún nær ekki alla leið upp á topp, þannig að takið skinnin með, þó það væri ekki nema til að heiðra minningu Palla á fjallaskíðum.
Búið er að redda happy hour á bjór á krana hjá þeim á Kaffi Akureyri áður en maturinn er. Þannig að það borgar sig að mæta á réttum tíma.
Húsið opnar kl. 20:00 fyrir okkur og maturinn byrjar kl. 20:30.
kveðja
Bassi
Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hringja í 863 7724
Plís trúið mér í þetta sinn.