Telemarkfestival 2013

Home Forums Umræður Almennt Telemarkfestival 2013

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46368
    0808794749
    Member

    Nýjustu fréttir að norðan herma að Telemarkfestivalið í ár fari fram laugardaginn 16. mars.
    Það verður erfitt að toppa snilld síðasta árs en með samstilltu átaki ættum við að geta haft að minnsta kosti jafn gaman!

    Hér er myndasería sem ég setti saman fyrir festivalið í fyrra. Það má klárlega bæta við nokkrum skrautlegum síðan á síðasta festivali.

    #58099
    1001813049
    Member

    Hefur einhver mætt á Telemark-skíðum á Telemarkfestivalið síðastliðin 5 ár. Bara svona slá þessu fram, vill meina að Telemark festival sé tímaskekkja og fjallafestival væri nær lagi. Kv KM

    #58100

    Ég hef aldrei prófað telemarkskíði og mun líklega aldrei gera það. En mér finnst bara flott að kalla þetta telemarkfestival, það vita allir hvað um er að ræða. Ekkert að því að þetta sé öfugmæli þessi misserin, hver veit nema telemark komist aftur í tísku.

    Þetta fer allt í hringi.

    Ekki fyrir svo löngu síðan var fjallaskíðun álitin nördalegt fyrirbæri. Vitum öll hvernig staðan er á því í dag :)

    #58101
    0801667969
    Member

    Sá pólitíski rétttrúnaður ríkti a.m.k. frá 1980 og til 1990 að fjallaskíði væru það eina rétta. Sjálfur átti ég meira að segja fjallaskíði á tímabili til að vera gjaldgengur í útköll.

    Gönguskíði voru talin úreltur búnaður því vélsleðar höfðu leyst þau af hólmi. Það gekk meir að segja svo langt að í útkalli 1984 að gönguskíðunum mínum var grýtt út úr snjóbílnum, með tilheyrandi fúkyrðum, þannig að annað týndist. Ég varð skíðalaus í miðju útkalli. Fjallaskíði skildu búnaðurinn vera og heita. Menn voru mjög trúaðir í þá daga.

    Það er 1990 sem ég birti fyrstu greinina í Hjálparsveitatíðindum og svo aðra í Mogganum 1992 um óþekkta skíðatækni, telemarkið. Hvernig sem á því stóð þá hurfu fjallaskíðin á merkilega stuttum tíma og telemarkið tók við.

    Kv. Árni Alf.

    #58102
    1506774169
    Member

    Og nú eru allir að losa sig við Telemark skíðin og auglýsa eftir fjallaskíðum. Sagan fer enn einn hringinn :)

    #58103
    Karl
    Participant

    Er það ekki nokkuð sjálfgefið að það eru telemarkarar sem mæta á Telemarkfestivalið!

    -Af hverju eru svigskíðamenn að fabúlera um Telemarkfestival?

    #58104
    Sissi
    Moderator

    Þetta er lúkkið fyrir ykkur drengir

    [attachment=521]dude1.jpg[/attachment]

    #58105
    0808794749
    Member

    Ég á einn fastan punkt í skíðatilverunni og það er Telemarkfestival. Þá telemarka ég.
    Þess utan renni ég mér með hvaða aðferð sem mér hugnast þann daginn, og með hverjum sem mér dettur í hug og hvar sem er.
    En Telemarkfestival verður að vera einu sinni á ári, sama hvað er í tísku það árið.

    #58106

    “Er það ekki nokkuð sjálfgefið að það eru telemarkarar sem mæta á Telemarkfestivalið!” Segir Kalli.

    Ég er ekki telemarkari en vona að þú takir mér og öðrum slíkum vitleysingum þó fagnandi ;)

    #58107
    Karl
    Participant

    Mér finnst það nokkuð sjálfgefið að telemarkfestivalið felst í því að hitta hina telemarkarana, og halda partí, -jú og svo er líka telemarkað.

    Er ekki tímabært að þeir sem skíði með fastann hælinn komi á fót viðbótar festivali, td fjallaskíðafestivali á Siglufirði um miðjan mai?
    -Vorskíðafestival gæti rokkað feitt.

    Að mæta á svigskíðum á telemarkfestival….. -er það ekki eins og að mæta á asna á hestamannamót? -Eðe eins og Haarde sagði, -“kanski ekki sætasta stelpan á ballinu en e-h sem gerir sama gagn”!
    -Í sjálfu sér hið besta mál ef menn eru frambærilegir í “after ski”.

    Góðar stundir…

    #58108
    1001813049
    Member

    Frábær hugmynd, Fjallafestival að vori. Þar gæti verið rennsli, hvort sem fólk ríði ösnum, hestum eða öðru. Hugsanlega væri hægt að troða inn einhverjum fyrirlestrum og skemmtiefni milli þess sem fólk rennir sér og er á after ski-inu. Boltinn er kominn á loft og aldrei að vita nema félögum Ísalp myndi fjölga eitthvað ef boðið væri uppá samkomu fyrir stækkandi hóp fjallageita (með fastan hæl).

    #58109
    0808794749
    Member

    Það er búið að ræða svona fjallaskíðafestival í ansi mörg ár. Nú þarf bara að framkvæma hugmyndina.
    Kiddi hvernig væri að þú virkjaðir einhverja fleiri snillinga með þér fyrir norðan í þetta dæmi?
    Ég mæti!

    #58111
    0902703629
    Member

    …fyrirlestrar og skemmtiefni…hhmmm….hljómar.…ILLA…hljómar meira fyrir “hjákátlega loddarann í frottesloppnum” hér að ofan… fastur hæll eða laus, gildir einu, mestu máli skiptir að gluða niður snæviþaktar brekkur og hafa gaman af ;)

    #58112
    1506774169
    Member

    Ég velti samt fyrir mér hugtakinu fjallaskíði. Eru það ekki skíði sem maður notar til að skíða á fjöll? Hvort sem hællinn er laus eða fastur? Sumstaðar eru gönguskíði með stálkanti kölluð fjallaskíði. Sé því ekki hversvegna ættu að vera 2 festivöl vegna tveggja tegunda af bindingum. Just sayin :)

    #58113
    Björk
    Participant


    Ég held að það sé ekki verið að tala um að fjallaskíðafestival sé bara fyrir fólk með fastan hælinn. Þessi hugmynd hefur oft komið upp og hvet ég einhvern til að koma þessu í framkvæmd.
    Hugmyndin að fjallaskíðafestivali hefur verið meira í þá átt að vera ekki á skíðasvæði að vori, þramma uppá fjöll og skíða niður með fjálsri aðferð. Þar væru eflaust allir velkomnir hvernig sem fólk kemur sér upp og niður, svo lengi sem það er með allt sitt á hreinu.

    Líkt og nefnt er hér fyrir ofan “… fastur hæll eða laus, gildir einu, mestu máli skiptir að gluða niður snæviþaktar brekkur og hafa gaman af” og þeir sem vilja vera á hlið geta gert það.

    Telemarkfestivalið hefur verið haldið í Hlíðarfjalli frá upphafi, þriðju helgina í mars, held ég, fyrir utan einhver ár þegar þar var snjólaust. Þar hefur telemarkið fengið að njóta sín.

    kv. Björk

    #58114
    Karl
    Participant

    Fjallaskíðafestival -allir stílar, -er hið besta mál.
    -Þetta þarf ekki að vera þungt í vöfum, getur byrjað sem stemmings dagsferð en ekki e-h byrjendahalarófuranghali… -sá þá að engin dagskrá er í boði utan Ísfestival og engar ferðir eða námskeið.

    Fyrir margt löngu voru haldin telemarknáamskeið þar sem kennt var að skíða og fjallaskíðunar námskeið (óháð stíl)í nafni ÍSALP og trekktu mikið af fólki inn í félagið.

    Sennilega hefur ekki verið haldið telemarknámskeið síðan um aldamót!

    #58116
    Gummi St
    Participant

    En til að gera umræðuna enn flóknari, hvernig eru menn að gráða skíðaleiðir? Ég rakst á þessa grein sem gerði þetta flóknara en ég hélt í fyrstu:
    http://www.wildsnow.com/more/ski-descent-rating-system/

    -GFJ

Viewing 17 posts - 1 through 17 (of 17 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.