Nú er fyrstu grein Telemarkhátíðarinnar lokið. Mönnum hefur greinilega farið mikið fram síðan í fyrra. Skíðastökkin í þessari keppni voru mun betur útfærð en í fyrra, nú tóku menn og konur þyrlur í löngum stökkum. Menn reyndu jafnvel við “seven-twenty”.
Rúmlega 40 manns voru mættir og skemmtu sér konunglega yfir tilþrifum keppenda. Nú í ár var stór aukning keppenda í kvennaflokki, í ár kepptu 5 stúlkur en í fyrra var aðeins ein sem keppti.
Boðið var upp á Doritos flögur frá Ölgerð Egils og Saltbrauðsstangir frá Bakarínu við Brúnna, einnig var þessu skolað niður með tilheyrandi drykk frá fyrr nefndum stuðningsaðila.
Eftir keppni var farin kyndlaför niður í Hótel.
Swing kveðjur
Bassi og Böbbi