Home › Forums › Umræður › Skíði og bretti › Telemark festivalið
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
8. March, 2010 at 11:28 #475600704685149Member
Sæl öll sömul,
Allt er á fullu við að undirbúa Telemark festivalið í Hlíðarfjalli.
– Nóg af snjó er komið
– Afterski er komið, staður og stund auglýst við keppnina
– Telemarkhófið er komið staður og stund auglýst síðar í vikunni
– Hópferð á sunnudag upp á brún kl. 12:00
– Vegleg verðlaun í hús komiðMinni á búningakeppnina, bæði fyrir einstaklinga og lið.
Það hefur nú verið endanlega ákveðið vegna fjölda áskoranna að halda samhliðasvig keppni kvenna og karla.
En mig vantar hjálp við eftirfarandi:
6 sjálfboðaliða til að leggja brautina með mér á föstudagskvöldið eða ELDSNEMMA á laugardagsmorguninn. (halda á stöngum og slíkt)3 sjálfboðaliða til að halda utan um keppnina sjálfa með mér. Dómar í marki, 2 sem skrá í keppni og draga keppendur saman og halda utan um hverja ferð. (Lasarusar og óléttir hafa oft tekið þetta að sér) Valli er sjálfkjörin í ræsinguna.
6 sjálfboðaliða til að taka niður brautina og koma stöngum upp í Strýtuskála strax eftir að keppni er lokið.
Áhugasamir sendi mér SMS í 8637724 til að staðfesta hjálp sína.
Ég sendi síðan SMS með góðum fyrirvar um stað og stund.
Má líka hringa en þá eftir kvöldmat, borða kvöldmatinn venjulega svona 18:30 – 19:00 nema manni sé boðið í mat þá oft er ég lengur að borða.Kveðja Bassi og Böbbi sem á eftir að skrá sig…
Allir að skrá sig til að við sjáum ca fjölda í matinn
8. March, 2010 at 11:40 #552950808794749MemberHúrra!
Ég get tekið þátt í brautarlagningu verði hún á laugardagsmorgninum og líka verið með í að taka hana niður.
Gott að minna á skráninguna. Þeir sem ætla að skrá marga ( sem eru kannski ekki með aðgang að síðunni) geta sent póst á mig.
sveinborg (at) hotmail (punktur) com
sjáumst í herlegheitunum fyrir norðan!
8. March, 2010 at 12:32 #55297KarlParticipantBazzi -ég mæti spelkaður og hælheftur og get dundað við brautarlögn og tímavörslu.
Minni á að Nashyrningar eiga tvö pör af tandem skíðum -(Óli skelltu inn vídeóinu)
Við erum tilbúinir til að skella upp (ca 5 hlið) braut í Risastórsvigi
Það væri gott ef e-h geta lagt til bindingar og skíði 2m+ til að útbúa tvö pör til viðbótar.k
8. March, 2010 at 12:53 #552980704685149MemberÞetta líst mér vel á.
2 Komnirkv.
Bassi8. March, 2010 at 20:58 #553013110665799MemberVerð við brautarlagningu Bassi, frágang og ræsingu. Mun þar að auki halda uppi vörnum við skipulag keppninar, þannig gamlar og nýjar tuðkeeellingar eru velkomnar.
Minni alla á að skrá sig endilega það nauðsynlegt vegna tölfræðilegra staðreynda sem létta umsjónarfólki alla yfirsýn á umfangi.8. March, 2010 at 22:36 #553032707713519MemberFlott að sjá að undirbúningur er í fullum gangi fyrir Telemarkfestivalið. Eins og fyrra þá munum við Nashyrningar sjá um apré ski í Glerá með drengjunum í TAT.
Hér kemur upphitun fyrir sveifluna og þetta er engin smásveifla, 0,2 tonn.
http://www.youtube.com/watch?v=XfSr2duoQUg
kv.
Óli Júll9. March, 2010 at 10:06 #553051402734069MemberVið Sigga Ragna mætum.
Komum einnig með einn orginal Norðmann með okkur.
9. March, 2010 at 16:00 #553060704685149MemberBara að minna á þetta er 10unda skiptið sem Telemarkfestival er haldið.
Fann þennan link:
http://www.verksud.is/sidur/telemark/index.html
Hér er hægt að renna svona yfir sögu festivalsins fyrstu árin, bæði í máli og myndum.
Læt fylgja hvetjandi mynd úr stökkkeppninni, þegar telemarkarar voru ungir og endurnýjun í sportinu.
kv.
Bassi9. March, 2010 at 21:28 #553070808794749MemberDagskrá tíunda Telemarkfestivalsins hefur verið uppfærð inn á dagskrársíðum.
Fréttir af Telmark-hófinu á laugardagskvöldið…
2500 kr kostar inn á herlegheitin og skulu greiðast í reiðufé við inngang Íslandsbæjarins á Hrafnagili.
MUNA að skrá sig á hófið, annað hvort á dagskrársíðunni eða hjá sveinborg (at) hotmail (punktur) com10. March, 2010 at 14:05 #55312Freyr IngiParticipantFjallið kjaftfullt af snjó geri ég ráð fyrir
10. March, 2010 at 14:57 #553150704685149MemberSælir,
Já það er nógur snjór.
– og það er snjór í kortunum, þannig að það er ekki vandamálið.
sjá hér live camhttp://www.hlidarfjall.is/vefmyndavelar/
– búið að græja það að lyftur verða opnar til kl. 21:00 á föstudagskvöldið
– Samhliðasvigið verður á sama stað og síðustu 2 ár, þannig erum við mun sýnilegri.Munið veglegir vinningar frá Fjallakofanum:
10. March, 2010 at 18:04 #553181402734069MemberEkki nema 0,2??
10. March, 2010 at 18:05 #553191402734069MemberMeð hvaða Swix áburði mælir þú?
Bleikum eða þarf heitari?
10. March, 2010 at 19:47 #55320GoliMemberKeypti gulan í dag hjá Vidda í Skíðaþjónustunni. Við Maggý erum sem sagt komin norður að taka út aðstæður. Fagna því sérstaklega að dvergar mæti á svæðið, en einhversstaðar sá ég talað um mittisdjúpan snjó
Minni á telemarkreglurnar frá því í fyrra…get póstað þeim hérna ef menn vilja. Þýskur ofuragi og Valli hinn ógnvekjandi er það eina sem dugar á móti gegndarlausu væli sem er jú hluti af keppninni.
11. March, 2010 at 15:36 #553300808794749MemberÉg held í bjartsýnina og neita að taka út klausuna um hið mittisdjúpa…
Kem með dverga til öryggis.Vil annars minna fólk á að vera með reiðufé á sér fyrir aprés ski og veisluna um kvöldið.
Síðasti séns til að skrá sig í veisluna er á hádegi á föstudag.12. March, 2010 at 10:40 #553310808794749MemberSmá tilkynning
BSO: Bifreiðastöð Oddeyrar býður okkur 15 % afslátt af taxta leigubíla út á Hrafnagil… -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.