- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
28. February, 2005 at 14:11 #462603008774949Member
Jæja norðanmenn
Fer ekki að birtast dagskrá fyrir festivalið góða….Eða verður það kannski haldið á kaffi akureyri sökum snjóleysis?Siggi S
1. March, 2005 at 09:27 #494862806763069Member“Team Árbær mætir að sjálfsögðu, 8 manns og leynivopn included” SS-Skarp.
Sorry Siggi en ég kemst ekki, ég var búinn að segja þér það og finnst því ekki sniðugt að vera auglýstur sem einhver viðburður. Fjölmiðlafulltrúinn minn er amk salt vondur yfir þessu.
kv.
SkiCore1. March, 2005 at 13:04 #49487SissiModeratorÁ þetta ekki að heita FRESTI-val? Ísklifur frestival og telemark frestival?
Málfarslöggan
1. March, 2005 at 13:41 #494880304724629MemberMér sýnist norðanmenn vera ragir við að segja sannleikann en þar ríkir víst almennt snjóleysi og er það miður.
Ætli bestu aðstæður á landinu séu ekki í Bláfjöllum.
Ef menn eru til í að leggja land undir fót, þá eru menn og konur velkomnar á Ísafjörðinn en þar eru allar lyftur opnar þó oft hafi verið meiri snjór. Samt vel hægt að skíða.
Tékkið á http://www.isafjordur.is/skirok
1. March, 2005 at 14:15 #494890704685149MemberSælir,
Telemarkhátíðiinni á Akureyri 2005 verður EKKI frestað.Það er verið að vinna í málinu, undirbúa markaðssókn með trúverðugleika og við förum að láta heyra í okkur. ÉG á víst að vera utan við þetta.
En bara til að láta ykkur vita þá hafa
skíðasvæðin á NORÐURLANDI verið opin lungan úr vetrinum. Til dæmis eru skíðasvæðin á Akureyri 8781515 , Dalvík 8781606 og Siglufirði 8783399 öll opin í dag 1. mars.Bíðið bara spennt…höfum við brugðist ykkur?
kveðja
1. March, 2005 at 14:55 #49490Stefán ÖrnParticipantTeam Árbær hefur fulla trú á norðanmönnum….en tekur með fyrirvara allar lýsingar um lausamjöll.
…og Ívar, þú verður hefur eitthvað mislesið textann hans Sigga. Hann hljómaði svo: “Team Árbær mætir að sjálfsögðu, 8 manns og LEYNIVOPN included”, ekki “Team Árbær mætir að sjálfsögðu, 8 manns og LUKKUTRÖLL included”
kv,
Steppo1. March, 2005 at 16:00 #494913008774949MemberJá norðanmenn hafa aldrei klikkað og fara varla að byrja á því núna.
Og Ívar: það er laus stað liðstjóra í go go girls hópnum okkar. Þú lætur bara vita ef þú hefur áhugaS
1. March, 2005 at 16:35 #494920304724629MemberÞað er í það minnsta gaman að bera saman myndir á http://www.hlidarfjall.is og http://www.isafjordur.is/ski
Annars bara hress
1. March, 2005 at 23:15 #494930704685149MemberSatt er það Rúnar.
Þú ert velkominn á Telemarkhátíðina á Akureyri helgina 11.-13. mars.
Þér er einnig velkomið að halda aðra Telemarkhátíð á öðrum tíma. Bara ekki stela þessari. Við erum svo fá sem stundum þessa skíðamennsku að það mundi alveg fara með hátíðina.En ég hvet menn að fara á skíðaviku um páskana, það er flott dagskrá
http://www.skidavikan.is/index.php?fl=10kveðja
2. March, 2005 at 08:57 #49494GoliMemberÍ Kleinwalsertal (Allgäu) í Þýskalandi er núna í dag að hefjast mikið telemarkfestival þar sem mæta um 300 iðkendur frá amk 8 löndum. Þeir sem kunna þýsku geta tékkað á http://www.telemark2004.de/ sem þrátt fyrir nafnið fjallar um telemarkhátíðina í ár (ekki 2004). Er spurning um að litla Ísland eigi þarna fulltrúa að ári….?
2. March, 2005 at 11:42 #494950309673729ParticipantTilvalið að Ísalp styrki sigurvegara í telemarkfestivalinu til farar á erlent telemarkfestival. Þá fáum við líka alvöru keppni!
kveðja
Helgi Borg2. March, 2005 at 18:21 #49496Páll SveinssonParticipantÞú meinar þeir fá alvöru keppni.
kv.
Palli3. March, 2005 at 02:21 #494970704685149MemberGóð hugmynd Helgi. En hvað meinið þið með að þetta sé ekki alvöru keppni? Þið hafið aldrei látið sjá ykkur, þannig að ekki vera að leggja dóm á eitthvað sem þið þekkið ekki af eigin raun. Það hafa nokkrir komið slasaðir, bæði á sál og líkama úr mörgum raunum sem háðar eru á Telemarkhátíðinni. Það er ekkert fyrir alla að taka þátt í: ,,Rauðhærðir á móti rest” nema kanski þegar Skúli er í HAM…
kv. Bassi
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.