Home › Forums › Umræður › Klettaklifur › Sumarið hefst í Stardal
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
28. April, 2008 at 10:46 #45545SkabbiParticipant
Hæ
Við Siggi Tommi kíktum upp í Stardal í gluggaveðrinu í gær. Frekar napurt í gjólunni um morguninn en hlýnaði þegar á leið. Renndum í nokkra klassíkera í Miðvestur hömrunum og enduðum á því að taka nokkrar umferðir í Gegnumbrotið í ofavaði. Ég giska á að kennaratyggjó sé góður kostur ef menn ætla sér að leiða þá frægu leið. Allavega það eina sem ég ímynda mér að tolli á klettinum fyrstu 10 metrana.
Góður dagur í grjótinu, sumarið er komið til að vera.
Allez!
Skabbi
28. April, 2008 at 12:44 #52705ÓlafurParticipantGegnumbrotið er reyndar ekki svo tortryggð ef maður veit hvað á að fara hvar. Ég held að yfirleitt byrji menn í Lúsífer upp að þakinu, hliðri síðan til vinstri og haldi áfram upp utan á stuðlinum – amk fór ég hana svoleiðis og hef bara séð hana klifraða þannig.
Það er alveg hægt að koma ýmsu inn með smá útsjónarsemi, bara að finna réttu staðina.
Hälsningar,
ó28. April, 2008 at 16:27 #52706RobbiParticipantSkv. topo af stardal liggur Gegnumbrotið upp fésið á stuðlinum, á milli Lucifer og Skrámunnar. Með því að Klifra byrjunina á Lucifer og hliðra yfir í Gegnumbrotið er verið að klifra framhjá “tortryggða” hlutanum.
Gegnumbrotið:
Utanverður stuðullinn milli B9 og B11 klifinn á
smágerðum jafnvægishöldum. EK eru hreyfingar
ofan við þakið og á augljósri egginni þar fyrir ofan.
Vandasamar tryggingar.Lucifer:
Jaðri stuðuls fylgt inn í gróf, þaðan upp fyrir lítið
þak (EK) upp óreglulega sprungu.robbi
28. April, 2008 at 18:19 #52707ÓlafurParticipantJamm, ég veit að leiðinni er líst svona í gamla leiðarvísinum. Ég hef hinsvegar aldrei séð neinn klifra hana svona. Og það er vissulega rétt að ef hún er farin svona þá er ekki hægt að tryggja með öðru en kennaratyggjói fyrst 7-8 metrana.
ó
28. April, 2008 at 18:19 #52708SkabbiParticipantHæ
Ég verð að vera sammála Robba hvað þetta varðar, það hljómar hálfundarlega að kifra Lúsífer hálfa leið og hliðra svo út á fésið enda missir maður þá af löngum og frekar snúnum kafla í Gegnumbrotinu. En það má kannski teygja sig yfir í Lúsífer sprunguna og tryggja neðri hlutann þannig.
Ekki það að ég sé e-ð á þeim buxunum, top-rope er fullnægjandi fyrir mitt litla hjarta.
Allez!
Skabbi
28. April, 2008 at 20:03 #527092806763069MemberMinnir að beint upp sé málið. Einn lélegur vinur inni í lítinn vasa. Ef eitthvað þá byrjar maður örlítið vinstra (Skrámumegin) á stuðlinum. Smá teygja og þá kemur maður lítill hnetu fyrir í einskonar V eða Y sprungu. Sér svo þegar maður klifrar framhjá hvort hún er góð eða ekki.
Fín leið. Vona að ég sé að tala um sömu leið og þið. Minnir að Halli hafi líka tekið þetta svona.
Annars er bara að spyrja mannlega leiðarvísinn Stefán Steinar um þetta. Hann getur líka sagt manni hvaða hnetustærðir þarf og í hvaða röð þær eiga að fara inn.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.