Ég var að forvitnast um ævintýr skíðahetjunnar Andreas Fransson á Denali. Hann skíðaði í vor niður suðurfés fjallsins, leið sem ekki hefur verið skíðuð áður. Áhugaverð frásögn af þeirri ferð og fleiri góðum missjónum má finna á síðunni hans.
Andreas Fransson bloggar
Hann segir m.a. frá Íslendingum sem hann hitti á fjallinu, Sigga og Baldri. Siggi þessi getur víst sagt góðar sögur.
Nú væri spennandi ef Siggi og Baldur segðu Ísölpurum sína sögu…
Annars er Andreas greinilega mikið ofurmenni, í sömu vikunni skíðaði hann Orient Express tvisvar, skíðaði suðurfésið og klifraði Cassin Ridge.