Yfir 50 manns, skemmtu sér við að skíða í ,,sumar-slössi” í flóðljósum og taka eitt og eitt stökk í kvöld.
Telemarkhelgin 2006 byrjar svaka vel.
Svaka shilluðu stemming með músík í brekkunum.
Veðrið með besta móti, vorstemming og allir glaðir.
Stökkkeppnin var hörð þar sem TEAM Garðabær sýndi svaka takta framan af en Akureyringa young-ones stóð vel í hárinu á þeim. Síðan mættu TAT með steratröll frá Norge og sýndu listir sínir.
Stelpurnar gáfu ekkert eftir og voru komnar á fljúgandi siglingu þegar leið á kvöldið.
Nash-liðið sást ekki fyrr en seint og um síðir og náðu sér varla á flug.
Síðan var haldið í After-ski og skemmt sér fram á nótt.
KL. 10:00 er stefnt að samhliðasvigi ( smá breytt dagskrá )
góða nótt
Bassi