Home › Forums › Umræður › Skíði og bretti › Stífir leðurskór.
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
24. February, 2004 at 00:40 #469950801667969Member
Hvar væri helst að leita fanga varðandi stífa leðurskó fyrir telemark og skíðagöngu? Hefur einhver farið nýlega í búðir?
-einn á ullarbrók
24. February, 2004 at 01:55 #484750704685149MemberEr bara verið að græja sig upp fyrir Telemarkmótið?
kv.
Bassi24. February, 2004 at 10:56 #484760311783479MemberEr ekki eina lausnin að panta þetta bara að utan? Allavegana held ég að engum detti lengur í hug að kaupa sér t.d.Scarpa T1 telemarkstövlar á 40þús. döðlur í Útilífinu.
Æ oftar saknar maður gömlu Skátabúðarinnar þar sem pupullinn gat labbað inn af götunni og treyst því að e-ð væri nú til af varningi. Þetta farið að minna á dönsku einokunarverslunina þar sem menn biðu eftir komu haustskipanna.
Árni, hvaða týpum mæla menn með af stífum leðurskóm?
-kveðja
Halli24. February, 2004 at 10:58 #484770801667969MemberVil nú ekki viðkenna það. Það er hins vegar alveg ljóst að ef ég mæti get ég ekki látið sjá mig á plastbúnaði sem ég kann ekkert á. Sem dæmi um vankunnáttuna á því sviði þá lagði ég á mig að keyra norður í land um helgina til þess eins að spyrja norðlending (Böbbi held ég að maðurinn heiti) hvernig ætti að festa gormana aftan á plastskóna. Þetta gerðist eftir táin á leðurskónum og skíðið fóru á eigin vegum niður Hlíðarfjall. Þetta sýnir hversu langt ég er komin í þessari plastmenningu.
P.S.I Hef nú aldrei komið í Hlíðarfjall áður en til að fyrirbyggja misskilning var ég EKKI að kanna aðstæður fyrir festivalið.
P.S. II. Stefán fyrrv. formaður var þarna á svæðinu og var með einhver comment á stílinn sem ég notaði. Þóttu honum aðfarirnar furðulegar. Mæli því með að tekin verði upp liður í mótinu þar sem keppt verður um afkáralegasta stílinn.
Kv. Árni Alf.
24. February, 2004 at 11:06 #484780801667969MemberVar nú að svara Bassa þarna áðan en Halli þurfti endilega að troða sér þarna á milli. Varðandi spurninguna frá þér Halli þá er ég alveg úti á þekju eins og venjulega. Verð bara að kíkja í búðir og bæklinga en var að vona að einhver vissi hvaða sjoppur biðu upp á leðurskó svona til að flýta fyrir. Kannski ætti ég að bjóða verkið út?
Kv. Árni Alf.
24. February, 2004 at 13:03 #484790704685149MemberÁrni,
Mig minnir nú að stíllinn þinn hafi verið með ágætum þegar við skíðuðum saman niður af Tungnafellsjökli með honum Lamba.En með leðurskó…þá mundi ég athuga í Skíðaþjónustunni á Akureyri…þeir luma oft á gömlu Telemark/gönguskíða-dóti sem hægt er að fá á hagstæðum kjörum. Síminn þar er: 462 1713
Síðan mundi ég ráðleggja þér að tala við Halldór fyrrverandi Skátabúðastjóra og athuga hvort hann geti ekki reddað þér Scarpa leðurskóm að utan. Er hann ekki með umboðið fyrir Scarpa? Þú hlýtur að finna hann í símaskránni
Taktu nú Hlyn og Lamba með þér á Telemarkmótið.
kv.
Bassi24. February, 2004 at 17:12 #484801709703309MemberStíll Árna er mjög hættulegur skíðandi og gangandi sem í nálægð við hann koma. Stafirnir standa eins og nautshorn út frá honum þetta er því “el torro” stíll. Tek samt fram að Árni er alltaf við góða stjórn.
25. February, 2004 at 01:25 #484812401754289MemberEf ykkur vantar graejur a agaetu verdi tekkid tha a http://www.tlemarkpyrenees.com
freon
25. February, 2004 at 01:27 #484822401754289Memberupps telemarkpyrenees.com
25. February, 2004 at 15:54 #484831705655689MemberÁrni, hérna eru dómar um leður skíðaskó
http://www.backcountrymagazine.com/index.php?module=Static_Docs&func=view&f=/light_boot_review.html
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.