Home › Forums › Umræður › Klettaklifur › Stardalur – boltun
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
18. March, 2009 at 01:36 #471650703784699Member
Í framhaldi af umræðu um gráðun ísklifurs langaði mig að taka upp annan þráð um annað hitamál. Boltun Stardals.
Einsog ég hef sagt áður að þá er það algerlega fráleitt að huga að boltun Stardals enda ekki sportklifursvæði. En minnir að umræðan hafi síðan aðalega snúist um hvort setja ætti upp toppakkeri til að tryggja öryggi. Undanfarið hef ég verið að klifra í Morialta í Suður Ástralíu og þar er dótaklifur stundað af áfergju. Þar hefur heimamaðurinn komið upp góðum topp akkerum til að tryggja öryggi og flýta fyrir því að setja upp ofanvað (top rope). Þykir það partur af búnaðnum að eiga top-rope-kit, sem undirritaður neyddist til að fjárfesta í þar sem dótið var flest allt skilið eftir heima. Kit-ið samanstendur af 10-25 metra static rope (eftir því hvaða svæði þú ert á, flestir eiga bara einn langann og eru þá ekki takmarkaðir við neitt svæði), línuvarnir og svo tvær læstar karabínur (helst stál). Svona toppakkeri myndi ekki skaða sprunguklifur með dóti að neinu móti en gæti aftur á móti aukið öryggi þeirra sem eru að klifra þarna og einfaldað aðgang byrjenda. Það eru nokkrar leiðir sem sameinast um hvert toppakkeri þannig að ekki þyrfti að setja upp of mörg akker.i
Tók þessa mynd til að sýna landanum, http://picasaweb.google.com/himmi78/PicasaFebruar2009#5309311611788481058 , en þetta væri kannski eitthvað sem mætti skoða fyrir Stardal?
Þó ég sé staðfastlega á þeirri skoðun að það eina sem auka myndi aðgang að Stardal væri rúllustigi, að þá langaði mig að brydda aðeins uppá annarri líflegri umræðu og heyra hvort skoðanir fólks hefðu eitthvað breyst með tímanum.
kv.Gimp
18. March, 2009 at 07:53 #540042806763069MemberWow, Himmi. Ekki nóg með það að þú sért að reyna að vekja hinn sofandi (ljóshærða) risa heldur ertu líka búinn að stugga við öllum rauðstaka sérfræðingunum með því að sýna menn síga á einni tryggingu.
Hvað ertu eiginlega að reyna að gera með þessu? Þú hlýtur að hafa fengið alvarlegan sólsting þarna niður frá og ættir að láta leggja þig inn hið bráðasta.
kv.
SoftarinnP.s. Annars átti ég líklega upptökin af einni svona umræðu og er enn þeirrar skoðunar að topp akeri væru snilld í Stardal. Held samt að útfærsla þar sem hægt væri að síga á tvöfaldri 30m línu væru hentugri. Það er einfaldlega óþægilegt að brölta niður, og líklega ekki alltaf hættu laust heldur ef menn fara út í þá sálma.
18. March, 2009 at 10:24 #54005SmáriParticipantToppakkeri í Stardal já takk en má ég biðja um tvo bolta. Sammála Ívari að ein trygging dugir ekki í toppakkeri, það er ekki bara boltinn einn og sér sem er tryggingin heldur líka línan/slingurinn sem maður sjálfur setur í og er hluti af akkerinu. Alltaf að hafa tvöfallt öryggi í toppakkeri því þó að boltinn sé solid geta verið brestir í persónulegum búnaði.
kv. Smári
18. March, 2009 at 11:18 #540060703784699MemberÍ guðanna bænum ekki fara að skipta um umræðuefni, hvort einn eða tveir boltar nægi eða pelastikk eða áttuhnútur. Ég get ómögulega séð hvernig það kemur málinu við með bolta eða ekki. Þú bara klippir inn einsog þú vilt. Ég tók þessa mynd á heimleið og þarna eru einhverjir aðrir en ég að klifra með einþræðung niður.
En svona til að lýsa þessu aðeins betur að þá er notast við top-rope (10-25 metra statik línu) til að búa til megintryggingu úr einum RISA stórum bolta sem ég geri ráð f. að sé vel á annan meter niður í jörðina (enginn sport klippi bolti heldur heavy duty járn). Þessi megintrygging nær síðan útá brún þar sem línan er klippt í karabínuna (helst járn ef því er að skipta) í áttuhnút eða hvað sem þú vilt nota. Því er nauðsynlegt að vera með línuvörn á statik línunni og klifurlínan er þá alveg frí en þá er því miður ekki toppað leiðarnar.
Hvort heldur sem menn setji upp þrefalt eða tvöfalt system skiptir mig engu, þessi bolti heldur því einn og sér það er það sem máli skiptir og þeir eru svona 2-10 metra frá brún.
Kosturinn kannski við þetta svæði frekar en Stardal er að þar er gengið niður í klettana og því setur maður upp kerfið og labbar (eða sígur) niður í leiðirnar. Svo náttúrulega geta menn alltaf bara leitt með dóti ef því er að skipta þetta var bara pæling með boltann en ekki hvernig þú klippir eða tryggir þitt öryggi.
kv. Einn með sólsting
19. March, 2009 at 17:43 #540072506663659ParticipantÞað er ekki hægt að segja annað en að þetta séu vegleg akkeri sem þeir nota þarna niðri
En er sammála Ingimundi með þetta að setja upp sig/toppakkeri í Stardal. Mundi auka öryggi og svo er maðurorðin helv… þreittur á að skrölta í “túttunum” niður aftur.kv,
Guðjón19. March, 2009 at 19:37 #540081902834109MemberSammála síðasta ræðumanni um að vera sammála fyrsta ræðumanni
Kv,
Gunni20. March, 2009 at 08:27 #540091908803629ParticipantJá takk – fínt fyrir mig og hina “aumu” sportklifrarana að hafa valkost í Stardal.
20. March, 2009 at 09:13 #540102003793739MemberAf hverju setja menn ekki bara þessa auka línu utan um stein á toppnum, nóg af þeim í Stardal?
Kv.Halli
20. March, 2009 at 13:02 #54011Páll SveinssonParticipantMín skoðun er þekkt og hún hefur ekkert breist.
En ef það á að gera eitthvað þá gera það vel og í þokkalegri sátt.
Ekki bara eitthvað, annars er betra að sleppa því.
Ef græa á sigakkeri þá gera það almennilega svo þau virki og endist.
kv.
Palli20. March, 2009 at 22:10 #54012Siggi TommiParticipantSammála um sigakkeri á nokkrum vel völdum stöðum.
Myndi flýta verulega fyrir við klifur í Miðhömrum og vera til hægðarauka á hinum svæðunum, þó þetta sé ekki jafn aðkallandi þar.22. March, 2009 at 11:23 #54013ÓlafurParticipantSigakkeri á eftirfarandi stöðum væri til þæginda:
Vesturhamrar: Rétt austan við toppinn á scottsleið þ.a. maður kæmi niður ca neðst í gilinu milli vestur og mið-vestur hamra.
Mið-vestur hamrar: Sennilega best að setja upp akkeri á svæðinu kringum Flagið og diet-7up.
Mið-hamrar: Vestast, fyrir ofan niður-klöngursleiðina sem byrjar ca þar sem Rispan endar.
Leikhúsið: Það væri óneitanlega þægilegt að hafa toppakkeri þar sem hægt væri að síga beint niður í leikhúsið. Það væri ekki óvitlaust að geta notað akkerið líka til að setja ofanvað í Óperu og hinar leiðirnar í þakinu.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.