Snjór og snjóalög fyrir Telemarkhátíðina

Home Forums Umræður Skíði og bretti Snjór og snjóalög fyrir Telemarkhátíðina

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46734
    0704685149
    Member

    Nýjustu fréttir úr Hlíðarfjalli í dag, þriðjudag 11. mars 2002.
    Mér var tjáð, nú í kvöld, að skíðafærið hafi verið alveg eins og best væri á kosið í troðnum brautum. nægur snjór í Strýtunni.
    En utanbrautarfæri hafi verið aðeins þyngra en það var í gær.

    Ég veit um nokkra norðan pilta og stúlkur sem eru að æfa telemarksveifluna grimmt nú fyrir helgina. Það verður tekið á því og engin fyrstu verðlaun munu falla til sunnlenskra brettara.

    Með swing kveðju
    Bassi og Böbbi

    #47814
    1709703309
    Member

    Sjáum til með það bræður.
    Kv.
    Stebbi

    #47815
    1709703309
    Member

    Hvet fólk sem ætlar að mæta á Telemarkfestivalið að skrá sig það hjálpar norðanmönnum við undirbúning.

    Kv.
    Stebbi

    #47816
    3006774879
    Member

    Heyrst hefur að brettmaðurinn ógurlegi hafi ekki farið á skíðin síðan í fyrra en ætli samt að rústa þessu …..

    #47817
    0704685149
    Member

    Þá sást til Bretta “dúdsins” á Snæfellsjökli, fyrir tveimur vikum, við stífar telemarkæfingar. Viku seinna var hann einning við æfingar í Hlíðarfjalli, kynna sér brautir, snjóalög og fleira. Svona eru þessir brettarar, nota öll ráð.

    En við spyrjum að leiks lokum.

    kveðja Bassi

    #47818
    3008774949
    Member

    Einnig hefur heyrst að aðalbrettarinn sé ekki á landinu og verði því að gefa hinum séns þetta árið…………..

    #47819
    0704685149
    Member

    Því get ég nú alveg trúað, að umræddur brettari sé í útlölndum við æfingar með norska telemarklandsliðinu. Hann er víst búinn að frétta að verðlaunin í ár séu mun veglegri en í fyrra.

    kveðja Bassi

    #47820
    Ólafur
    Participant

    Árbæingar munu mæta galvaskir, hafa enda titil að verja. Ég vil líka benda á að í fyrra áttu Árbæingar flesta keppendur miðað við höfðatölu af öllum sjálfstæðum bæjarfélögum á Íslandi.

    #47821
    1705655689
    Member

    Er nægur snjór og verður nægur snjór um helgina?
    Eru vegir sæmilega greiðfærir fyrir fjölskyldufólk með 1 árs skæruliða

    #47822
    0704685149
    Member

    Snjóalög eru í góðum málum í Hlíðarfjalli. Við erum búnir að vera á fundi með starfsmönnum skíðasævðisins og við munum græja keppnirnar alveg sama hvernig sem fer. Við hlökkum til að sjá ykkur öll.

    En það er annað mál með vegamálin, ég hef séð í Sunnlenskafréttablaðinu að Hellisheiðin getur verið varasöm….þó held ég að það séu frekar bílstjórarnir þarna fyrir sunnan!!! Common 16 bíla árekstur…það eru nú ekki svona margir bíla í einu í gangi hér í sveitinni. Öxnadals- og Holtavörðuheiðin eru alveg draumur eins og venjulega.

    kveðja Bassi og Böbbi

Viewing 10 posts - 1 through 10 (of 10 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.