Það hefur sett niður talsverðan snjó síðustu daga í fjöllum hér á suðvesturhorninu. Þessi nýji snjór liggur allur á harðafenni svo hann getur hæglega farið á hreyfingu. Til marks um þetta hafa snjóflóð verið að falla á og við skíðasvæðið í Bláfjöllum bæði í dag og gær. Það hljóta að teljast stór tíðindi að slíkt geti gerst í Bláfjöllum.
Kv. Árni Alf.