Skinnuðum meðfram Fjarkanum framhjá Strýtuskála og upp Norðurbakka í gær. Ákváðum að halda áfram upp meðfram augljósum melum í Norðurbakkanum og vorum komin vel áleiðis upp í brekkuna þegar mikill hvellur heyrist og í kjölfarið fer af stað nokkuð stórt flekaflóð úr allri skálinni í Norðurhlíð Hlíðarfjalls. – Minnir mann á að aldrei er of varlega farið “heilög þrenning” er þarfaþing og betri er krókur en kelda. Allir komu heilir heim.