Home › Forums › Umræður › Skíði og bretti › Snjóalög í Botnsúlum
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
1. February, 2008 at 13:34 #470661305703569Member
Getur einhver upplýst um snjóalög í Botnsúlum, m.t.t. skíðaferða?
1. February, 2008 at 14:01 #52348Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantNýliðar HSG voru þar síðustu helgi. Það var víst allt á kafi í snjó í lægðum og giljum. Melar stóðu hins vegar berir uppúr. Sjá hér http://hsg.smugmug.com/gallery/4236561#248426240
Ætla menn ekki að lemja ís á morgun? Vantar klifurfélaga fyrir laugardag. S: 695 3310
Ági
1. February, 2008 at 14:03 #523490203775509MemberLaugardaginn var gengum við á gönguskíðum Leggjabrjót, frá Þingvöllum í Botnsdal. Það var víða lítill snjór á hryggjum og melum, en þó áberandi meiri snjór nær Þingvöllum heldur en Hvalfirðinum. Á gönguskíðum er hægt að læðast yfir þunnan snjó en eflaust eru einhverjar góðar lænur og gil sem má renna sér í í Botnssúlunum sjálfum.
Á sunnudaginn tók eflaust eitthvað upp af snjónum en svo hefur verið einhver éljagangur og bætt aftur í sem hefur svo væntanlega aftur skafið burt í norðanáttinni.
há
1. February, 2008 at 18:38 #52350Steinar Sig.MemberNýliðar FBSR fóru upp úr Brynjudalnum um þar síðustu helgi til að stúdera snjóflóð og snjóalög.
Það var fullt af nýjum snjó þarna, þungt að ganga. En þetta var eitt samfellt púðurlag niður í jörð á þessum tíma og víðast hvar of grunnt eða létt til þess að skíða í. Púður…púður… grjót.. grjót! Þetta fauk svo mest allt í lok helgarinnar og settist í hengjur og gil => snjóflóðahætta
Sjálfsagt mikið breyst síðan þá.
http://flickr.com/photos/helgi27/sets/72157603759592466/
Steinar Sig.
1. February, 2008 at 19:15 #523510801667969MemberS.l. mánudag gerði smá hláku a.m.k upp í 800 m. hæð sunnanlands. Við það myndaðist glerhart snjólag. Lítillega snjóaði ofan á það sem fauk svo í skjól í norðanhvellinum í gær, fimmtudag. Reikna því með glerhörðu skíðafæri almennt sunnanlands.
Kv. Árni Alf.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.