Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › skyndi-ísfestival um helgina (19. og 20.mars) ?
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
13. March, 2011 at 19:00 #47599Gummi StParticipant
Þar sem ísfestivalinu var frestað vegna aðstæðna í febrúar vildi ég athuga hvort það sé ekki góð stemming fyrir því að halda festival nú um helgina á Bíldudal?
Hvað segiði um þetta?
Bestu kveðjur
14. March, 2011 at 18:23 #56500Freyr IngiParticipantErtu með ferskar myndir þaðan?
Hefurðu heyrt eitthvað með aðstæður?
15. March, 2011 at 14:47 #56502gulliParticipantÉg er til ef það eru aðstæður. Hvernig er staðan á því?
15. March, 2011 at 15:21 #56503Freyr IngiParticipantSvo má nátturlega fara styttra en yfir hálfan hnöttinn.
Grundarfjörð td.16. March, 2011 at 13:11 #56510Freyr IngiParticipantAugljóslega engin stemming fyrir ísfestivali á þessu ári.
16. March, 2011 at 14:31 #56511gulliParticipantFreyr Ingi Björnsson wrote:
Quote:Augljóslega engin stemming fyrir ísfestivali á þessu ári.Jú, það bara hlýtur að vera. Skilst að stjórnin sé að hamast við að rýna í veðurspár. Grundarfjörður hljómar vel … óþarflega langt á Bíldudal …
16. March, 2011 at 15:24 #56512SkabbiParticipantHæ
Ég er alveg til að kíkja um helgina, Grundarfjörður er alltaf góður, eins Haukadalur eða annað á vesturlandinu.
Allez!
Skabbi
16. March, 2011 at 19:57 #56513Gummi StParticipantTil upplýsinga:
Við höfum verið að liggja yfir veðurkortunum en það eru bölvuð lægðarkerfi að þvælast yfir landinu svo það er erfitt að segja til um veðrið fram í tímann.
Hinsvegar viljum við stefna á það að fara um helgina, hvort sem það verður dagsferð eða gistiferð einhvert í seilingarfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu, hugmyndirnar eru að ef slæmt veður er á sunnudag að halda bara góðan klifurdag hér í nágrenninu og enda í félagsheimilinu og eiga góða stund þar. Annars er hægt að fara lengra og taka 2 klifurdaga.Ekki er hægt að siga fjöldanum alla leið á Bíldudal með svona örstuttum fyrirvara svo það getur verið gott að eiga það inni á næsta ári.
Í núverandi spá gerir einnig ráð fyrir hlýindum eftir helgina og þá má guð vita hvort hægt sé að berja ís eitthvað meira á láglendinu í vor.
mbkv,
Stjórnin17. March, 2011 at 23:39 #565151811843029MemberJæja, þá er komið plan fyrir helgina. Kíkið á fréttina á forsíðunni.
Vegna veðurs og stutts fyrirvara er planið að taka góðan laugardag í Múlafjalli. Vonum að sem flestir mæti og gerum góða stemmingu.
Sjáumst á laugardaginn
18. March, 2011 at 17:17 #56519SkabbiParticipantKúl, ég er klár!
Skabbi
18. March, 2011 at 20:38 #56520Freyr IngiParticipantFreyr og Styrmir mæta.
18. March, 2011 at 20:56 #56521gulliParticipantAllt að gerast, mæti líka!
18. March, 2011 at 20:57 #56522Gummi StParticipantFrábært, ég setti inn nokkrar myndir af aðstæðum eftir bíltúr í kvöld í fréttagrein efst á forsíðunni fyrir forvitna.
Muna svo bara að eiga örlitla orku fyrir partýið eftir klifrið!
-GFJ
18. March, 2011 at 22:23 #56523Gummi StParticipantÞað eru líka einhverjar myndir frá síðustu helgi þegar við klifum Rísanda á http://climbing.is/lesa_frett.php?id=164
18. March, 2011 at 23:26 #565241908803629ParticipantMæti eiturhrezz
19. March, 2011 at 19:12 #56526Freyr IngiParticipantFullt af hressum krökkum fóru út að leika í dag.
Megnið af hópnum sem hittist bensínstöðinni í morgun hélt af stað í Múlafjall í Hvalfirði en þó ætluðu einhverjir að nýta snjóinn til skíðaiðkunar í Botnssúlum.
Þegar inn í Hvalfjörð var komið var þessi þurri nýji snjór sem féll í nótt kominn á hreyfingu. Skíðafólkið breytti um stefnu og fór á Skálafell meðan ísfólkið hélt til í fræsingnum og barði klaka með blinduð augu af snjó. Hluti hópsins leitaði á önnur mið og fann eitthvað bærilegra veður í Búahömrum.Takk fyrir góðan dag!
20. March, 2011 at 15:38 #56530Gummi StParticipantÉg setti nokkrar svellkaldar myndir síðan í gær í grein efst á síðunni.
-GFJ
20. March, 2011 at 20:55 #565311908803629ParticipantÞetta var kempugóður dagur og kvöldið ekki síðra
Takk fyrir mig!
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.