Home › Forums › Umræður › Skíði og bretti › Skíðafæri Bláfjöllum
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
4. November, 2010 at 15:58 #474620801667969Member
Vil benda mönnum á að búið er að leggja göngubraut í Bláfjöllum. Liggur hún um leirurnar sunnan bílastæðis á Suðursvæði. Skilst á mönnum að komin sé góður grunnur en einhverja snjókomu þurfi í viðbót til koma brekkunum inn.
Hvet menn til að skella sér á skíði.
Kv. Árni Alf.
4. November, 2010 at 19:08 #557410503664729ParticipantTakk fyrir að láta vita Árni.
Skrapp áðan og þetta var eðalfínt.
JVS4. November, 2010 at 20:44 #557421506774169MemberJón Viðar: var þetta nógu þykkt til að lifa af rigningu helgarinnar? Maður nær smá rennsli á morgun en langar í meira eftir helgi
4. November, 2010 at 20:49 #55743Rakel Ósk SnorradóttirParticipantÞetta var fínt. Skellti mér áðan. Eðal veður.
4. November, 2010 at 21:45 #557440801667969MemberGaman að sjá hvað fólk er fljótt að taka við sér. Lífið er nefnilega allt of stutt til þess að vera alltaf að bíða eftir betri eða “réttu” aðstæðunum. Er meðan er.
Skv. veðurþáttaspá Veðurstofunnar þá bætir frekar í snjó núna um helgina frekar en það taki upp. Eftir helgi spáir kulda. Er búin að rýna í þessar spár í mörg ár. Vonandi lendir þetta réttu megin við núllið um helgina en spá er spá.
Kv. Árni Alf.
4. November, 2010 at 22:34 #557451506774169MemberEr ekki rétt til getið hjá mér að það sé 3-4 gráðu munur á láglendi Reykjavíkur og Bláfjöllum? Þá gæti þetta hangið í 0-1°C.
5. November, 2010 at 21:26 #557492411784719MemberKíkkið bara norður í fjallabyggð, TVÖ skíðasvæði opin á morgun nægur snjór fyrir þrammara líka
8. November, 2010 at 20:22 #557570801667969MemberÞetta fór eins og ég sagði, það lenti réttu megin við núllið og heldur betur bætti í. Allt kjaftfullt af snjó. Nú er unnið við ýtingar. Líklegt er að allar helstu skíðaleiðir sem skarta snjógirðingum verði komnar inn annað kvöld.
Talsverð vinna er samt eftir svo hægt sé að opna. Þó ekki verði lyftur í gangi þá geta menn bara skinnað og notað troðnar brautir.Stefnt er á almenna opnun um helgina.Kv. Árni Alf.
P.S. Nú eru komin spiltroðari í Bláfjöll. Hann er með vír sem er 1,5km að lengd. Tæki sem er allgjör snilld. Það er lífshættulegt að vera í sömu brekku og viðkomandi troðari. Góð regla. Skíðið aldrei í brekku sem troðari er að vinna í.
8. November, 2010 at 22:04 #557583110665799MemberVið skulum vona að ofankoman breyti hugmyndum Predatorsins um rekstur Bláfjalla.
8. November, 2010 at 22:18 #557590703784699MemberÞað eru fleiri bæjarfélög en borgin sem koma að þessu og því er máttur predators lítill í þessu samhengi, sem betur fer.
En gaman að heyra að það sé kominn spiltroðari, ef menn kunna á slíka græju þá má lappa uppá pallasmíðina sem hefur ekki verið uppá marga fiska undanfarin ár
Það lítur vel út í kortunum…sjáumst í fjallinu
10. November, 2010 at 12:20 #55769SkabbiParticipantHæ
Kíkti uppí Bláfjöll eftir vinnu í gær og gekk nokkra hringi í göngubrautinni, sem var eðalfín. Nokkrar lyftur voru í gangi í Suðurgili og merkilega mikill snjór. Þetta er allt að bresta á!
Skabbi
10. November, 2010 at 20:10 #55772vikgudMemberVar uppi í Bláfjöllum í kvöld í topp aðstæðum.
Kongurinn var opinn og eitthvað af diskalyftum. Kongsgilið sjálft er ótroðið og eitthvað um steina (lokað) en öxlinni er í mjög góðu standi, nægur snjór og vel troðið.
10. November, 2010 at 22:19 #557730801667969MemberVið “heimamenn” tölum um Norðurleiðina sem sumir nefna Öxlina. Þetta er þriðji veturinn í röð sem Norðuleiðin kemur inn á undan Kóngsgilinu. Þetta er algjör viðsnúningur frá fyrri árum þegar Kóngsgilið kom alltaf inn fyrr og var oft eina opna skíðaleiðin.
Þessar breytingar má rekja til snjógirðinganna í Norðurleiðinni. Það væri engin að hugleiða opnun í Bláfjöllum nema fyrir þessar nokkru spýtur.
Kv. Árni Alf.
17. November, 2010 at 15:57 #558180801667969Member17 nóvember 2010
Hér í Fjöllunum er dýrðardagur, sól, léttskýjað, nánast logn og frost 2 gráður. Mikið bætt í snjó opg færið er flott. Kóngsgilið orðið breitt og fínt. Fínt færi utan brauta.
Maður sér þokuna lóna yfir höfuðborginni eins og teppi. Hvet menn til að skríða úr þunglyndisþokunni og skella sér á skíði.Kv. Árni
18. November, 2010 at 11:10 #55822Rakel Ósk SnorradóttirParticipantFærið í gær var mjög gott. Vona að þetta haldi áfram svona.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.