- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
7. May, 2003 at 02:06 #461273110665799Member
Hnaut um fræðandi grein formanns his íslenska alpaklúbbs, í björgunarblaðinu, hann mynntist á skála klúsbbsins og nefndir þeim tengdum. Fræðandi og hressandi. En spurningar vöknuðu.
1. Hvurjir eru í þessari eða þessum nefndum ?
2. Hvurjar eru stefnur og markmið klúbbsins í skálamálunum ?
3. Verður það verkefni nefdar(ana) að móta framtíð og stefnu klúbbsins í því máli eða stjórnar ?
Í von um að spurningar þessar særi nú engan eða séu ærumeiðandi, bíð ek auðmjúkur svars.Valli.
7. May, 2003 at 09:50 #47978KarlParticipantSlæmar eru nefndirnar
Hvernig er með efndirnar
sem sumir lofuðu sumum…Við Jón Gunnar vorum orðaðir við Bratta, -efndirnar enn sem komið er slæmar.
Heyrst hefur að mjög þörfum ferður Valla og Stjóna í Tindfjöll.
Ég komst yfir litla olíukabysu sem ég hugsaði fyrir Bratta en síðan kom upp hugmyndin að leggja niður kyndiútgerð í þeim skála þar sem fjallamennska í Botnsúlum væri alla jafna stunduð í dagsferðum og og skálin aðallega nýttu af hjálparsveitum og sleðamönnum sem í raun eru okkur óviðkomandi.
Sunnlendingar, aðallega umhverfis Hvolsvöll hafa uppi hugmyndir um e-h resort í Tindfjöllum þar sem ægt geti saman skíðamönnum sleðamönnum og jeppajuði. Slíkt er ekki áhugaverður kokteill fyrir okkur fjallamenn og er í raun mælikvarði á hvað hugmynd þessi er arfavitlaus. Fyrir utan hvað Tindfjöll eru magnað veðravíti og aðkoman vörðuð með þverhníptum giljum á báða vegu…
Tindfjallaskáli er orðinn veðurmóður eftir sex áratugi. Það er hægt að framlengja hann til e-h áratuga en einnig er vert að velta upp þeirri hugmynd að koma upp skála sem samanstendur af forstofu/neyðarskýli og læstum vistarverum þar innaf fyrir Ísalpara.Það er virkilega þörf á að ræða þessi mál og negla stefnuna.
Það er í raun stefnuleysið sem hefur valdið því að félagið hefur látið skálana drabbast.Látið í ykkur heyrast.
Ps.
Valgeir, -þú ert alltaf ærumeiðandi…..-skítt með helv auðmýktinakv
Kalli7. May, 2003 at 10:01 #479791709703309MemberHeilir og sælir,
Við, Kristján Guðni Bjarnason og Guttormur Þórarinsson erum víst í skálanefndinni. Á dagskrá er að kíkja fljótlega í vettvangsleiðangra vopnaðir nýjustu ljósmyndagræjum og skrá niður allar heimildir varðandi verkefnaplan fyrir báða skálanna.
Með von að sem flestir sláist í för þegar framkvæmdir hefjast.
Kv.
Stebbi7. May, 2003 at 11:03 #479801410693309MemberEr það rétt sem mér heyrist (Kalli)? Er einhver að hugsa um það í alvöru að gefa skálann uppá bátinn og reisa e-s konar appelsínugulan plastdall í staðinn? Minni á að skálinn hefur ríkt varðveislugildi auk þess sem það getur verið talsvert vesen að reisa nýjan skála af ýmsum ástæðum (sbr. t.d. Fimmvörðuhálsmálið skemmtilega). Hvað sem líður hugmyndum björgunarsveitarmanna um endurreisn Tindfjallasels (neðsta skála) þá mun þessi skáli alltaf standa fyrir sínu sem best staðsetti skálinn á svæðinu. Það ættu jafnvel Norðlendingar að vita. Ég get svo bætt því við að ég var þarna síðast um páskana og þá var skálinn þurr og þriflegur (fyrir utan eina dýnu sem Jón Gauti Jónsson bleytti um nóttina), nóg af gasi á kútunum og eldhúsbúnaður á sínum stað. Ég veit ekki betur en að nægilega margar spýtur séu ófúnar í skálanum svo að enn sé hægt að halda honum við (þið leiðréttið það ef rangt reynist) með ófaglærðu vinnuafli. Sting uppá að við hættum þessi svartnættisrausi og söfnun heldur liði í viðhaldsferðina í sumar.
Kv. Skúli Magg.7. May, 2003 at 11:40 #479812802693959MemberFyrst þú þurftir að leka þessu þá gef ég hér með kost á mér…þó ekki til annars en að þurka dýnuna!. Lýsti því reyndar yfir í umræddri ferð að ég væri boðinn og búinn í hverskonar handlang fyrir alla tré og járnsmiði sem stýra þurfa aðgerðum sem þessum. …Bið hér með gjaldkera að senda ofanrituðum reikningsnúmer klúbbsins svo gera megi upp skuldir fyrir gistingu?
p.s. Ég er orðin Ísalp félagi með síðu! Gott framtak Helgi. Þú verður seint oflofaður fyrir framtak þitt í vefmálum.7. May, 2003 at 11:41 #479822802693959MemberFyrst þú þurftir að leka þessu þá gef ég hér með kost á mér…þó ekki til annars en að þurka dýnuna!. Lýsti því reyndar yfir í umræddri ferð að ég væri boðinn og búinn í hverskonar handlang fyrir alla tré og járnsmiði sem stýra þurfa aðgerðum sem þessum. …Bið hér með gjaldkera að senda ofanrituðum reikningsnúmer klúbbsins svo gera megi upp skuldir fyrir gistingu?
p.s. Ég er orðin Ísalp félagi með síðu! Gott framtak Helgi. Þú verður seint oflofaður fyrir framtak þitt í vefmálum.
jon gauti7. May, 2003 at 11:54 #479831705655689MemberSem einn af fáum sunnlendingum í klúbbnum var ég búinn að senda stjórninni rafpóst og bjóða fram aðstoð mína við lagfæringar á Tindfjallaskála. Það boð stendur enn, og vona ég að stefna verði mótuð sem fyrst um hvað gera á við skálann og lagfæringar hefjist sem fyrst.
Bárður Árnason “austan heiðar”7. May, 2003 at 14:01 #47984kgbParticipantHér er kjörið tækifæri til að ákveða hvenær stefna skal að ferð upp í Tindfjöll að taka út skálan. Stebbi og Bárður, hvernig væri að drífa sig næstu helgi og gera lítið eitt formlega úttekt á skálanum? Við getum skilað henni hingað á vefinn til að fá umræðu um næstu skref?
7. May, 2003 at 15:18 #479851709703309MemberÉg er tilbúinn að fara á sunnudaginn, hvað segið þið um það? Kannski vill Valgeir Ægir koma með okkur.
Kv.
Stebbi7. May, 2003 at 15:24 #47986KarlParticipantÉg er ekki að hugsa eitt né neitt appelsínugult.
Frekar að velta upp íhugmyndinni um að opna í Tindfjöllum neyðar forstofu og læstan skála innaf.
Spurningin um að hætta kyndingu í Bratta er út af borðinu ef nægilegt dræf er til staðar að reisa ryðfría skorsteinin sem legið hefur á gólfinu í hálfan áratug…..Annars þurfum við víst engin þægindi, -skv Mogganum í dag er fjallamennska aðallega harðræði þjáningar og faðmlög og þarf ekki hús til þess arna.
7. May, 2003 at 15:42 #479873110665799MemberLegg til að farin verði vettvangsferð eins og ek og Stjóni gerðum og Kristján stingur uppá fyrst. Skoðuð verði brýnustu verkefni og kostnaður, efni og þessháttar. Ég kem sperrtur, laugardagur eða sunnud. henta mér prýðilega til Tindfjallaferðar. Einnig er ég ódeigur til Bratta-ferðar, hvunær sem er. Á orðið svolítið af verkfærum og Hræhatsú Röstí sem er ágætur til gripaflutninga þó ekki stórra, þolir illa skoðun. En sjálfur er ek verkvitur með abbrigðum.
ps. Kalli þú ert ekki sem verstur sjálfur.
Valli.
7. May, 2003 at 21:07 #479881705655689MemberÉg er tilbúinn að fara hvenær sem. Austurfarar geta ekið hingað á Selfoss, fengið kaffi og með ðí og haldið áfram í fjöllin.
Bárður8. May, 2003 at 15:35 #479891410693309MemberÍ stað þess að breyta Tindfjallaskálanum með tilliti til þess að unnt sé að læsa honum myndi ég frekar leggja til að litlu stöðluðu neyðarskýli á la Slysó yrði komið fyrir í nágreinni skálans, t.d. á melnum vestan við hann. Skýlið gæti svo nýst sem konjaksstofa skálagesti. Annað var það ekki…
Kv. Skúli Magg.8. May, 2003 at 15:54 #47990KarlParticipantÞessi hugmynd Skúla finnst mér allrar skoðunar verð. Útgerð og aðbúnaður í skálanum er öll önnur ef um er að ræða læstan Ísalp skála.
kv
Kalli9. May, 2003 at 02:32 #479913110665799MemberGóðar höggmyndir, stefnum austur nú um helgina, mælum og skoðum.
Kv
Valli.9. May, 2003 at 09:12 #47992kgbParticipantSunnudagurinn er flottur. Hittumst við Klifurhúsið kl. 9? Hvar finnum við þig Bárður?
Kveðja,
Kristján, gsm 8200412 -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.