Home › Forums › Umræður › Skíði og bretti › Púður og snjóflóðahætta
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
12. January, 2007 at 16:14 #456210801667969Member
Nú hefur sett niður mikinn snjó í fjöllum kringum höfuðborgina og virðist ætla að verða áframhald á því sem betur fer. Þetta er víða mittisdjúpt púður sem óneitanlega er skemmtilegt að skíða í. Þetta efni er líka fljótt að fjúka til og því ljóst að snjóflóðahætta verður talsvert mikil um helgina.
Spáin er ágæt fyrir helgina og því margir á faraldsfæti. Munið því hina heilögu þrenningu þau ýli, snjóflóðastöng og skóflu. Best er þó að byrja á að nota höfuðið t.d. með skynsamlegu leiðarvali og reyna að forðast að þurfa að nota þessi tól.kv. Árni Alf.
12. January, 2007 at 18:28 #509022806763069MemberGet tekið undir þetta með síðasta ræðumanni. Við Viðar vorum að koma úr Grafarfossinum. Ísaðstæður eru eins og best verður á kosið. Hinsvegar hefur hið sjaldgæfa púður nú fokið til og myndað væna fleka í öllum giljum. Það er því full ástæða til að fara að öllu með gát. En þar sem ekki er mikill snjór ætti að vera nokkuð auðveld að velja snjólausar/litlar leiðir upp og niður. Gleymið samt ekki að þunnir flekar bresta frekar en þykkir.
Mæli með því að síga t.d. niður út leiðunum í Villingardal til að losna við hættulegustu snjóflóðabrekkurnar.
Samt engin ástæða til að sitja heima, bara að kveikja á hausnum og passa að batteríin í ýlinum séu í lagi. Hann er svo eins og Árni bendir á frekar léleg fjárfesting ef ekki er til staðar kunnátta, skófla og stöng.
Kv.
Softarinn12. January, 2007 at 19:13 #509030801667969MemberRétt hjá Ívari. Alls ekki sitja heima. Svona vetrarríki og fallegar aðstæður eins og oft eru í útsynningi (SV-átt) hef ég ekki séð langa lengi. Bjart og blind él til skiptis. Dragið fram
skíði, axir, skauta, skó
og njótið vetrar í púðursnjó.
Kv. Árni Alf.
Nennir ekki einhver að fyll inn í svo úr verði vísa.
12. January, 2007 at 20:32 #50904SmáriParticipantýlir, skófla, þekking og stöng
vonum að vertíðin verði löngnáttúrlega búinn að brjóta allar reglur um stuðla og höfuðstafi en þetta rímar allavega….
sjáumst á sunnudaginn, þeir sem ætla í klifur
kv. Smári
15. January, 2007 at 10:06 #509051704704009MemberÞað verður ekki annað sagt en nokkurs feginleika gæti með útkomuna í Ísalpferðinni í gær. Snjóflóðahætta var víðsfjarri í Grafarfossi og Granna en um helgina voru að berast fréttir af snjóflóðum norðanlands og vestan – að ógleymdri Esjunni fyrir viku. (frétti af björgunarsveitamönnum í Þverfellshorni á sunnudagsmorgun. Veit ekki hvernig snjóalögum þeir mættu þar efra)
Það er að sjálfsögðu ekki óskastaða að vera hringla með dagskrá klúbbsins og láta yfirvofandi snjóflóðahættu hrekja sig úr einu horni í annað með tilheyrandi röskun fyrir þátttakendur. En spjallskrifarar hér á síðunni tóku vel við sér og miðluðu mikilvægum upplýsingum og þar sannaði sig vel þetta verkfæri sem vefurinn er.
Þátttakan í ferðinni var líka frábær og allir komu heilir heim. Það er ekki svo lítils virði fyrir svona klúbb. Vil þakka fyrir góðan dag og að sjálfsögðu góðar umræður í aðdragandanum.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.