- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
9. January, 2009 at 08:24 #468401410693309Member
Ætlaði mér fyrir löngu að vera búinn að hrósa nýju ársriti ÍSALP sem fann loks leið sína til mín. Virkilega skemmtilegt blað með góðu jafnvægi í efnistökum og hlutfalli milli texta og mynda. Málfar og framsetning prýðileg og af allt öðrum klassa en ýmis dæmi eru um af þessum vettvangi. Besta mál.
Nýárskveðja frá Lúxemborg,
Skúli
9. January, 2009 at 10:28 #53520Siggi TommiParticipantÁnægjulegt að póstferlið taki ekki nema 3-4 mánuði þarna til Lúx…
Þetta kom nefnilega úr prentun um miðjan september og sent til félaga fljótlega þar eftir.En fyrir hönd ritnefndar þakka ég hrósið og auglýsi eftir efni í nýtt blað sem kemur væntanlega með haustinu.
9. January, 2009 at 17:33 #535212502614709Participantfær maður ekki eintak – borgaði að vísu seint en…..
9. January, 2009 at 21:45 #53522Siggi TommiParticipantVísa þessu til stjórnar.
Ritnefnd skilaði þessu af sér í kassavís eftir prentun og stjórn sá um að senda þetta á félagsmenn. Þekki ekki ferlið ef menn voru ekki búnir að greiða fyrir gjalddaga.10. January, 2009 at 00:55 #535230808794749MemberAð sjálfsögðu fá allir sem greitt hafa árgjaldið sent ársrit og félagsskírteini.
Það getur þó tekið smá tíma þar sem yfirleitt hafa verið send fleiri eintök í einu og því safnað saman nokkrum.
Endilega látið okkur vita á stjorn@isalp.is ef þið hafið borgað og ekki fengið sent ritið. Veit að við höfum fengið slatta endursendan þar sem við höfðum ekki rétt heimilisfang.kv.
10. January, 2009 at 11:52 #53524Arnar JónssonParticipantJú.. ég borgaði daginn eftir að þessu var dreift fyrr 3-4 mánuðurðm og hef ekkert eintak né skírteini fengið
Kv.
Arnar10. January, 2009 at 12:10 #53525BjörkParticipantarnar ég er með þitt það fór á vitlaust heimilisfang.
11. January, 2009 at 10:43 #53526Arnar JónssonParticipantJá ég næ ekki að breyta heimilisfanginu hjá mér hér á vefnum en allavegna þá má endilega senda þetta á Öldugötu 15, 220 Hafnaf.
Kv.
Arnar17. January, 2009 at 06:57 #535270703784699MemberSnilldarblað, og mikið hrós til ritnefndar f. frábær störf.
Blaðið rataði alla leið til Ástralíu og skapað margar ánægjustundir,
From Down Under,
Gimp
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.