Heyrði einhvern tímann að ný heimasíða Ísalp væri í smíðum og langaði að forvitnast um hvernig það mál stendur?
Fór annars að hugsa um þetta eftir að ég rakst inn á síðu sem heitir rockclimbing.com. Þar er fullt af allskonar efni og flottum fídusum sem væri gaman að sjá á síðunni hjá okkar klúbbi. Bragi, er þetta nokkurt mál?!!!
Svona í framhjáhlaupi þá rakst ég m.a. þarna á þessa linka frá einhverri útilífssýningu, mjög gaman fyrir alla dótakalla og -kellingar!
Við erum að vinna í þessu. Of snemmt að segja, eða sýna nokkuð, en notendur isalp.is fá örugglega að hafa skoðun á fyrirkomulagi vefmála þegar þar að kemur.