Hæ,
hafið þið tekið eftir því hvernig umræðuþráðum sem stofnaðir eru stundum kollavarpað og allt í einu eru þeir farnir að snúast um allt annað tilefni stóðu til í fyrstu.
Nýleg umræða um epík í Þilinu er gott dæmi um afvegalett efni en áhugasamir geta einmitt lesið meira undir þræði sem heitir “Búahamrar”.
Auðvitað er þetta yfirleitt ekki svona og hafa sumir þræðir haldist lifandi lengi, s.s skráningaþráður nýrra ísklifurleiða, þráðurinn með húsráðunum og nokkrir fleiri.
Ég ætla því að leggja til að í staðinn fyrir að stofna nýjan þráð fyrir “hverjir fóru hvert og gerðu hvað” eftir allar helgar í vetur þá stofnum við frekar þræði sem heita eftir skíða-, eða klifursvæðum og höldum í þeim lífi áfram út veturinn. Þannig fáum við einn þráð sem heitir “Múlafjall 2010-2011” en ekki tuttugu sem snúast á einn eða annan hátt um Múlafjall.
Öll leit að efni á síðunum verður skilvirkari og einfaldari.
Hvað segið um þetta?
Freyr