- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
15. June, 2009 at 13:33 #472740808794749Member
Hallóhalló.
Mikið er ánægjulegt að hafa samskipti í gegnum nýja vefinn okkar!
Ef einhver skildi ekki hafa áttað sig á því þá er hér á vinstri hönd að finna dálk með dagskránni okkar.
Flestir ættu að hafa heyrt af Stardalsdeginum á þjóðhátíðardag.
Einhverjir hafa kannski ekki tekið eftir auglýsingu um myndasýningu sem haldin verður nú á þriðjudagskvöld.Hér á klakanum er staddur háfjallagarpurinn og pólfarinn Satyabrata Dam. Hann er spenntur að hitta íslenska fjallamenn og ætlar að halda fyrir okkur myndasýningu og fyrirlestur þar sem hann kynnir fyrir okkur þá möguleika sem gefast í fjallamennsku á hans heimaslóðum. Ekki er ólíklegt að hann laumi inn nokkrum sögum af leiðangri sínum og sinna manna upp norðurhlið Everest.
Áður en myndasýning hefst verður hitað upp í kolunum og við gæðum okkur á pulsumeti saman.
Sjáumst á morgun.
16. June, 2009 at 11:14 #54253SkabbiParticipantHæ
Það er full ástæða til þess að hvetja fólk til að mæta í kvöld. Þetta er stórmerkilegur náungi, verður eflaust hörkusjóv hjá honum. Það er komin frétt efst á síðuna með frekari upplýsingum um kauða.
Svo ekki sé nú minnst á grillið!
Skabbi
16. June, 2009 at 15:54 #54258Anna GudbjortMemberÉg stefni á mætingu. Sataya er töffari.
16. June, 2009 at 22:56 #542592806763069MemberÞokkalega öflugur gaukur – töluvert meiri spaði en pólsku túrhestarnir í fyrra! Ef vesturlanda gaukur ætti jafn mikið af flottum FF í Himalaya þá væri hann líklega nokkuð frægur.
Kærar þakkir fyrir þetta.
kv.
Softarinn17. June, 2009 at 13:03 #542601908803629ParticipantÞessi myndasýning var snilld og miðað við feril kappans og áhugavert efni þá hefði átt að vera húsfyllir í sal FÍ, í stað sal Ísalp. Ég er ánægður að ég ákvað að kíkja við og fá fjallahvatningu beint í æð og fá að heyra lífsspeki hans um lífið og fjöllin. Þetta er maður sem ég mun fylgjast með.
BTW. bloggsíðan hans er mjög áhugaverð, mæli með henni.
18. June, 2009 at 10:01 #54262BjörkParticipantjei gaman að prófa nýtt spjall!
Já það hefði verið gaman að sjá fleiri ísalpara.
Skabbi grillaði ljúffengar pulsur ofaní hópinn og gaman að hitta fólk frá jöklarannsóknarfélaginu.
18. June, 2009 at 14:02 #542631108755689MemberÞað eina sem vantaði til að gera þessa myndasýningu betri var að forsetinn liti við (honum var víst boðið).
Mikill harðjaxl hann Sataya. Missir greinilega ekki augun af markinu, sama hvað á dynur.
B -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.