- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
16. February, 2011 at 22:44 #47528Björgvin HilmarssonParticipant
Á landinu eru þessa dagana staddir tveir klifrarar frá Alaska, þau Carrie Wang og Wayne Todd. Ég sá hjá þeim nokkrar myndir, leist vel á og bað þau um að halda sýningu fyrir okkur Ísalpara. Þau eru mjög almennileg og tóku vel í hugmyndina.
Það er ekki mikill tími til stefnu, þetta verður á föstudaginn næsta (18/02), kl. 20:00. En ég vona að sem flestir sjái sér fært að mæta. Er nokkuð viss að þau hafi frá mörgu að segja, virðast vera mjög aktíf. Þau eru í fjallabjörgunarsveit Alaska og auðvitað alpaklúbbi Alaska (Wayne er nú í stjórn og var formaður).
Klifrarar, fjallaskíðafólk og annað fjallaáhugafólk ætti ekki að missa af þessu. Veit svo fyrir víst að nýkjörin stjórn hyggst bjóða upp á hressingu Um að gera að byrja gott föstudagskvöld á flottum myndum og umfjöllun um Alaska og þá möguleika sem þar eru í boði í sambandi vði fjallamennsku.
Hvað segiði, er ekki stemmari fyrir svona löguðu??
17. February, 2011 at 09:04 #563740703784699MemberKlárlega flott, þarft og frábært framtak.
Reyni að mæta,
Himmi
17. February, 2011 at 11:03 #56375Freyr IngiParticipantAlaska er afa spennandi.
17. February, 2011 at 11:44 #56376SmáriParticipantSpennandi fyrir afa
17. February, 2011 at 17:35 #563781811843029MemberÞetta verður skemmtilegt, gaman að fá fólk alla leið frá Alaska í heimsókn.
Hvað er betra á föstudagskvöldi en að skoða myndir, heyra sögur og hitta fjallafólk. Ný kjörin stjórn sér að sjálfsögðu um að bjóða uppá hressingu milli mynda eins og Bjöggi lofaði uppí ermina á okkur.
Vona að ísalparar kíki við þó fyrirvarinn sé stuttur.
18. February, 2011 at 01:15 #563790808794749Membernjótum afans
já og alaska-myndasýningar. je.
18. February, 2011 at 18:14 #56384Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantVei vei
Ég mæti.
Ági
19. February, 2011 at 12:25 #56385gulliParticipantOg hvernig var svo sýningin?
Var nýja stjórnin að standa sig í að skaffa veitingar?
19. February, 2011 at 12:26 #56386Björgvin HilmarssonParticipantFlott sjóv hjá Alöskurunum. Mjög flottar myndir sem þau voru með. Greinilega talsverður áhugi á Alaska því mætingin var mjög góð, milli 25 og 30 manns létu sjá sig og nutu að auki veglegra veitinga frá nýju stjórninni.
Takk fyrir mig.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.