Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Miðvikudagur í Esjunni
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
7. February, 2008 at 10:03 #44849SkabbiParticipant
Hæ
Við Gulli granít gerðum okkur dagamun í gær, hættum snemma í vinnu og kíktum í Búahamra í Esjunni. Markmið dagsins var að finna og klifra leiðina Nálaraugað sem eitt sinn taldist til klassískra leiða.
Þeir sem e-ntíman hafa rýnt upp í Búahamra vita sjálfsagt að þar lítur allt eins út, gilin eru hvert öðru lík og klettarnir milli þeirra allir tilbrigði við sama stefið. Nálaraugað á víst að liggja upp þröngt gil, eitt af ca. 50 á svæðinu.
Eftir talsvert japl, jumm og fuður ákváðum við að spóla í eina skoruna sem allavega geymdi smá ís neðst. Ef þetta væri ekki Nálaraugað væri það ekki í fyrsta skipti sem ég villist í Esjunni.
Leiðin reyndist ekki geyma meiri ís en fyrstu 10 metrana, eftir það tóku við brattar snjóbrekkur og íslaus klettahöft. Sérdeilis prýðilegt brölt og oft á tíðum spennandi en alveg örugglega ekki Nálaraugað.Eftir að upp var komið gengum við til vesturs eftri brúninni í leit að leið niður. Mikið er af stífum snjó í öllum giljum þannig að við fundum fljótlega leið sem við gátum niðurklifrað. Á leiðinni niður í bíl komum við auga á íslínu sem passað enn betur við leiðarlýsinguna, allavega var ís alla leið upp. Til þess að játa okkur ekki alveg sigraða fyrir völundarhúsi Búahamra græjuðum við okkur í snatri og spóluðum af stað. Leiðin reyndist hin besta skemmtun, ísinn góður víðast hvar í leiðinni og nóg af honum. Klifrið losaði 3. gráðu og vel það en mér segir svo hugur að þetta sé talsvert brattara í minni ís.
Nú veit ég ekki hvort við römbuðum á hið rétta Nálarauga í þessum tilraunum okkar, en klifrið var allavega prýðilegt og ungmennafélgasstemmingin til fyrirmyndar.
Allez!
Skabbi
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.