Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Meira mix – meira stuð.
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
3. February, 2009 at 12:42 #46940ABParticipant
Við Freysi fórum nýja leið sem heitir Hagsmunagæslan og er ca M5.
Leiðin er afbrigði af Helvítis fokking fokk; í stað þess að hliðra fram hjá þakinu er farið út þakið með hjálp fríhangandi kertis. Það eru 5 boltar í leiðinni.
Kíkið á nýskráningu leiða: http://isalp.is/route.php?op=l&t=1
Okkur finnst þetta vera frábær leið.
Ég minni svo aftur á að Helvítis fokking fokk er alls ekki svo erfið og kjörin sem fyrsta mixleið. Reyndar verð ég að minnast á að snjórinn hefur rænt hátt í 1,5 metra af leiðinni, nú er fyrsti bolti í brjósthæð en þegar við boltuðum leiðina þurfti að teygja sig í hann.
Kveðja,
AB
3. February, 2009 at 12:54 #53705ABParticipantÉg gleymdi að minnast á að Freysi kláraði Ólympíska félagið í gær.
Þá var fagnað.
AB
3. February, 2009 at 12:55 #537060311783479MemberNoohhh glaesileg leid!
Mer list heldur betur vel a ykkur Freysa, thid varla flexid bisepinn an thess ad vera vopnadir papparossum sigandi nidur helstu thok :o)
Vel af ser vikid
kv.
Halli3. February, 2009 at 13:40 #53707ABParticipantHaraldur. Þú sem lærifaðir minn í gegnum árin veist að ég geri ekkert nema hafa örugga vitneskju um að gjörðir mínar séu skrásettar og birtar almenningi. I´m in it for the fame.
Freysi er eins; hann ætlaði varla að hafa sig af stað í Ólympíska félagið í gær þar sem enginn ljósmyndari var á svæðinu.
Kveðja,
Glory hunter
3. February, 2009 at 21:15 #53708Siggi TommiParticipantGott mál. Það er allt að verða löðrandi í leiðum þarna uppfrá.
En… það er víðar hægt að príla en í Esjuhlíðum…Datt í hug að minnast á að ábúendur að Björgum í Kaldakinn halda úti vefsíðunni http://www.bjorgum.is þar sem finna má myndir og sitthvað fleira um ísklifur á svæðinu auk gistimöguleika og fleira.
Þar vakti helst athygli mína sérdeilis prýðilegur fítus sem sýnir vikulega myndir af ísaðstæðum í Ógöngufjalli. Sé ekki betur en flestar leiðir séu að detta í aðstæður og því tilvalið að drífa sig norður við tækifæri.
Slóðin á aðstæðusíðuna er:
http://www.bjorgum.is/icebjorg—iceclimbing-area/the-ice/3. February, 2009 at 22:04 #537092806763069MemberMaður varð náttúrulega að fara og krossa við eitthvað af þessu dóti í tvíburagili.
Gekk vel ég, Guðjón Snær og Dóri bættumst í safnið yfir þá sem hafa klifrað hið merka Olympískafélag. Reyndar held ég að við höfum sloppið örlítið betur en Andri á sínum tíma. Það er hægt að stemma sig af í lítð kerti og hvíla í miðju krúxinu.
Náttúrulega gersamlega athygglissjúkir og því gleymdis myndavélinn ekki heima:
http://picasaweb.google.co.uk/ivarfinn/MixMaster#5298690745754846274
Helvítis, fucking, fuck er líka ekki svo slæm. Létt og skemmtileg!
Það stendur svo til að bolta Síamstvíburana við tækifæri og lengja mix hlutann þar sem ísaðstæður hafa gersamlega breyst.
kv.
Softarinn
3. February, 2009 at 22:36 #537102308862109ParticipantFrábær dagur í tvíburagilinu í dag.
Ég og Doddi renndum þanngað í dag byrjuðum á helvítis fokking fokk og skelltum okkur svo í olympískafélagið.
Stórskemmtilegt svæði við vorum reyndar ekki með neinar myndavélar á okkur en Guðjón og Ívar voru góðir í sér og mynduðu okkur aðeins.
Einnig fórum við 3 í kórinn í Kjósinni á föstudag og fórum spora í fínum aðstæðum og fórum svo í konudagsfossinn en hann var ekki kláraður þar sem efsti parturinn var svo rosalega kertaður.
Síðan fórum við 4 Ársælsmeðlimir í Austurárdal á sunnudaginn og voru aðstæður þar svipaðar og á myndunum frá seinustu grúppu þaðan. klifrðuðum við eitthvað afbrigði af bláu leiðinni og áætlun B.
Hendi einhverjum myndum á netið við tækifæri.Dóri
3. February, 2009 at 23:14 #537112506663659ParticipantJæja ég get ekki verið eftirbátur annara sem hafa lagt leið sína upp í Tvíburagil undarfarið.
Hér koma því nokkrar myndir frá deginum.http://picasaweb.google.com/gudjons/20090203SkifurTviburagil?authkey=bc6ybw3jSdU
kv,
GSS3. February, 2009 at 23:37 #53712ABParticipantJæja, það er víst nóg framboð af myndum. Svona á þetta að vera.
Hér eru myndir úr nokkrum ferðum í Tvíburagil í janúar og febrúar:
http://picasaweb.google.co.uk/andribjarnason/TviburagilIJanuarOgFebruar#
Kveðja,
AB
4. February, 2009 at 09:47 #53713Björgvin HilmarssonParticipantEins og fram hefur komið þá fór ég ásamt Skabba og Robba upp í Tvíbbagil á laugardaginn. Smellti af nokkrum myndum við það tækifæri og hér er eitthvað af því: http://retro.smugmug.com/gallery/7269337_UZen6#467293570_z3FHp
4. February, 2009 at 11:22 #53714Siggi TommiParticipantÁhugavert. Það er ekkert smá sem leiðin breytist á nokkrum vikum. Greinilegt að maður verður að prófa ísvariantinn af þessu líka.
Mig langar til að klifra svona dangling dagger eins og hinir…Legg til að leiðin verði endurskírð “Miklabraut” í ljósi mikillar umferðar síðustu vikur.
4. February, 2009 at 20:35 #537152205892189MemberÞetta er mikil snilld.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.