Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Loco for Coco!
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
10. March, 2009 at 23:00 #46505SkabbiParticipant
Hæ
Það er varla að maður þori upp á dekk með svo lítilræði en…
Við Gulli granít skelltum okkur upp í Esju eftir vinnu í dag, n.t.t í Kókostréð í Kistufelli. Í stuttu máli er Kókostréð sexy as ever, í fínum aðstæðum og klifrið var löðrandi fínt. Tilvalið skrepp eftir vinnu!
Grafarfossinn var samt glataður, að því er virtist.
Allez!
Skabbi
11. March, 2009 at 13:18 #53932Siggi TommiParticipantGóðir.
Hefur alltaf ákveðinn sjarma þessi leið og ekki alltaf í aðstæðum.
Beilaði nefnilega efst í henni fyrir mörgum árum og á því harma að hefna…11. March, 2009 at 14:12 #53933SkabbiParticipantHæ
Ég held að Kókostréð sé jafnvel oftar í góðum aðstæðum en margan grunar. Amk var það alveg svellþykkt í gær.
Annars er þessi leið svo stílhrein og flott að hún ætti að vera ofarlega á tikklista allra klifrarar á suðvestur horninu.Allez!
Skabbi
11. March, 2009 at 16:08 #53934RobbiParticipantFlott leið, tek undir með Skabba Þetta á að vera á tikklistanum.
robbi
12. March, 2009 at 07:55 #53935ÓlafurParticipantEitt sinn fyrir margt löngu klifraði ég þessa ágætu leið. Það er svosem ekki í frásögur færandi, nema fyrir það að þegar ég er kominn efst í leiðina og farinn að sjá til lands þá kemur í ljós ca 30 cm þversprunga gegnum kertið. Kertið hafði semsagt sunkað niður og stóð uppá endann (eins og kerti eiga náttúrulega að gera).
Þessa dagana sveifla ég exi mest við skógarhögg.
Svo klifraði ég náttúrulega Ópið líka 1994 en gleymdi bara að segja frá því og filman sneri öfugt í myndavélinni.
12. March, 2009 at 09:57 #53936SissiModeratorÉg var með í þessari ferð upp Ópið með Óla Ragga og þá var heil spönn af WI6 pillari þarna fyrir ofan sem við fórum á hlaupandi tryggingum, leiðin er í mjög léttum aðstæðum núna. Það er líka svindl að nota svona góðar skrúfur, við þurftum náttúrulega að torka þær og klifruðum því með stórt átaksskaft sem við fengum lánað á dekkjaverkstæðinu í Mosó. Á toppnum gæddum við okkur á 3 malt í gleri á mann og heilu hangilæri.
Ahhh – gúd ól deis.
Sissi
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.