Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Laumuklifrarar ?
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
16. January, 2008 at 23:07 #46806RobbiParticipant
Rakst á þessa mynd á netinu
http://picasaweb.google.com/olikrummi/20080108BotnsLur/photo#5156205064672172306Það væri nú gaman að heyra frá þessum laumuklifrurum. Þetta er ekki fjölfarið að mér vitandi. (Myndin er úr Botnsúlum)
Koma svo með rapport eða smá ferðasögu.
Robbi17. January, 2008 at 00:04 #52214ABParticipantSvo væri gaman að heyra hverjir voru á ferð í Kjósinni síðasta laugardag. Við Eyþór, á heimleið eftir klifur í Spora, sáum þrjá kappa á uppgöngu í átt að klettabelti með nokkrum ísbunkum. Þeir voru á rauðum jeppa.
Hverjir voru þar á ferð?
AB
17. January, 2008 at 10:07 #522151012803659ParticipantSófaklifrarar eða laumuklifrarar, hvort er verra…
Við fórum fjórir í Eilífsdalinn síðastliðna helgi, fínar aðstæður, fullt af ís.
http://picasaweb.google.com/gudjonbj/EinfarinnEilFsdal/photo#5155012476056505314
Við klifruðum Einfarann, hann var í sæmilegum aðstæðum, þó var ágætis hengja að myndast, sennilega orðin vígaleg í dag.
17. January, 2008 at 11:10 #522162903793189MemberLaumuklifrararnir heita Kári Sævarsson og Haraldur B. Ingvarsson. Ég veit nú ekki hvað leiðin heitir en Harri vinnufélagi minn og klifrari af annarri kynslóð benti mér á hana. Þetta er þrælskemmtileg leið sem við tókum í þremur spönnum. Leiðin er hvergi lóðrétt en ísinn var yfirleitt þunnur og lítið hægt að tryggja.
Ég held að það sé óhætt að mæla með henni ef menn vilja eiga góðan dag á fjöllum, rölta, klifra og enda á toppi.
17. January, 2008 at 12:06 #52217Bergur EinarssonParticipantVið laumuðumst líka þrír Hafnfirðingar í Villingadalinn seinustu helgi. Fínn ís og ágætis aðstæður en dálítið vatn á ferðinni í fossunum. Fórum syðsta fossinn af þrenningunni í skálinni.
Á niðurleiðinni klifruðum við aðeins í fossum sunnan meginn í gilinu sem er sunnanmegin við aðalskálina. Mikið af löngum léttum leiðum. Finnst eins og ég hafi ekki séð þetta svona mikið áður en líklega fer þetta að stórum hluta undir snjó þegar að það snjóar á veturnar, sem er reyndar að gerast núna!
17. January, 2008 at 13:44 #52218ABParticipantSko, nú vellur þetta upp úr mönnum!
Nú vantar bara að rauðjeppagæjarnir varpi fram spennandi sögu úr Kjósinni.
Gott að heyra af einhverjum að vesenast í Botnsúlum. Fáfarið svæði. Ég kannast ekki við að leiðin á myndinni sé skráð klifurleið.
Hvað segja heldri mennirnir um það?
Man að ég horfði á þessa línu fyrir nokkrum árum þegar ég, ásamt Haraldi Bretlandseyjajarli og Þorvaldi AK fórum nokkra metra áleiðis upp gil í norðurveggnum, eilítið austar. Áhyggjur af brotnu hrútsjárni (ekki spyrja) stöðvuðu för okkar það skiptið.
Halli, þú setur myndahlekk inn ef þér sýnist sem svo.
AB
17. January, 2008 at 14:09 #52219SkabbiParticipantHæ
Ég spyr nú bara samt:
Hvað er hrútsjárn og af hverju þarf maður að hafa áhyggjur ef það brotnar? Vona að mín hrútsjárn séu úr hertu stáli, ekki vill ég þurfa að hafa áhyggjur af því að það brotni í tæpri leiðslu.
Einn áhyggjufullur
PS. Það er gaman að sjá nöfn á spjallinu sem eru ekki alveg hversdags. Hvet fleiri laumupúka að gefa sig fram og segja af förum sínum, sléttum sem óslettum.
Allez!
Skabbi
17. January, 2008 at 14:19 #522201811843029MemberFjallaleiðsögumenn voru að kenna ísklifur 2 síðasta laugardag, bæði í Múlafjalli og í Kjósinni, ætli þetta hafi ekki verið Leifur á ferð í Kjósinni. Sjálfur var ég í Múlafjalli með 4 nemendur.
Kveðja,
Atli Páls.
17. January, 2008 at 15:21 #522211704704009MemberÞetta er nú einn forvitnilegasti þráðurinn um nokkurt skeið. Algerlega sammála Skabba sbr. ný nöfn á spjallinu.
17. January, 2008 at 16:43 #52222ABParticipantTja, hvað er hrútsjárn?
Stórt er spurt. Frekar myndi ég setja mig í Nietzche-ískar stellingar og spyrja; er hrútsjárn? Ef svo er, hvar er hrútsjárn og hvers vegna? Ekki hef ég séð hrútsjárn, hvorki brotið né óbrotið, frá þessum degi. En svo mikið er víst að brotið hrútsjárn getur skapað stórt vandamál, sérstaklega langt frá mannabyggðum. Hrútsjárnið brotna hafði þó ekki nema óbein áhrif á klifurframgang þessa dags.
Kveðja,
AB
17. January, 2008 at 16:48 #52223ABParticipantAtli,
Við Eyþór hittum Leif með tvo kúnna, þeir voru í Kórnum líkt og við. Rauðjeppalingarnir voru einhverjir aðrir. Annars fer þetta nú að virðast vera mér meira kappsmál en það er. Það er bara skemmtilegra þegar menn segja frá. A.m.k. hef ég ekki klifrað þar sem umrætt þriggja manna teymi var að brölta.
AB
17. January, 2008 at 21:31 #522240506824479MemberÉg og Hjörtur Jóhannsson kíktum í Grafarfossinn á þriðjudaginn. Ákváðum að fara vinstra megin við grjótið. Fyrri spönnin var ágæt en stansinn var mjög blautur, það hefði verið betri kostur að fara hægra megin við grjótið. Mikill snjór var í leiðinni og einnig þurfti að vaða djúpan snjó uppað fossinum.
kv. Doddi
17. January, 2008 at 21:37 #522251709703309MemberÞað veit hver maður sem gáfur meiri en Ingjaldur bundinn við staur hefur að hrútsjárnið er samfast öðru og meira járni sem rennur getur um á fjórum jafnfótum sóluðum eða ósóluðum. Eða er ekki svo AB?
17. January, 2008 at 22:24 #52226RobbiParticipantÞetta er eitthvað annað. Men leysa frá skjóðunni, og svoleiðis á þetta að vera. Það er hrein og bein tilkynningarskylda þegar menn hafa klifrað ís.
Enginn vill fara fýluferðir. Labba í einhverja klukkutíma og sóa hálfum (eða það sem verra er: heilum) deginum til þess eins að sóa deginum í labbitúr af því að það lét enginn vita af ísleysi.Svo er líka svo gaman að lesa ferðasögur annarra, það hvetu aðra klifrara til klifurs. Meiri líkur að menn drattist á lappir úr sófanum og hætti að láta sig dreyma og ramkvæmi.
Ég hrósa þeim sem tilkynna sig inn og ég gef þeim líka klapp á bakið.
Later.
Robbi18. January, 2008 at 08:39 #52227AnonymousInactiveVarðandi leiðir í Botnsúlum get ég sagt að ég hef aldrei klifrað þarna í ís en ég hef frétt af mönnum sem hafa farið leiðir þarna. Ef ég mætti giska þá er búið að fara þessa leið áður og er nokkuð víst að gamlir klifurhundar úr HSSR(B-rich og félagar) viti eitthvað meira um það.
18. January, 2008 at 09:06 #52228KarlParticipantEr þetta ekki norðurhliðin á Syðstusúlu, -tekið úr Öndrudal? Ef svo er þá heitir mjóa snjórennan Skoran og er snjó/ís leið. Aðalatriðið er að finna tryggjanlegan ís.
Einhverntíma brölti ég Skoruna með skíðin á bakinu og rendi mér niður e-h aðra leið.
Tvöföld hamingja…18. January, 2008 at 14:34 #522290311783479MemberEr hrútsjárn?
http://gallery.askur.org/main.php?g2_itemId=126093
Klifur í Botnsúlum minnir mikið á norður vangan á Ben Nevis í Skotlandi, mínus gott berg og viský.
Þó er minna af járnuðum hrútum á ferli í Loch Aber sýslunni…
Njótið!
H18. January, 2008 at 16:18 #52230ABParticipantMikið rétt, Stebbi.
AB
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.